Fréttablaðið - 18.09.2006, Side 13
MÁNUDAGUR 18. september 2006 13
vaxtaauki!
10%
Frábært TILBOÐ! Kynntu þér málið á spron.is
A
RG
U
S
/
06
-0
47
2
TÓKÝÓ, AP Hæstiréttur í Japan
hafnaði á föstudag áfrýjunar-
beiðni frá Shoko Asahara,
leiðtoga trúarsafnaðarins Aum
Shinrikyo, sem hlaut dauðadóm
fyrir eiturefnaárás í neðanjarðar-
lestum Tókýóborgar árið 1995.
Áfrýjunarmöguleikar Asahar-
as eru þar með að mestu tæmdir
og verður dauðadóminum þá
fullnægt innan hálfs árs. Þó geta
lögmenn Asaharas enn freistað
þess að krefjast nýrra réttarhalda
eða lagt fram neyðarbeiðni um
áfrýjun.
Taugagasið sarín var notað í
árásunum, sem urðu 27 manns að
bana. - gb
Leiðtogi hryðjuverkasafnaðar:
Dauðadómur
var staðfestur
SHOKO ASAHARA Verður líklega tekinn
af lífi innan hálfs árs.FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SVÍÞJÓÐ Frambjóðandi í sjöunda
sæti á framboðslista Folkpartiet
fyrir sveitarstjórnarkosningarnar
í Svíþjóð um helgina, fæddist
drengur en hefur farið í leiðrétt-
ingaraðgerð á kyni.
Svo óvenjulega vill til að
frambjóðandinn, sem heitir
Annika Stacke, er prestur í
Lammhult í Svíþjóð. Annika er
ein af fáum frambjóðendum í
heiminum sem hafa farið í
leiðréttingu á kyni jafnframt því
að starfa sem prestur.
Annika býr í biblíubeltinu
miðju, en svo kallast svæðið þar
sem kristin trú er einna sterkust í
Svíþjóð. Á þessu svæði er mikil
andstaða gegn kvenkyns prestum.
Stacke segist samt sem áður
finna fyrir mikilli velvild. - ghs
Kosningarnar í Svíþjóð:
Kynskiptingur í
framboði
PAKISTAN Mannréttindasamtök í
Pakistan hafa krafist þess að
stjórnvöld ógildi íslömsk nauðgun-
arlög sem eru við lýði í landinu.
Samkvæmt núverandi lögum þarf
kona að framvísa fjórum vitnum
til þess að sanna að sér hafi verið
nauðgað. Brot af þessu tagi eiga
sér sjaldnast stað á almennings-
vettvangi og því er nánast
ómögulegt fyrir konur að fá
tilskilinn fjölda vitna til að koma
fram. Lögin voru sett árið 1979 af
fyrrum herforingjastjórn landsins
sem tilraun til að auka vægi
íslamstrúar í pakistönsku samfé-
lagi. Samtökin telja að lögin sverti
ímynd Pakistans út á við. - þsj
Pakistanskir aðgerðarsinnar:
Vilja afnema
nauðgunarlög
PAUL WOLF-