Fréttablaðið - 18.09.2006, Page 16

Fréttablaðið - 18.09.2006, Page 16
 18. september 2006 MÁNUDAGUR16 nær og fjær „ORÐRÉTT“ Árleg sýning eigenda- og rækt- endafélags landnámshænsna var haldin á Hrafnagili í ágúst. Alls voru sýndir um sjötíu fuglar. Um sjö hundruð manns tóku þátt í vali á fallegustu fuglunum og voru úrslit þau að Grána þótti falleg- asta hænan en Jónsi í svörtum fötum fallegasti haninn. Verð- launahænan er í eigu Atla Vigfús- sonar á Laxamýri en Jónsi í svört- um fötum er í eigu Einars Gíslasonar á Brúnum í Eyjafirði. Dætur Einars nefndu hanann eftir söngvaranum góðkunna, sem er í miklu uppáhaldi. „Þetta er afskaplega mikill heiður fyrir hanann,“ segir Einar og bætir við: „Jónsi deilir kon- ungsdæmi sínu og 30 hænum með öðrum hana, Edda, sem er nefndur eftir nágrannakonu minni. Jónsi er miklu meira númer en Eddi og það hefur auðvitað ekkert minnk- að í honum fílingurinn eftir kosn- inguna.“ Einar, sem kennir við Hrafna- gilsskóla, segir hænsnaræktunina aðallega vera skemmtilegt hobbí. „Það er þó staðreynd að það eru miklu betri eggin úr landnáms- hænunum og svo eru þær miklu viljugri að liggja á en ræktuðu hænsnin. Það er búið að rækta alla móðurtilfinningu úr þeim.“ Á landnámshænsnasýningunni voru hanar einnig raddmældir. Myndaðist gífurlegur hávaði á sýningarsvæðinu þegar fimmtán hanar göluðu hver í kapp við annan. Af mörgum kröftugum hönum reyndist Bubbi raddsterk- asti hani landsins. Gal hans mæld- ist 96 desibil, sem er svipaður hávaði og inni á meðal diskóteki. Eigandi Bubba er Ingi V. Gunn- laugsson í Ólafsfirði. - glh Jónsi fallegastur en Bubbi galar hæst EINAR GÍSLASON MEÐ JÓNSA Í SVÖRTUM FÖTUM Fallegasti hani landsins í gífurlegum fíling. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓHANNA HARÐARDÓTTIR „Það er nú svo sem ekkert að frétta,“ segir Steingrímur Randver Eyjólfs- son, smiður og stjarna þáttanna Íslenski piparsveinninn sem Skjár einn sýndi síðastliðinn vetur. „Maður er nú bara hér á Egilsstöð- um og það er nóg að gera.“ Stein- grímur flutti aftur til æskuslóðanna fyrir austan eftir að hafa búið á Akureyri um hríð og er nú sjálfstætt starfandi smiður. „Ég hafði nú engan tíma fyrir sumarfrí. Maður er búinn að vera mikið í að byggja sólpalla og allskonar fínerí.“ Eins og allir landsmenn, eða að minnsta kosti allir Austfirðingar, fylgdist Steingrímur stíft með ævintýrum Magna í Ameríku. „Hann stóð sig eins og hetja og ég er bara nokkuð sáttur við nið- urstöðuna. Ég held hann fái svakaleg tækifæri út á þetta og hann er búinn að meika það, allavega á Íslandi.“ Þekkir svo piparsveinninn Magna? „Já já, við erum jafnaldrar og vorum saman í bekk á Eiðum. Fínn strákur.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? STEINGRÍMUR RANDVER EYJÓLFSSON SMIÐUR Var í bekk með Magna Sjaldan eða aldrei hefur annað eins framboð verið á störfum á Íslandi. Atvinnu- leysistölur eru í sögulega lágmarki, öll blöð eru full af atvinnuauglýsingum og í gluggum fjölmargra versl- ana og veitingastaða má finna skilti þar sem auglýst er eftir starfsfólki. Aldrei áður í Íslandssögunni hefur annað eins ástand ríkt. „Hver einasti kjaftur sem nennir að vinna getur valið úr störfum,“ fullyrðir Valgeir Ólafsson versl- unarstjóri í Intersport í Smára- lind. Hann segist vera heppinn og er með fullmannaða búð eins og er. „Við vorum með skilti úti í glugga en það skilaði engu. Ef maður fær engin viðbrögð við auglýsingum þá verður maður bara að leita í önnur fyrirtæki og hreinlega yfirbjóða í starfsfólk. Ég hef ekki þurft þess sjálfur en þetta gera margir.“ Í Kringlunni, Smáralind og Smáratorgi mátti í gær sjá auglýs- ingar fyrir eftirfarandi störf: Hag- kaup, Bónus og Rúmfatalagerinn vantar fólk á kassa, áfyllingu og vörumóttöku, Dótabúðina og barnaskemmtistaðinn Veröldina okkar vantar barngott fólk, fata- búðirnar Monsoon, Adams og Ice in a Bucket vantar fólk, og ef þú vilt vinna í veitingageiranum getur þú fengið vinnu hjá bakaríi Jóa Fel, hjá Rikka Chan, Subway, Energia og T.G.I. Fridays. Í öllum tilfellum koma bæði hlutastarf og fullt starf til greina. Og þetta er bara toppurinn á ísjakanum því þegar stjórar í búðum án skilta voru spurðir var svarið yfirleitt það að „jú, við erum alltaf að leita að góðu fólki“. „Við í fatabransanum erum betur settir en þeir sem eru í matvöru- eða veitingahúsabransanum,“ segir Valgeir í Intersporti. „Það er greinilega ekki eins lásí að vinna hjá okkur og á hamborg- arastað, hvað þá að sitja á kassa í stórmarkaði. Svo skipta launin líka öllu. Þeir sem vantar alltaf fólk eru bara ekki að borga eins vel og hinir, þetta er nú ekki flóknara en það.“ Gríðarleg ásókn er í skóla- krakka til starfa og í mörgum framhaldsskól- um hafa menn ekki undan að rífa niður atvinnuaug- lýsingar sem hengd- ar eru upp í leyfisleysi. Í bakara- bransanum heyrast svo raddir um að ríkið eigi að hætta að skerða bætur til öryrkja og ellilífeyris- þega svo þeir komi frekar út á vinnumarkaðinn. Hverjar eru svo afleiðingar þessa atvinnuástands? Starfsfólk skiptir gríðarlega oft um vinnu, það verður alltaf yngra og yngra og þjónustan versnar. Fjölmörg dæmi eru um versnandi þjónustu, til dæmis eitt af pari sem fór á ónefndan veitingastað og spurði hvort það væri til púrtvín. Bráð- ung gengilbeinan fór á barinn, skoðaði á flöskurnar til að gá hvort eitthvað af þeim innihéldi púrtvín og kom svo til baka með tvö glös af púrtvíni – með klökum í kók. gunnarh@frettabladid.is Atvinnuleysi – hvað er nú það? VALGEIR ÓLAFSSON Í INTERSPORTI Segir fyrirtæki yfirbjóða starfsfólk hver annars í leit að vinnuafli. VILTU VINNA HJÁ OKKUR? Nú er allt morandi í atvinnuauglýsingum í búðargluggunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GLH „Lágkúran sem fólk getur farið niður á ríður vart við ein- teyming,“ segir Magnús H. Skarphéðins- son, formaður Sálarannsókn- arfélagsins og dýravinur, vegna frétta af dýravændis- húsinu í Danmörku. „Þetta hlýtur að varða við lög í öllum siðmennt- uðum löndum, eða ætti a.m.k. að gera það. Allt venjulegt heiðarlegt fólk hlýtur að fyllast miklum dapur- leika við svona fréttum.