Fréttablaðið - 18.09.2006, Blaðsíða 61
MÁNUDAGUR 18. september 2006 21
SENDIÐ OKKUR LÍNU
Við hvetjum lesendur til að senda
okkur línu og leggja orð í belg um
málefni líðandi stundar. Greinar
og bréf skulu vera stutt og gagn-
orð. Eingöngu er tekið á móti efni
sem sent er frá Skoðanasíðunni
á visir.is. Þar eru nánari leiðbein-
ingar. Ritstjórn ákveður hvort efni
birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða
í báðum miðlunum að hluta eða
í heild. Áskilinn er réttur til leiðrétt-
inga og til að stytta efni.
Umræðan
Opið bréf til Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar
Ég skrifa þér þetta bréf vegna frétta um að til standi að loka
Nýju fréttastofunni, NFS. Og bið
þig um að gera það ekki. Tjáning-
arfrelsið tryggir öllum rétt til þess
að tjá skoðanir sínar; láta rödd
sína heyrast, mér, þér og þjóðinni
allri.
Þjóðin þarf frjálsa og óháða
fjölmiðla til þess að tjáningar-
frelsið sé virkt. Án þess virkar
lýðræðið ekki. Án þess er stjórn-
völdum ekki veitt aðhald, án þess
þagna raddir sem eiga og þurfa að
heyrast.
Á undanförnu ári hafa allar
raddir hljómað á NFS. Þverskurð-
ur af þjóðinni hefur sagt þar skoð-
un sína á þjóðfélagsmálum. Þaðan
ganga stjórnmálamenn allra
flokka inn og út allan liðlangan
daginn. Þar tala femínistar og
frjálshyggjumenn, fátækir og
ríkir, börn og fullorðnir. Nýja
fréttastofan er suðupottur óþrjót-
andi skoðanaskipta; vettvangur
þar sem ólíkir hagsmunahópar og
einstaklingar kynna sjónarmið sín
og rökstyðja mál sitt í kapp við
aðra sem hafa aðra sannfæringu.
Slíkt upplýsingaflæði, slík skoð-
anaskipti eru grunnstoðir lýðræð-
issamfélagsins.
Það sem við gerum
Í fréttum NFS er stunduð vönduð
gagnrýnin þjóðfélagsrýni þar sem
sanngirni, hlutleysi og fagleg
vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi.
Með Kompási, eina fréttaskýr-
ingaþætti landsins, hafa þjóðfé-
lagsmein verið afhjúpuð; brota-
lamir heilbrigðiskerfis hafa verið
dregnar fram í dagsljósið með svo
afgerandi hætti að brugðist hefur
verið við því strax, ömurleiki
fíkniefnaheimsins sýndur í heild
sinni svo bregðast megi við svo
ekki sé minnst á forvarnargildi
slíkrar umfjöllunnar, foreldrar og
yfirvöld vöruð við hættunni sem
hljótast af samskiptum barna á
netinu við ókunnugt fólk. Fram-
ganga NFS í aðdraganda sveitar-
stjórnarkosninga var lofuð af fjöl-
miðlarýnum helstu dagblaða
landsins og sveitarstjórnarmönn-
um. NFS sýndi beint frá Hinsegin
dögum, NFS sýndi beint frá Menn-
ingarnótt. Eldri borgarar, sem
ekki komust á hátíðarhöldin, skrif-
uðu í blöðin og spurðu: hvar er
RÚV búið að vera öll þessi ár?
Edward R. Murrow, sem nefnd-
ur hefur verið faðir útvarps- og
sjónvarpsfréttamennsku, sagði
það skyldu þeirra sem stjórna
sjónvarpi að sýna heiminn eins og
hann er. Aðrir geta sinnt því að
sýna hann eins og hann er ekki.
NFS gerir þetta. Við erum í stað-
reyndum; aðrir í afþreyingu. Við
göngum lengra en áður hefur
verið gert í heiminum öllum í því
að blanda saman rit- og myndmáli
á neti og í síma, fréttum í útvarpi
og sjónvarpi. Þetta er frumkvöðla-
starf. Fjölmiðlar framtíðarinnar
verða eins og NFS.
Starfsfólk NFS
Á NFS starfa hátt í 90 manns sem
trúa á verkefnið. Þarna starfa
klipparar og tækni-
stjórar, fréttamenn og
dagskrárframleiðend-
ur. Fólk sem er með
eins árs starfsaldur og
fólk sem hefur unnið á
þessari fréttastofu í 20
ár. Ég stóð í fyrsta
sinn, frá því ég hóf
störf við þetta verk-
efni, fyrir framan
þetta góða fólk á föstu-
dag og gat ekki svarað
spurningum þeirra.
Vissi ekki hvað yrði.
Og veit ekki enn.
Ég veit að fólkið á NFS vinnur
langan og strangan vinnudag. Ég
veit að það vinnur fleiri daga í
mánuði en kollegar þeirra á RÚV.
Ég veit að mörgum
hefur fundist það
freistandi að ganga til
liðs við RÚV; þurfa að
vinna 12 daga í mánuði
á fullum launum. En
þó ekki gert það.
Ég veit af metnaði
þess og krafti, ég veit
af þori þess, einbeit-
ingu og dugnaði, Ég
veit líka að allt þetta
fólk fær vinnu annars
staðar. Þetta er allt
hæfileikafólk; fag-
menn fram í fingur-
góma. Þetta er besti hópur sem ég
hef starfað með. Og hann er tilbú-
inn til að berjast fyrir NFS.
Okkur var sagt að við fengjum
tvö til þrjú ár til þess að láta NFS
sanna sig. Gefðu okkur tvö. Nú
um mánaðamótin stóð til að við
færum í dreifingu um allt suð-
vesturhornið. Ekki loka sjopp-
unni áður en búið er að opna hana
til fulls. Í fullri opinni dreifingu
er þetta viðskiptahugmynd sem
gengur upp. En það tekur meiri
tíma en 10 mánuði að sýna það.
Þetta vita nágrannar okkar í Dan-
mörku og Noregi sem undirbúa
nú sambærilega miðla en ætla
þeim að skila hagnaði eftir þrjú
ár.
Kæri Jón, þú ræður þessu á
endanum. Það vita allir. Taktu
slaginn með okkur.
Róbert Marshall,
forstöðumaður NFS.
Kæri Jón
RÓBERT MARSHALL
����
�����������
���������
������� �����
�������������� �����
����������������� ����
���������� �������
������������� ���
���������� ���
���������
��