Fréttablaðið - 18.09.2006, Page 10
10 18. september 2006 MÁNUDAGUR
REYKJAVÍK, 15.–22. SEPTEMBER
www.reykjavik.is
EVRÓPSK
SAMGÖNGU-
VIKA
LOFTSLAGSBREYTINGAR
Reykjavíkurborg tekur nú, fjórða árið í röð, þátt í Evrópsku
Samgönguvikunni. Þema Samgönguvikunnar í ár er loftslagsbreytingar
og mun dagskrá vikunnar taka mið af því. Leiðarljós Samgönguviku er
hreint loft og verður lögð áhersla á hvernig val á samgöngumáta hefur
áhrif á umhverfi, heilsu og borgarbrag.
DAGSKRÁ
Mánudagur 18. september
12.00 Umhverfi og samgöngur. Hádegisfundur í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Geta hjólreiðar og ganga verið raunverulegir valkostir fyrir íbúa
Reykjavíkur? Munu vistvænni bílar ryðja sér til rúms í borginni? Er hægt
að draga úr neikvæðum áhrifum samgangna á umhverfið?
Frummælendur: Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfisráðs
Reykjavíkurborgar, Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra og Samúel Torfi
Pétursson skipulagsverkfræðingur. Fundarstjóri er Sigmar Guðmundsson.
Fyrir utan Ráðhúsið sýna bílaumboð visthæfa og sparneytna bíla.
Þriðjudagur 19. september
12.00 Heilsa og samgöngur. Hádegisfundur í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Munu fleiri Reykvíkingar velja sér samgöngumáta með heilsufarslegan
ávinning í huga? Framtíðarsýn Reykjavíkurborgar er að hjólreiða- og
göngufólk verði sýnilegra í umferðinni.
Frummælendur: Dagur B. Eggertsson læknir, Guðrún Ásmundsdóttir
leikkona og Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs.
Fundarstjóri er Sigmar Guðmundsson.
Fyrir utan Ráðhúsið sýna bílaumboð visthæfa og sparneytna bíla.
Meira um dagskrá Samgönguviku á www.reykjavik.is
TALSMENN
HREINS LOFTS
Reykjavíkurborg
LÍFSSTÍLL Rannsókn á lífsstíl sjö til
níu ára grunnskólabarna hefst í
haust og stendur fram til 2008.
Tilgangurinn er að kanna hvort
fræðsla, aukin hreyfing og bætt
mataræði hafi áhrif á líkams-
ástand og vellíðan barnanna.
Sex grunnskólar í Reykjavík
taka þátt í rannsókninni. Í þrem-
ur þessara skóla verður kennur-
um, skólastjórnendum, öðrum
starfsmönnum og foreldrum ráð-
lagt um næringu, hollustu og
hreyfingu barnanna.
„Við ætlum að stuðla að breytt-
um kennsluháttum og koma á
hreyfingu og fræðslu inn í dag-
lega kennslu,“ segir Erlingur
Jóhannsson, prófessor við Íþrótta-
fræðasetrið á Laugarvatni.
Foreldrar barnanna fá
fræðslu, til dæmis á vefsíðu rann-
sóknarinnar, og þannig getur
rannsóknin haft áhrif á þá líka.
Börnin í hinum þremur skól-
unum verða samanburðarhópur.
Í öllum skólunum verða börnin
vegin og mæld í upphafi og við
lok rannsóknarinnar og sést þá
hvort lífsstílsbreytingin hefur
haft áhrif á börnin í þeim skóla
þar sem mataræði hefur breyst
og hreyfing aukist. - ghs
HREYFING OG
FRÆÐSLA „Við
ætlum að stuðla
að breyttum
kennsluháttum
og koma hreyf-
ingu og fræðslu
inn í daglega
kennslu,“ segir
Erlingur Jóhanns-
son prófessor.
Rannsókn á lífsstíl sjö til níu ára grunnskólabarna hefst í haust:
Mataræði og hreyfingu breytt
FJÁRFESTING Eimskip hefur gengið
frá kaupum á 30 prósenta hlut í
litháíska flutningafyrirtæk-
inu Kursiu Linija.
Þessi hluti kemur til viðbótar 70
prósent hlut sem Eimskip
eignaðist fyrr á árinu og hefur
félagið því eignast Kursiu Linija
að fullu.
Heildarkaupverð hluta Kursiu
Linija nemur átta milljónum evra
og fjármagnar Eimskip kaupin
með eigin fé.
Kursiu Linija rekur fimm
skip með flutningsgetu frá 300-
650 teus. Heildarflutningsgeta
gámaflota fyrirtækisins er 5.000
teus. - hs
Eimskip kaupir Kursiu Linija:
Fjárfestir fyrir
8 milljónir evra
NEYTENDUR Sala á fersku spínati frá
Bandaríkjunum hefur verið stöðv-
uð í verslunum Hagkaupa vegna
hugsanlegrar bakteríusýkingar.
Þetta er spínat frá merkjunum
„Hollt og Gott“ og „Earthbound
Farms“. „Við fengum fregnir af
þessu á laugardagsmorgun og
vorum búin að fjarlægja vöruna úr
verslunum okkar upp úr hádegi,“
segir Sigurður Reynaldsson, inn-
kaupastjóri matvöru í Hagkaup-
um.
Neytendur eru hvattir til að skila
þessu spínati aftur til verslana og
fá það endurgreitt. Spínatið var
afturkölluð í Bandaríkjunum, Kan-
ada og Mexíkó og enn er verið að
rannsaka hvort um sýkingu sé að
ræða.
Spínatið er talið vera valdur að
alvarlegri sýkingu í Bandaríkjun-
um sem nefnist e.coli. Bakterían
getur haft alvarleg veikindi í för
með sér en hefur ekki borið mikið
á henni hérlendis. Einkenni sýk-
ingarinnar er mismunandi en
meðal þeirra eru niðurgangur og
slæmir kviðverkir.
