Fréttablaðið - 18.09.2006, Blaðsíða 74
34 18. september 2006 MÁNUDAGUR
LEIKMAÐUR
UMFERÐARINN
AR
LIÐ UMFERÐARINNAR
3-4-3
Allan Dyring
Hjörtur Logi Valgarðsson
Mario Cizmek
Srdjan Gasic (2)
Tryggvi Guðmundsson (4)
Bjarki Gunnlaugsson (2)
Tommy Nielsen (3)
Hafþór Ægir Vilhjálmsson (3) Atli Guðnason
Fjalar Þorgeirsson (2)
Baldur Aðalsteinsson
FÓTBOLTI FH-ingar tryggðu sér
Íslandsmeistaratitilinn í knatt-
spyrnu á laugardag þegar þeir
niðurlægðu Víkinga, 4-0. Maður-
inn á bak við sigur FH í leiknum
var Tryggvi Guðmundsson en
hann var færður inn á
miðjuna í leiknum enda
verið mikið um meiðsli
í herbúðum FH-inga í
sumar. Það virðist eiga
vel við Tryggva að leika
inni á miðjunni því hann
lék eins og kóngur,
dreifði boltanum til hægri og
vinstri og var arkitektinn á bak
við flestar sóknir FH í leiknum.
„Þetta var frábært og yndislegt
að spila þessa stöðu. Maður er
miklu meira með í leiknum og ég
er þannig leikmaður að ég vil vera
mikið í boltanum og því hentar
þetta mér ansi vel,“ sagði Tryggvi
brosmildur eftir leikinn gegn Vík-
ingi. „Maður á það til að hverfa á
kantinum ef hlutirnir ganga ekki
sem skyldi og þess vegna var
miklu skemmtilegra að vera inni á
miðjunni núna og fá að vera stans-
laust í boltanum. Það er klárt að ég
er að taka þetta hlutverk sökum
meiðsla en ég get vel hugsað mér
að spila þessa stöðu í framtíð-
inni.“
Tímabilið hefur verið
mjög furðulegt hjá FH.
Fimleikafélagið gekk frá
mótinu í raun og veru
eftir um ellefu umferðir
og í kjölfarið slakaði liðið
aðeins á klónni.
Þrátt fyrir það, og fá stig í síð-
ustu leikjum, var forysta liðsins
mjög örugg allan tímann og alltaf
tímaspursmál hvenær FH kláraði
mótið.
„Það var allaf verið að tala um
að við værum búnir að eyðileggja
mótið og þess vegna ákváðum við
að slaka á,“ sagði Tryggvi og hló.
„Við höfum ekki verið að væla
mikið í sumar en staðreyndin er
samt sú að við erum búnir að
missa 7-8 lykilmenn í meiðsli og
við höfum til að
mynda prófað sex
mismunandi
framherja í átján
leikja móti.
Við erum
búnir að prófa
9-10 leikmenn
í vörninni og
þessi stað-
reynd gerir
sigurinn á
mótinu
enn sætari
en ella.
Svo erum
við með
unga stráka sem koma inn og
standa sig vel þannig að framtíðin
er björt. Vissulega er þetta öðru-
vísi en þegar við unnum mótið í
fyrra en samt jafn sætt,“ sagði
Tryggvi sem verður áfram í her-
búðum FH næsta sumar en hann á
ár eftir af núverandi samningi
sínum við félagið.
henry@frettabladid.is
Yndislegt að spila á miðjunni
Tryggvi Guðmundsson er besti leikmaður 17. umferðar Landsbankadeildar karla að mati Fréttablaðsins.
Tryggvi fór á kostum á miðjunni hjá FH gegn Víkingi, skoraði eitt mark og var sem kóngur í ríki sínu.
MARKI FAGNAÐ Tryggvi Guðmundsson fór á kostum í leik FH og Víkings á laugardag
og hann fagnar hér marki sínu í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Manchester United tók á
móti Arsenal á Old Trafford í gær
og það voru gestirnir í Arsenal
sem fóru með sigur af hólmi.
Emmanuel Adebayor skoraði eina
markið undir lok leiksins eftir að
Ronaldo missti boltann heldur
klaufalega á miðjum vallarhelm-
ingi Manchester United. Í fyrri
hálfleik varði Tomasz Kuszczak
vítaspyrnu frá Gilberto Silva en
vítaspyrnan var dæmd eftir að
Kuszczak braut á Adebayor. 1-0
sigur og fyrsti sigur Arsenal í
deildinni á þessu tímabili stað-
reynd.
„Það var mjög mikilvægt fyrir
mig að skora mitt fyrsta mark á
tímabilinu. Við vorum ákveðnir í
að vinna okkar fyrsta sigur í deild-
inni og við sýndum að við erum
með gott lið. Við erum ánægðir og
sjálfstraustið er komið aftur í
liðið,“ sagði Adebayor eftir leik-
inn í gær.
Arsene Wenger, framkvæmda-
stjóri Arsenal, var að vonum
ánægður með sína menn. „Það sást
vel í þessum leik að við erum með
sterkt lið. Við viljum vinna úrvals-
deildina. Ég sagði það fyrir leik-
inn og ég segi það aftur að þetta
lið er sigurstranglegt og ég hef
mikla trú á mínu liði,“ sagði Ars-
ene Wenger.
Sir Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, viðurkenndi
að sigur Arsenal væri verðskuld-
aður. „Við virkuðum þreyttir í síð-
ari hálfleiknum og ég geti ekki
neitað því að Arsenal átti sigurinn
skilið. Við fengum tækifæri til að
skora mörk, sérstaklega í fyrri
hálfleik, en ekki nógu góð til að
vinna leikinn,“ sagði Ferguson en
hann vildi ekki kenna Ronaldo um
markið.
- dsd
Tvö sigursælustu lið ensku úrvalsdeildarinnar, Manchester United og Arsenal, mættust á Old Trafford í gær:
Arsenal vann sinn fyrsta leik í deildinni
EMMANUEL ADEBAYOR Fagnar hér
markinu sem hann skoraði í gær við litla
hrifningu áhorfenda Manchester United.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Roy Keane, fram-
kvæmdastjóri Sunderland, segir
að José Mourinho, stjóri Chelsea,
hafi yfirhöndina yfir aðra stjóra í
úrvalsdeildinni.
„Mourinho er klókur og það
sem hann segir og gerir hefur
áhrif á hans lið og andstæðing-
ana,“ sagði Keane og hann tók
dæmi sem átti sér stað á síðustu
leiktíð. „Í síðasta leiknum á
síðasta tímabili var Chelsea að
vinna Manchester United 3-0 og
þegar tvær mínútur voru eftir af
uppbótartíma fór Mourinho til Sir
Alex Ferguson og tók í höndina á
honum. Þarna var Mourinho að
segja „Leikurinn er búinn, deildin
er búin, 3-0 fyrir okkur“ og
Ferguson var örugglega ekki
ánægður með þetta,“ sagði Roy
Keane. - dsd
Roy Keane:
Lítur upp til
José Mourinho
ROY KEANE Lýsti nýverið yfir dálæti sínu
á Jose Mourinho. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson,
framkvæmdastjóri Manchester
United, segist alls ekki vera á
þeim buxunum að hætta sem
stjóri liðsins. „Að hætta? Þú
hlýtur að vera að grínast,
sérstaklega þegar þú skoðar hinn
möguleikann en hann er að vera
heima hjá konunni,“ sagði
Ferguson.
„Ég verð a.m.k. hjá Manchest-
er United þetta tímabil og það
næsta. Ég verð 65 ára í lok ársins
og ég vil meina að ég eigi ennþá
tvö ár eftir í boltanum,“ sagði Sir
Alex Ferguson. - dsd
Sir Alex Ferguson:
Er alls ekkert á
því að hætta
SIR ALEX FERGUSON Hefur unnið
allt sem hægt er að vinna með lið
Manchester United.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Chelsea og Liverpool
hafa oft eldað grátt silfur á síð-
ustu árum og það er lítill kærleik-
ur á milli liðanna. Leikurinn í gær
var æsispennandi og eins og svo
oft áður þá var eitt mark sem
skildi liðin að. Didier Drogba
skoraði sigurmarkið undir lok
fyrri hálfleiks með glæsilegu
skoti fyrir utan teiginn. Drogba
sneri bakinu í markið þegar hann
fékk háa sendingu, tók boltann á
brjóstið, var eldsnöggur að snúa
sér og skoraði með góðu skoti.
Í upphafi síðari hálfleiks fékk
þýski miðjumaðurinn hjá Chelsea
Michael Ballack að líta rauða
spjaldið þegar hann traðkaði á
Mohamed Sissoko, leikmanni
Liverpool, en áður hafði Sissoko
sloppið með skrekkinn þegar
hann átti að fá sitt annað gula
spjald. Liverpool lék því einum
manni fleiri í u.þ.b. 40 mínútur en
náði ekki að nýta sér liðsmuninn.
Jose Mourinho, stjóri Chelsea,
var að vonum ánægður með sig-
urinn og hann gat ekki annað en
viðurkennt að rauða spjaldið hafi
verið verðskuldað. „Þetta var
augljóslega rautt spjald. Þetta er
í fyrsta skiptið á ferli Ballacks
sem hann fær beint rautt spjald.
Hann kom of seint inn í tækling-
una, boltinn var farinn, hann steig
á Sissoko og þetta var rautt
spjald. Eftir það vorum við manni
færri í langan tíma og þá var bara
spurning að ná þremur stigum en
ekki að spila fallegan fótbolta.
Við áttum sigurinn skilið,“ sagði
Mourinho.
Framkvæmdastjóri Liverpool,
Rafa Benitez, tók undir það að
Sissoko hefði átt að fá rautt en
bætti við að Liverpool hefði átt að
fá vítaspyrnu. „Lampard ýtti
greinilega Steven Gerrard inni í
teignum. Við áttum meira skilið í
þessum leik og sköpuðum nokkur
mjög góð færi gegn góðu liði,“
sagði Benitez.
Liverpool er nú aðeins með
fjögur stig eftir fjóra leiki. Auk
þess hefur Liverpool aðeins feng-
ið eitt stig og skorað eitt mark í
þremur útileikjum á tímabilinu.
„Ef við skoðum tölfræðina þá
höfum við átt fleiri marktilraunir
en andstæðingarnir í þessum
þremur leikjum. Í dag fengum
við mark á okkur af því að Drog-
ba er góður leikmaður en ekki af
því að við gerðum mistök. Það er
augljóst að við erum að bæta
okkar leik og við þurfum að fá
stig en tímabilið er bara rétt byrj-
að,“ sagði Benitez um stöðu
mála.
Þetta var annað tap Liverpool í
röð en um síðustu helgi tapaði
Liverpool illa fyrir Everton. - dsd
Erkifjendurnir Chelsea og Liverpool mættust í gær og það var glæsimark frá Didier Drogba sem réð úrslitum:
Liverpool tapaði sínum öðrum leik í röð
GLÆSILEGU MARKI FAGNAÐ Didier Drogba skoraði glæsilegt mark í gær og fagnaði
því að hætti hússins. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Evrópumeistarar
Ciudad Real mörðu sigur, 26-27,
gegn liði Sigfúsar Sigurðssonar,
Ademar Leon, í spænsku úrvals-
deildinni í gær.
Sigfús Sigurðsson skoraði eitt
mark fyrir Ademar en Ólafur
Stefánsson lék ekki með Ciudad
Real að þessu sinni.
- hbg
Spænski handboltinn:
Ciudad Real
marði sigur