Fréttablaðið - 18.09.2006, Qupperneq 6
6 18. september 2006 MÁNUDAGUR
KJÖRKASSINN
Skjá dagar
í september!
Ótrúlegt v
erð!
frá19.900-
tækni
SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS
VATÍKANIÐ, AP Benedikt XVI páfi
sagðist í gær vera „innilega leið-
ur“ yfir þeim viðbrögðum sem
nýleg ummæli hans um íslam
hafa valdið. Hann sagði orð sín,
að boðskapur Múhameðs hefði
verið illur og ómannúðlegur, vera
tilvitnun í miðaldatexta sem lýsti
ekki hans eigin skoðunum.
„Ég vona að þetta friði hjörtu
og skýri hina sönnu merkingu
ávarps míns, sem var boð um
opinskáa umræðu, með gagn-
kvæmri virðingu,“ sagði páfinn.
Mikil reiði hefur brotist út
meðal múslima í kjölfar ræðunn-
ar. „Annað hvort biðstu afsökun-
ar almennilega eða ekki,“ sagði
Mehmet Aydin, innanríkisráð-
herra Tyrklands. „Ertu leiður yfir
að hafa sagt svona lagað, eða ertu
leiður yfir afleiðingunum?“
Byssumenn í Sómalíu drápu í
gær ítalska nunnu og lífvörð
hennar við spítalann, þar sem hún
vann við hjálparstörf. Íslamskir
bókstafstrúarmenn ráða nú ríkj-
um í landinu og segir Yusuf
Mohamed Siaf, yfirmaður örygg-
ismála þarlendis, að einn hafi
verið handtekinn fyrir morðið og
annars sé leitað. „Þetta gætu hafa
verið menn sem voru ósáttir við
ræðu páfa, sem reitti alla mús-
lima heimsins til reiði,“ sagði
Siad.
Yfirmenn Vatíkansins vonast
enn til að páfi láti verða af ferð
sinni til Tyrklands, þrátt fyrir
mótmælaölduna. Það yrði fyrsta
ferð Benedikts til lands sem er að
mestu múhameðstrúar. - sgj
Benedikt XVI páfi biðst afsökunar á að ræða sín hafi móðgað múslima:
Mikil reiði í garð kaþólikka
SYSTIR LEONELLA BENEDIKT XVI PÁFI
Störf innan stjórnmálaflokka:
• Formaður Alþýðubandalagsins
1995-1998
• Talsmaður Samfylkingarinnar í
kosningunum 1999
• Varaformaður Samfylkingarinnar
2000-2003
Alþingi:
• Varaþingmaður Suðurlandskjör-
dæmis 1983-1985 með hléum
• Alþingismaður Suðurlandskjör-
dæmis 1987-2003 (Alþýðu-
bandalagið og Samfylkingin)
• Alþingismaður Suðurkjördæmis
frá 2003 (Samfylkingin)
• Formaður þingflokks Alþýðu-
bandalagsins 1988-1992
• Formaður þingflokks Samfylk-
ingarinnar frá 2004
Önnur störf:
• Oddviti Stokkseyrarhrepps 1982-
1990
• Sat á allsherjarþingi SÞ 1989 og
1990
• Sat í stjórnarnefnd Ríkisspítal-
anna 1993-1995
ÞINGMAÐUR Í
TUTTUGU ÁR
STJÓRNMÁL Margrét Frímannsdótt-
ir, þingkona og þingflokksformað-
ur Samfylkingarinnar, hefur
ákveðið að gefa ekki kost á sér til
áframhaldandi þingmennsku fyrir
Samfylkinguna en hún hefur verði
oddviti flokksins í Suðurkjördæmi
um árabil.