„Það er enn verið að greina rót
vandans í Bandaríkjunum og
bíðum við átekta eftir svörum frá
aðilum þar,“ segir Sigurður en nú
þegar hafa versluninni borist þó
nokkrar fyrirspurnir varðandi sýk-
inguna frá viðskiptavinum. - aþ
Hugsanleg bakteríusýking í spínati sem selt er í Hagkaup:
Bandarískt spínat innkallað
HUGSANLEGUR SÝKINGARVALDUR
Ferskt spínat frá Bandaríkjunum var
afturkallað í verslunum landsins vegna
hugsanlegrar bakteríusýkingar sem ber
nafnið Enterohemoragísk E.coli (EHEC).
SKEGGJAÐUR BJÓRGÆÐINGUR Þátt-
takandi í Oktoberfest í München
brosir breitt fyrir ljósmyndarann á
hinni hefðbundnu búningasýningu
sem fylgir hátíðinni. Bjórdrykkjuhá-
tíðinni lýkur ekki fyrr en þriðja októ-
ber næstkomandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KIRKJUMÁL Guðmundur Sigurðs-
son, organisti í Bústaðakirkju og
formaður Organistafélags Íslands,
segir það áfall fyrir starfsstéttina
í heild að Hilmari Erni Agnarssyni
hafi verið sagt upp störfum sem
organista í Skálholtskirkju en þar
hefur hann starfað í fimmtán ár.
„Þessar fregnir koma eins og blaut
tuska framan í stéttina í heild.
Organistar hafa almennt áhyggjur
af starfsöryggi sínu eftir að þess-
ar fréttir bárust og stéttin er í
uppnámi,“ sagði Guðmundur, en
stjórn Organistafélagsins hittist á
fundi í kvöld til þess að ræða
fregnirnar úr Skálholti.
Eins og greint var frá í Frétta-
blaðinu í gær hefur stjórn Skál-
holts ákveðið að koma til fram-
kvæmda skipulagsbreytingum
sem gera ráð fyrir að ráðinn verði
tónlistarstjóri í fullt starf og starf
organista þar með lagt niður.
Organistalaust verður því í
Haukadalskirkju, Bræðratungu-
kirkju og Torfastaðakirkju eftir
þrjá mánuði, eða þegar uppsagn-
arfresti Hilmars Arnar lýkur.
Sigurður Sigurðarson, vígslu-
biskup og formaður stjórnar Skál-
holts, segir stjórnina hafa boðað
breytingarnar í samráði við sókn-
arnefndir í héraðinu. „Það hefur
verið í gildi samningur sem geng-
ið hefur út á það að standa í sam-
einingu að starfi organista fyrir
sóknirnar í prestakallinu. Skál-
holtsstaður hefur borgað yfir 80
prósent af kostnaðinum en sókn-
irnar og sveitarfélagið um 20 pró-
sent. Ákveðið hefur verið að segja
upp samningnum og um leið að
leggja niður starf organista.
Ákvarðanir um þetta voru teknar í
samráði við sóknarnefndirnar í
héraðinu. Megin skipulagsbreyt-
ingin er fólgin í því að hafa tónlist-
armann í fullu starfi hér á svæð-
inu, til þess að efla starfsemi,“
sagði Sigurður.
Ingólfur Guðnason, formaður
sóknarnefndar Skálholtssóknar,
segir það af og frá að sóknarnefnd-
ir hafa verið hafðar með í ráðum
varðandi skipulagsbreytingarnar.
„Við vorum boðuð á fund 14. sept-
ember og þar var tilkynnt um
breytingarnar. Þá var búið að
segja Hilmari Erni upp störfum
og okkur tilkynnt um breytingar.
Ég staðhæfi það, að samráð um
breytingar á starfi organistans, og
þar með tónlistarstarfi í héraðinu,
var ekki fyrir hendi.“
Í greinargerð um tónlistarstarf
í Skálholti sem Hörður Áskelsson,
söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar,
vann í september síðastliðnum, og
Fréttablaðið hefur undir höndum,
segir hann að „ekki verði séð að
þeir fjármunir sem kirkjan leggur
sérstaklega til þessa starfsþáttar
skili sér í blómlegra starfi í Skál-
holtskirkju en almennt gerist.“
Þá segir einnig í greinargerð-
inni, þar sem farið er nokkuð
nákvæmlega ofan í tónlistarstarf í
Skálholti, að „æskilegt sé að hraða
þessari vinnu ef að mögulegar
breytingar á fyrirkomulagi Sum-
artónleikanna og samstarfi Tón-
skóla þjóðkirkjunnar, Skálholts-
skóla, Listaháskólans og Háskóla
Íslands eiga að koma til fram-
kvæmda á árinu 2007.“
Hörður sagðist ekki hafa komið
að skipulagsbreytingunum. „Ég
hef tekið þátt í umræðum um
skipulagsbreytingar. En ég tók
ekki þátt í að koma þessum breyt-
ingum í framkvæmd, með neinum
hætti.“ magnush@frettabladid.is
Eins og blaut tuska
framan í organista
Formaður Organistafélagsins segir fréttir um uppsögn organistans í Skálholti
vera áfall fyrir stéttina. Vígslubiskupinn í Skálholti segir skipulagsbreytingar
boðaðar í samráði við sóknarnefndir. Því neitar formaður Skálholtssóknar.
ÚR SKÁLHOLTI Deilt er um skipulagsbreytingar í Skálholti en sóknarnefnd telur stjórn
Skálholts hafa ákveðið einhliða að gjörbreyta starfi í Skálholti. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN