Fréttablaðið - 18.09.2006, Side 61

Fréttablaðið - 18.09.2006, Side 61
MÁNUDAGUR 18. september 2006 21 SENDIÐ OKKUR LÍNU Við hvetjum lesendur til að senda okkur línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagn- orð. Eingöngu er tekið á móti efni sem sent er frá Skoðanasíðunni á visir.is. Þar eru nánari leiðbein- ingar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðrétt- inga og til að stytta efni. Umræðan Opið bréf til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar Ég skrifa þér þetta bréf vegna frétta um að til standi að loka Nýju fréttastofunni, NFS. Og bið þig um að gera það ekki. Tjáning- arfrelsið tryggir öllum rétt til þess að tjá skoðanir sínar; láta rödd sína heyrast, mér, þér og þjóðinni allri. Þjóðin þarf frjálsa og óháða fjölmiðla til þess að tjáningar- frelsið sé virkt. Án þess virkar lýðræðið ekki. Án þess er stjórn- völdum ekki veitt aðhald, án þess þagna raddir sem eiga og þurfa að heyrast. Á undanförnu ári hafa allar raddir hljómað á NFS. Þverskurð- ur af þjóðinni hefur sagt þar skoð- un sína á þjóðfélagsmálum. Þaðan ganga stjórnmálamenn allra flokka inn og út allan liðlangan daginn. Þar tala femínistar og frjálshyggjumenn, fátækir og ríkir, börn og fullorðnir. Nýja fréttastofan er suðupottur óþrjót- andi skoðanaskipta; vettvangur þar sem ólíkir hagsmunahópar og einstaklingar kynna sjónarmið sín og rökstyðja mál sitt í kapp við aðra sem hafa aðra sannfæringu. Slíkt upplýsingaflæði, slík skoð- anaskipti eru grunnstoðir lýðræð- issamfélagsins. Það sem við gerum Í fréttum NFS er stunduð vönduð gagnrýnin þjóðfélagsrýni þar sem sanngirni, hlutleysi og fagleg vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi. Með Kompási, eina fréttaskýr- ingaþætti landsins, hafa þjóðfé- lagsmein verið afhjúpuð; brota- lamir heilbrigðiskerfis hafa verið dregnar fram í dagsljósið með svo afgerandi hætti að brugðist hefur verið við því strax, ömurleiki fíkniefnaheimsins sýndur í heild sinni svo bregðast megi við svo ekki sé minnst á forvarnargildi slíkrar umfjöllunnar, foreldrar og yfirvöld vöruð við hættunni sem hljótast af samskiptum barna á netinu við ókunnugt fólk. Fram- ganga NFS í aðdraganda sveitar- stjórnarkosninga var lofuð af fjöl- miðlarýnum helstu dagblaða landsins og sveitarstjórnarmönn- um. NFS sýndi beint frá Hinsegin dögum, NFS sýndi beint frá Menn- ingarnótt. Eldri borgarar, sem ekki komust á hátíðarhöldin, skrif- uðu í blöðin og spurðu: hvar er RÚV búið að vera öll þessi ár? Edward R. Murrow, sem nefnd- ur hefur verið faðir útvarps- og sjónvarpsfréttamennsku, sagði það skyldu þeirra sem stjórna sjónvarpi að sýna heiminn eins og hann er. Aðrir geta sinnt því að sýna hann eins og hann er ekki. NFS gerir þetta. Við erum í stað- reyndum; aðrir í afþreyingu. Við göngum lengra en áður hefur verið gert í heiminum öllum í því að blanda saman rit- og myndmáli á neti og í síma, fréttum í útvarpi og sjónvarpi. Þetta er frumkvöðla- starf. Fjölmiðlar framtíðarinnar verða eins og NFS. Starfsfólk NFS Á NFS starfa hátt í 90 manns sem trúa á verkefnið. Þarna starfa klipparar og tækni- stjórar, fréttamenn og dagskrárframleiðend- ur. Fólk sem er með eins árs starfsaldur og fólk sem hefur unnið á þessari fréttastofu í 20 ár. Ég stóð í fyrsta sinn, frá því ég hóf störf við þetta verk- efni, fyrir framan þetta góða fólk á föstu- dag og gat ekki svarað spurningum þeirra. Vissi ekki hvað yrði. Og veit ekki enn. Ég veit að fólkið á NFS vinnur langan og strangan vinnudag. Ég veit að það vinnur fleiri daga í mánuði en kollegar þeirra á RÚV. Ég veit að mörgum hefur fundist það freistandi að ganga til liðs við RÚV; þurfa að vinna 12 daga í mánuði á fullum launum. En þó ekki gert það. Ég veit af metnaði þess og krafti, ég veit af þori þess, einbeit- ingu og dugnaði, Ég veit líka að allt þetta fólk fær vinnu annars staðar. Þetta er allt hæfileikafólk; fag- menn fram í fingur- góma. Þetta er besti hópur sem ég hef starfað með. Og hann er tilbú- inn til að berjast fyrir NFS. Okkur var sagt að við fengjum tvö til þrjú ár til þess að láta NFS sanna sig. Gefðu okkur tvö. Nú um mánaðamótin stóð til að við færum í dreifingu um allt suð- vesturhornið. Ekki loka sjopp- unni áður en búið er að opna hana til fulls. Í fullri opinni dreifingu er þetta viðskiptahugmynd sem gengur upp. En það tekur meiri tíma en 10 mánuði að sýna það. Þetta vita nágrannar okkar í Dan- mörku og Noregi sem undirbúa nú sambærilega miðla en ætla þeim að skila hagnaði eftir þrjú ár. Kæri Jón, þú ræður þessu á endanum. Það vita allir. Taktu slaginn með okkur. Róbert Marshall, forstöðumaður NFS. Kæri Jón RÓBERT MARSHALL ���� ����������� ��������� ������� ����� �������������� ����� ����������������� ���� ���������� ������� ������������� ��� ���������� ��� ��������� ��

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.