Margrét segist hafa ákveðið af
stíga af sviðinu að vel athuguðu
máli. „Ég hugsaði þessi mál vel og
tók ákvörðun um að gefa ekki kost
á mér þar sem ég taldi skynsam-
legast að breyta um starfsvett-
vang á þessum tímapunkti. Ég hef
verið í yfir 25 ár í stjórnmálum,
þar af tuttugu ár sem þingkona, og
fengið tækifæri til þess að gegna
mikilvægum embættum. Nú finnst
mér vera kom-
inn tími til þess
að skipta um
umhverfi.“
Margrét
hefur ekki enn
ákveðið hvað
hún tekur sér
fyrir hendur.
„Ég hef nú ekki
fengið nein
starfstilboð
ennþá en von-
andi getur ein-
hver nýtt
starfskrafta
mína. Mér þykir
afar vænt um
þann stuðning
sem ég hef
fundið fyrir að
undanförnu, en
ég minnist þess
ekki að hafa
fengið jafn mik-
inn stuðning á mínum ferli og
þann sem ég hef fundið svo sterkt
fyrir síðustu daga. Ég er þakklát
fyrir að hafa fengið tækifæri til
þess að reyna að hafa áhrif til hins
betra í samfélaginu. Ég er stolt af
því að hafa komið inn á þing beint
úr verkalýðshreyfingunni og tel
að það hafi hjálpað mér mikið, því
það getur skipt sköpum í stjórn-
málum að þekkja til mála af
reynslu.“
Össur Skarphéðinsson, þing-
maður Samfylkingarinnar, segir
Margréti einstakan stjórnmála-
mann. „Það er mikil eftirsjá í Mar-
gréti því hún hefur verið einn öfl-
ugasti stjórnmálamaður
jafnaðarmanna á Íslandi um ára-
bil. Þegar þetta skeið sögunnar
verður skrifað, og skoðað nákvæm-
lega, þá fyrst held ég að það komi
fram hversu mikilvægu hlutverki
hún gegndi við að skapa nýjan
stjórnmálaflokk, Samfylkinguna.
Hún bar hitann og þungann, og
erfiðið, af því starfi sem fór fram
þegar unnið var að því að sameina
jafnaðarmenn. Margrét er að
mörgu leyti einstakur stjórnmála-
maður. Hún er stelpan af Stokks-
eyri sem komst inn á svið stjórn-
málanna með dugnaði og varð einn
af leiðandi stjórnmálamönnum
sinnar kynslóðar.“
Ágúst Ólafur Ágústsson, vara-
formaður Samfylkingarinnar,
segir leiðtogahæfileika Margrétar
munu nýtast flokknum áfram.
„Það er mikill missir í Margréti.
Hún er afar hæfur leiðtogi og
sterkur persónuleiki sem hefur
staðið sig afar vel. En ég geri ráð
fyrir því að Samfylkingin muni
njóta krafta Margrétar áfram.“
magnush@frettabladid.is
ÁGÚST ÓLAFUR
ÁGÚSTSSON
ÖSSUR SKARPHÉÐ-
INSSON
MARGRÉT FRÍMANNSDÓTTIR ÁVARPAR KJÖRDÆMISRÁÐIÐ Margrét Frímannsdóttir
tilkynnti um ákvörðun sína á fundi kjördæmisráðs Samfylkingarinnar á Þorlákshöfn.
Hún segist kveðja svið stjórnmálanna sátt.
Margrét stígur af
sviði stjórnmálanna
Margrét Frímannsdóttir gefur ekki kost á sér til áframhaldandi þingmennsku.
Einn af leiðandi stjórnmálamönnum sinnar kynslóðar, segir Össur Skarphéð-
insson. Leiðtogahæfileikar Margrétar nýtast áfram, segir varaformaðurinn.