“ Magnús bætir við: „Þetta er hins vegar hinn endinn á hinu mikla kynlífsfangelsi sem Vesturlanda- búar eru í og birtist í allskyns afbrigðilegheitum í kynhugmynd- um og kynlífi. Flestir fá sjaldan eða aldrei næga kynferðislega útrás í lífi sínu og enn fleiri eru með fordóma, ranghugmyndir og sektarkennd yfir eðlilegri kynlöng- un sinni, kynórum og kynhneigð. Þessvegna leitar náttúran út í þessi öngstræti eins og meðal annars þarna birtist.“ SJÓNARHÓLL DÝRAVÆNDISHÚS Í DANMÖRKU MAGNÚS H. SKARPHÉÐINSSON DÝRAVINUR ■ Ketill Larsen sýnir nú blóma- og landslagmyndir sínar á Mokka. Hann er með afkastamestu málur- um og hefur málað 1.500 myndir á þessu ári. Vincent Van Gogh skildi aðeins eftir sig 900 málverk og 1100 teikningar. Ketill er þegar búinn að selja nokkrar myndir, en hann er með tvö föst verð; 20 og 35 þúsund. Vincent seldi hins vegar bara eina mynd á meðan hann var lif- andi. Sú seldist á 400 franka árið 1890, eða sirka 70 þús- und krónur á núgildi. SAMANBURÐUR: KETILL OG VAN GOGH Hinn endinn á kynlífsfangelsi Vesturlandabúa Sjálfbærar byggingar á Íslandi Staðan í dag og framtíðarhorfur Málþing haldið á vegum Sesseljuhúss og Orkuseturs, miðvikudaginn 20. september 2006, kl. 12.30-17.00 Dagskrá: 12:30-13:30 Varis Bokalders, arkitekt. Ekokultur Konsulter AB, Stokkhólmi. What is sustainable building and what does it look like? 13:30-13:55 Árni Friðriksson, arkitekt. ASK arkitektar. Sjálfbær hús – nokkur íslensk dæmi 13:55-14:20 Sigurður Harðarson, Batteríið arkitektar. Húsahönnun og veðurfar - þáttur sólar og vinds 14:20-14:50 Kaffi . Sýningin Að byggja og búa í sátt við umhverfi ð er opin gestum. 14:50-15:15 Björn Marteinsson, sérfræðingur. Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins og dósent við verkfræðideild HÍ. Sjálfbærar byggingar - hvaða kröfur gerir slíkt á íslenskum markaði? 15:15-15:40 Daði Ágústsson, Ljóstæknifélag Íslands Framtíðarljósgjafi nn LED - Ljóstvisturinn 15:40-16:00 Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs. Orkunotkun húsa – nýjar lausnir. 16:00-17:00 Fyrirspurnir og umræður. Fundarstaður: Sesseljuhús umhverfi ssetur, Sólheimum Fundarstjóri: Bergþóra Hlíðkvist Skúladóttir, forstöðumaður Sesseljuhúss. Aðgangur er ókeypis. Skráning: Sesseljuhús, s. 480 4470, bergthora@solheimar.is Orkusetur, s. 569 6085, sif@os.is Samfylking skiptir um skoðun „Þegar húsfyllir varð á tónleikum heimsfrægra tón- listarmanna í Laugardalshöll í janúar síðastliðnum skipti Samfylkingin skyndilega um skoðun.“ SIGRÍÐUR Á. ANDERSEN LÖGFRÆÐINGUR SKRIFAÐI UM- RÆÐUGREIN Í GÆR ÞAR SEM HÚN GAGNRÝNIR SAMFYLKINGUNA FYRIR AÐ SKIPTA UM SKOÐUN Í UMHVERFISMÁLUM EFTIR SVEIFL- UM ALMENNINGSÁLITSINS. Ætlaði að leggja fyrir sig körfubolta „Það var planað að ég færi í körfuna. Ég ætlaði til Ameríku í háskóla og spila körfubolta með.“ EYJÓLFUR SVERRISSON, LANDS- LIÐSÞJÁLFARI Í KNATTSPYRNU, SEGIR Í VIÐTALI VIÐ FRÉTTABLAÐIÐ Í GÆR AÐ HANN HAFI NÆSTUM LAGT KÖRFUBOLTANN FYRIR SIG Í STAÐ KNATTSPYRNU. Í STAÐINN SKORAÐI HANN 4 MÖRK Í UNGLINGALANDSLEIK OG FÓR Í ATVINNUMENNSKU Í ÞÝSKALANDI.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.