Fréttablaðið - 18.09.2006, Side 68
18. september 2006 MÁNUDAGUR28
Það er alltaf leiðinlegt að vera í alveg eins fötum og
einhver annar. Sérstaklega á rauða dreglinum og
efast maður um að stjörnur á borð við Paris Hitlon
séu ánægðar þegar önnur fræg kona er mynduð í
sama kjól. Hönnuðir lifa hins vegar fyrir að selja
frægum stjörnum kjólana sína og hér eru nokkur til-
vik þar sem slíkt hefur gerst. Stjörnur í alveg eins
kjólum.
Stjörnurnar í alveg eins kjólum
HVOR TEKUR SIG
BETUR ÚT?
Paris Hilton
mætti í þessum
hvíta kjól með
blúndu í partí hjá
Karl Lagerfeld
í París. Á sama
tíma í New York
var leikkonan
unga Thora
Birch stödd á
góðgerðakvöld-
verði í sama kjólnum
og ungfrú Hilton hefur
eflaust ekki verið glöð
með það.
SVIPAÐAR TÝPUR
Sjónvarpstjarnan banda-
ríska Gayle King lenti í
heldur óskemmtilegu
atviki á verðlauna-
afhendingu Tony í
New York í sumar
þegar hún mætti í
fallegum bleikum og
appelsínugulum kjól
og mætti stallsystur
sinni, leikkonunni
Alfre Woodard, á
rauða dreglinum í
nákvæmlega eins kjól.
Dömurnar harðneit-
uðu að láta mynda
sig saman í kjólunum
fínu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Scarlett Johansson fannst kjána-
legt að leika í ástarsenum á móti
hjartaknúsaranum Josh Hartnett,
segir að þær hafi hreint ekki verið
rómantískar. Scarlett og Josh léku
nýlega saman í kvikmyndinni
Black Dahlia og segir leikkonan
að erfitt hafi verið að mynda róm-
antíska stemningu þegar
fullt af fólki stóð í kring-
um þau, borðandi sam-
lokur og fleira. „Það var
auðvitað mjög áhuga-
vert að leika í ástar-
senum á móti Josh
en ég get ekki sagt
að þetta hafi verið
mjög rómantískt,“
segir Scarlett.
Erfitt að
kyssa Josh
SCARLETT JOHANSSON
Hasarmyndaleikarinn Dwayne
Johnson vill ekki lengur vera kall-
aður The Rock, en það nafn fékk
hann þegar hann keppti í fjöl-
bragðaglímu. Í fyrstu myndum
sínum var Dwayne greyið einfald-
lega kallaður The Rock en nú
finnst honum það nafn ekki sæma
ímynd sinni sem alvarlegs leikara.
„Vinsamlegast kallið mig Dwayne
Johnson hér eftir. Ég vil vera leik-
arinn Dwayne Johnson, ekki The
Rock. Það er eðlileg þróun að
hætta að nota það nafn nú,“ segir
The Rock.
Ekki lengur
The Rock
THE ROCK Eða Dwayne Johnson eins og
hann vill nú vera kallaður.
Sannkölluð „Nick Cave“-
helgi var í Reykjavík og
létu aðdáendur tónlistar-
mannsins sig ekki vanta á
viðburði tengda honum.
Á föstudagskvöldið var kvik-
myndin The Proposition frum-
sýnd en hún er gerð eftir handriti
Nicks Cave.Tónlistarmaðurinn
var sjálfur viðstaddur frumsýn-
inguna í Háskólabíói ásamt sam-
starfsfélaga sínum Wade Ellis og
leikaranum Ray Winstone. Mynd-
in mæltist mjög vel fyrir og héldu
frumsýningargestir í teiti á Rex
eftir sýninguna þar sem kvik-
myndahátíðin IFF var gerð upp í
góðu tómi þótt enn sé tæp vika
eftir af henni.
Cave var síðan aftur á ferli í
Laugardalshöll þar sem húsfyllir
var á tónleika hans en það var Hr.
Örlygur sem stóð fyrir tónleikun-
um. Cave virðist því hafa tekið
ástfóstri við land og þjóð og sér
ekki fyrir endann á heimsóknum
hans upp á eyjuna norður í Atl-
antshafi.
- fgg
Nick Cave áberandi í Reykjavík
KAMPAKÁTUR FRAMKVÆMDASTJÓRI
Ísleifur B. Þórhallsson, framkvæmda-
stjóri IFF, var kampakátur með kvöldið
og heimsókn stórleikarans Ray Win-
stone en hann var nýkominn heim frá
kvikmyndahátíðinni í Toronto.
FYRIRMENNIN Í HÁSKÓLABÍÓ Þeir Nick Cave og Ray Winstone voru ánægðir með dvölina á Íslandi.
SAMAN Á FRUMSÝNINGU Þær Ásrún Magnúsdóttir, Halla Þórlaug, Íris Sara og Gró
Einarsdóttir voru að sjálfsögðu á svæðinu.ÁHUGAFÓLK UM VESTRA Páll Grímsson
og Sigríður Vala Vignisdóttir voru ekki
feimin við að sýna miðana.
AUGLÝSINGASTJARNA OG STÓRSÖNGV-
ARI Hilmar Guðjónsson, Tinna og
stórsöngvarinn Garðar Thór Cortes létu
sig ekki vanta á tónleika Cave í Laugar-
dalshöll.
SÁU CAVE Í HÖLLINNI Þau Arnar og
Ingunn voru sæt saman í Laugardals-
höllinni.
ÁNÆGÐIR TÓNLEIKAHALDARAR HERRA ÖRLYGUR, ELDAR ÁSTÞÓRSSON OG UNG
DAMA Þeir Þorsteinn Stephensen og Eldar Ástþórsson hjá Hr. Örlygi voru ánægðir
með hvernig til tókst á tónleikum Nicks Cave.