STJÓRNMÁL Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, formaður Samfylkingarinn-
ar, segir það mikil tímamót fyrir
Samfylkinguna að Margrét Frí-
mannsdóttir hafi ákveðið að stíga af
sviði stjórnmálanna. Margrét var í
forystuhlutverki þegar Samfylking-
in varð til árið 1999 en hún var þá
formaður Alþýðubandalagsins og
hafði gegnt því embætti frá því árið
1995. „Það eru alltaf mikil kaflaskil
þegar reyndir stjórnmálamenn eins
og Margrét, sem er ljósmóðir Sam-
fylkingarinnar, stíga af sviðinu. En
fólk gerir það upp við sig, hverju
sinni, hvenær það telur tímabært að
gefa öðru fólki tækifæri. Það er
alltaf betra að taka svona ákvarðan-
ir þegar það er eftirsjá í manni,
frekar en þegar kemur að þeim
tímapunkti að stjórnmálamenn hafa
lifað sjálfan sig í pólitík. Eins og er
því miður alltof algengt og nýleg
dæmi sanna.“
Margrét hefur verið oddviti
Samfylkingarinnar í Suðurkjör-
dæmi í þau tvö kjörtímabil sem
flokkurinn hefur boðið fram í þing-
kosningum. Aðrir þingmenn Suður-
kjördæmis eru Björgvin G. Sigurðs-
son, Jóhann Ársælsson og Lúðvík
Bergvinsson. - mh
Ingibjörg Sólrún segir Margréti Frímannsdóttur vera ljósmóður Samfylkingarinnar:
Mikil kaflaskil fyrir flokkinn
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR Segir mikla eftirsjá í Margréti fyrir Samfylkinguna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HÁTÍÐ Nýr bæjarstjóri Fjarða-
byggðar, Helga Jónsdóttir, var
boðinn velkominn til starfa á hátíð
í Fjarðabyggð á laugardag. Mikið
var um dýrðir á hátíðinni sem
haldin var vegna sameiningar
Austurbyggðar, Fáskrúðsfjarðar-
hrepps og Mjóafjarðahrepps, við
Fjarðabyggð.
Helga Jónsdóttir tekur við af
Guðmundi Bjarnasyni, fyrsta
bæjarstjóra Fjarðabyggðar. Fluttu
núverandi og fráfarandi
bæjarstjóri ræðu af því tilefni.
Skipulögð dagskrá hafði verið sett
saman í tilefni dagsins, en þar
tróðu upp landsþekktir skemmti-
kraftar á borð við Bríeti Sunnu og
Snorra úr Idol. Dagskránni lauk
með flugeldasýningu um kvöldið.
- rve
Fjarðabyggð:
Bæjarstjóra
vel fagnað
REYÐARFJÖRÐUR Nýtt pósthús mun
rísa á Reyðarfirði næsta sumar
ef áætlanir um byggingu þess
ganga eftir. Skóflustunga að
húsinu var tekin á dögunum.
Ingimundur Sigurpálsson,
forstjóri Íslandspósts, kynnti
við tækifærið tillögur um
byggingu nýrra pósthúsa á tíu
stöðum á landinu.
Sú uppbygging er liður í
þeirri ákvörðun stjórnar
Íslandspósts að byggja upp
starfsemi og þjónustu á lands-
byggðinni. Stefnt er að því að
framkvæmdum við þessi
verkefni verði lokið á næstu
þremur árum. - þsj
Fyrsta skóflustungan:
Pósthús rís á
Reyðarfirði
Yfir tuttugu látnir
Að minnsta kosti 24 fórust og yfir
áttatíu særðust í sex sprengingum í
Kirkuk, á áhrifasvæði kúrda í norður-
hluta Íraks.
ÍRAK
Ætlar þú að taka á móti Magna
Ásgeirssyni í Smáralind?
Já 7%
Nei 93%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Bloggar þú?
Segðu skoðun þína á visir.is
MEÐ BLÓM Í HÖND Núverandi og fráfar-
andi bæjarstjórar í Fjarðabyggð.
Hægri öfgamenn auka við sig
Flokkur Angelu Merkel, kanslara Þýska-
lands, tapar fylgi í héraðskosningum í
Mecklenburg-Vorpommern og Berlín,
en flokkur hægri öfgamanna náði
rúmum 7 prósentum atkvæða.
ÞÝSKALAND