Fréttablaðið - 18.09.2006, Page 24
18. september 2006 MÁNUDAGUR4
Elín María Björnsdóttir er
landsmönnum að góðu kunn
úr Brúðkapsþættinum Já. Hún
hefur nú söðlað um sig og tekið
við rekstri á nýrri og stórglæsi-
legri 3.000 fermetra heimilis-
vöruverslun á Smáratorgi.
„Verslunin heitir Egg en í henni
verður hægt að kaupa allt fyrir
heimilið, frá servíettum upp í gólf-
efni,“ segir Elín um nýju búðina
þar sem vöruúrvalið er hreint
ótrúlegt og virðist eiga sér fáa
líka.
Spurð út í hvernig sérkennilegt
heiti búðarinnar sé til komið, seg-
ist Elín eiga hugmyndina á bak við
það. „Hugmyndin að heitinu er ein-
faldlega sú að maður fái allt sem
til þarf innan úr einu eggi,“ útskýr-
ir hún. „Fyrir utan það er eggið
fallegt og hefur skírskotanir í
hönnun. Svo er þetta eftirminni-
legt heiti sem hefur yfir sér heim-
ilislegan blæ.“
Egg er í eigu Húsasmiðjunnar
en er þrátt fyrir það ólík öðrum
verslunum hennar að sögn Elínar.
„Ég get fullyrt að hún verður með
allt öðru sniði,“ segir hún. „Úrval-
ið í gjafavöru verður frábrugðið
og búsáhaldadeildin töluvert
stærri en í hinum búðunum. Húsa-
smiðjan er náttúrlega bygginga-
vöruverslun á meðan einblínt er á
úrval gólfefna, heimilistækja, raf-
tækja, ljósa og svo framvegis í
Egg. Engu að síður fæst þar sama
gólfefni svo dæmi sé tekið, en í
meira úrvali.“
Auk góðs vöruúrvals geta versl-
unargestir fengið ráðgjöf á staðn-
um og vöru sérpantaða sé hún ekki
til. „Við erum að auka valmögu-
leika fyrir viðskiptavini Húsa-
smiðjunnar og bæta þá,“ segir
Elín. „Húsasmiðjan hefur stund-
um haft það orð á sér að vera stíluð
inn á karla, en með Eggi má
kannski segja að við séum að mæta
þörfum kvenna. Það er ekki þar
með sagt að karlar finni ekki ýmis-
legt við sitt hæfi, en sem dæmi um
það verður vel útbúinn málnigar-
bar í búðinni og glæsilegar inn-
réttinga- og verkfæradeildir. Svo
ekki sé talað um góða þjónustu.“
Með rekstri Eggs hefst nýr
kafli í lífi Elínar sem hefur stýrt
Brúðkaupsþættinum Já, en hann
hefur verið sýndur um nokkurt
skeið á Skjá einum við töluverðar
vinsældir. Sú spurning vaknar
hvort vistaskiptin boði brotthvarf
hennar af skjánum? „Ég hef byggt
þáttinn upp frá grunni þannig að
hann er orðinn svolítill hluti af
mér, svo hver veit nema ég birtist
aftur,“ segir Elín. „Annars hef ég
enga ákvörðun tekið og læt mér í
bili nægja að halda utan um taum-
ana í versluninni.“
Aðspurð hvort viðskiptavinir
megi búast við að finna sérstaka
deild helgaða brúðkaupum í versl-
uninni, hlær Elín og segir að það
verði vissulega tekið á móti brúð-
hjónum með opnum örmum. „Við
munum að sjálfsögðu sinna þörf-
um brúðhjóna sem til okkar leita
líkt og öðrum verslunargestum og
það er aldrei að vita nema opnuð
verði sérstök brúðkaupsdeild í
framtíðinni,“ bætir hún við.
roald@frettabladid.is.
Verslunin Egg býður upp
á endalausa möguleika
Falleg mynstur einkenna margar af
vörunum í versluninni.
Úrvalið er hreint ótrúlegt og möguleikarnir endalausir.
Í Egg fæst nánast allt til að innrétta heimilið og fegra út frá eigin smekk.
Elín hefur um árabil stýrt Brúðkaupsþættinum Já. Hún hefur nú tekið að sér verslunarrekstur á Egg, nýrri stórverslun í Kópavogi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Öryggiskerfi gefa húseigendum
vísbendingar um þjófa, gas og
reyk. Slík kerfi gefa góða raun í
sumarbústöðum.
Með haustinu fækkar þeim stund-
um sem fólk ver í sumarbústöðum
sínum. Til að minnka líkur á að
eldur eða óboðnir gestir fari þar
um verður æ algengara að fólk
setji upp viðvörunarkerfi í bústöð-
unum. Meðal þeirra sem selja þau
er fyrirtækið Ólafur Gíslason.
Birgir Harðarson er starfsmaður
þar og fræddi Fréttablaðið um
virkni slíkra kerfa.
„Fólk getur fengið kerfi með
úthringibúnað í símana sína, bæði
heimasíma og GSM. Ef einhver
kemur inn í húsið fer kerfið í gang
og hringir í þau númer sem sett
hafa verið inn. Hægt er að setja
inn fjögur símanúmer sem fólk
raðar í fyrirfram ákveðna röð og
ef það fyrsta svarar ekki flytjast
boðin yfir í næsta og þannig koll
af kolli. Kerfið gerir greinarmun á
því hvort reykskynjari fer í gang,
hvort rafmagnið fer af, hvort um
innbrot er að ræða eða hvort gas
fer að leka. Það bæði talar og send-
ir SMS boð. Þau skilaboð hafa eig-
endurnir eða aðrir á þeirra vegum
talað inn á band. Það eru þau boð
sem þeir vilja fá við viðkomandi
tilfelli. En það verður að vera raf-
magn í húsinu til að halda kerfinu
gangandi.“
Nú viljum við vita hvað svona
útbúnaður kostar og því svarar
Birgir samviskusamlega. „Það er
misjafnt hvaða skynjara fólk vill
hafa. Það verður alltaf að hafa
stjórnborðið með úthringibúnað-
inum og með kerfi fyrir GSM síma
kostar það 42.092 krónur. Við það
þarf þráðlaust lyklaborð sem kost-
ar 5.255. Þetta er upphaflegi bún-
aðurinn. Síðan er misjafnt hvaða
skynjara fólk tekur. Þeir kosta á
bilinu 5 til 7 þúsund. Gasskynjar-
inn er dýrastur, 6.792. Ef allir
skynjararnir eru keyptir kostar
kerfið 65.343 krónur en þar með
er ýmsum áhyggjum bægt frá og
þá getur fólk sofið rólegra en
ella.“ gun@frettabladid.is
Til varnar eldi og
óþjóðalýð
Margir hafa sett upp viðvörunarkerfi í sumarbústaði sína sem gefur til kynna ef
einhver vá er á ferð.
Birgir Harðarson með Jablotron viðvörunarkerfið sem gefið hefur góða raun.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN