Fréttablaðið - 18.09.2006, Side 60
18. september 2006 MÁNUDAGUR40
Nokkuð hefur borið á því að
fólk hafi skilað lóðum sem það
hefur fengið úthlutað í Hafnar-
firði.
Umræða um brotlendingu á fast-
eignamarkaði, svartsýnar verð-
bólguspár og aukið framboð á nýju
húsnæði hefur gert mörgum selj-
endum erfitt fyrir að losna við
eignir sínar. Í kjölfar alls þessa
hefur nokkuð borið á því að úthlut-
uðum lóðum í nýjum hverfum
Hafnarfjarðar hafi verið skilað.
Haft er eftir fulltrúa skipulags-
og byggingasviðs Hafnarfjarðar
af heimasíðu Víkurfrétta að jafn-
vel sé von á að fleiri skili inn
lóðum á næstunni. Nú þegar hefur
fimm lóðum í þriðja hluta Áslands-
hverfis verið skilað, eða vilyrðis-
hafar hætt við. Upphaflega voru
85 lóðir í boði en 68 einbýlishúsa-
lóðum var úthlutað síðastliðið vor.
Af þeirri 41 lóð er úthlutað var í
lok júní í Áslandshverfi hafa átta
aðilar skilað inn lóðum eða hætt
við. Einnig var 50 lóðum útlutað á
vissum svæðum á Völlum og
Áslandi í júnímánuði og hefur átta
þeirra verið skilað inn aftur.
Margar lóðir liggja enn lausar
og þrátt fyrir að sumir skili inn
sínum lóðum er eftirspurnin enn
til staðar. - jóa
Byggingar-
lóðum skilað
Rúmlega 20 úthlutuðum lóðum í
Áslands- og Vallahverfi í Hafnarfirði
hefur verið skilað aftur til skipulags- og
byggingasviðs.
Magnús Ver Magnússon býr eins og er í Hafnarfirði þar
sem nándin við hraunið er mikil. Draumurinn væri þó
að búa á Arnarnesi en hann vildi taka part af Hafnarfirði
með sér. „Ég er voða hrifinn af hrauni, mosa, sandi og
svoleiðis,“ segir Magnús. „Þannig vildi ég hafa garðinn
minn í bland við hellur og góðan sólpall.“
Húsið sjálft ætti ekki að vera neinn risi, rétt 500
fermetrar svo það gæti rúmað helsta áhugamálið. „Að
sjálfsögðu yrði tækjasalur í húsinu og spa, gufa, heitur
pottur og allt svoleiðis,“ segir Magnús, en engan þarf
að undra að þessi kraftajötunn vilji hafa lóð og stangir
í einu horni hússins. Hann vill líka hafa húsið á einni
hæð og finnst algjör óþarfi að stafla hæðunum upp.
Hverskonar bíll ætti að vera í innkeyrslunni kallar
á meiri heilabrot hjá Magnúsi. „Nýi Land Cruserinn er
ægilega flottur, en svo er ég líka mjög hrifinn af Porsche
Cayenne,“ segir Magnús sem greinilega metur aflið
mikils, hvort sem það er í eigin líkama eða undir húddi
bíla.
DRAUMAHÚSIÐ MITT MAGNÚS VER MAGNÚSSON AFLRAUNAMAÐUR
Hraun, sandur og mosi í garðinum
Steinsteypuhúsið var reist
árið 1915 en Einar Ingibergur
Erlendsson á heiðurinn af
hönnun þess. Mikill bruni
varð í miðbæ Reykjavíkur
sama ár og hefur verið sagt
að svokölluð steinsteypu-
öld hefjist í húsbyggingum
bæjarins eftir það. Mörg steinsteypuhúsanna báru í fyrstu einkenni timb-
urhúsa, en Einar mun fyrstur manna hafa aðlagað steinsteypt íbúðarhús að
„bárujárnsveitser“ og er Suðurgata 39 elst steinsteypuhúsa frá hans hendi
undir þeim áhrifum. Húsið er með steinsteypta útveggi, en þakstíll og innra
timburverk undir áhrifum frá fyrirkomulagi timburhúsa, því það er tvískipt
með miðjugangi og stiga. Húsið er nú töluvert breytt að innan, og sérstak-
lega gluggarnir. Timbursvalir ásamt tröppum hafa verið fjarlægðar og múrað
yfir steinmynstur í sökkli. Trévirki hefur verið endurbætt. Húsafriðunarnefnd
ríkisins hefur nú aðsetur í húsinu. (Heimild: Íslensk byggingararfleifð I og II,
Arkitektatal, Þjóðsaga, 1997 og Jón Pálsson hjá Húsfriðunarnefnd).
VALHÖLL VIÐ
SUÐURGÖTU 39
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
28/7-
3/8
107
4/8-
10/8
67
11/8-
17/8
90
18/8-
24/8
83
25/8-
31/8
111
1/9-
7/9
121