Fréttablaðið - 22.09.2006, Side 2

Fréttablaðið - 22.09.2006, Side 2
2 22. september 2006 FÖSTUDAGUR VIÐSKIPTI Danska leikfangafyrir- tækið Fætter BR hyggst opna stórverslun með leikföng undir nafni Toys‘R‘Us hér á landi. Versl- unin verður um þúsund fermetr- ar að stærð og verður til húsa í nýju stórhýsi Rúmafatalagersins við Smáratorg. Þá stefna for- svarsmenn Fætter BR að því að opna eina Toys‘R‘Us verslun til viðbótar hér á landi og allt að fimm undir nafni BR innan næstu fimm ára. Leikbær hefur þegar tilkynnt að þrjú þúsund fermetra stór- verslun með leikföng verði opnuð við Urriðaholt í Garðabæ á næsta ári. Því er ljóst að stefnir í harða samkeppni á leikfangamarkaði. Leikbæjarmenn áttu í viðræð- um við bandaríska leikfangaris- ann Toys‘R‘Us og kom meðal ann- ars til greina að verslunin við Urriðaholt yrði rekin undir nafni Toys‘R‘Us. Viðræðurnar strönd- uðu hins vegar þegar í ljós kom að Fætter BR, sem er umboðsaðili Toys‘R‘Us á Norðurlöndum, yrði milliliður Leikbæjarmanna og bandaríska leikfangarisans. BR leikfangaverslanir eru reknar víða um Danmörku og eru þekktar fyrir einkennismerki sitt; danskan drottningarvörð í fullum skrúða. Elías Þorvarð- arson, fram- kvæmdastjóri Leikbæjar, segir ekki hagkvæmt að starfa í skjóli Fætter BR. „Ef danskir kaup- menn taka toll af hverju leikfangi sem íslensk börn kaupa, þá getum við ekki boðið eins hagstætt verð og mikið úrval og að var stefnt.“ Leikbær rekur því verslunina í eigin nafni og er unnið að því að landa innkaupa- samstarfi við erlendan dreif- ingaraðila. Leik- bæjarmenn taka þó fram að boðið verði upp á öll helstu leikfangamerki svo sem Fischer Price, Barbie og Lego. Elías telur að stórverslun Leik- bæjar marki byltingu á íslenskum leikfangamarkaði. Mikið verði lagt í hönnun og lýsingu og lögð áhersla á að gestir verslunarinnar njóti upplifunarinnar. Hann segist ekki óttast samkeppni við Danina. „Við vitum að Danirnir ætla að opna meðalstóra verslun hér á landi en við óttumst ekkert. Leik- bær er með mikla reynslu á íslenskum markaði, við höfum sett okkur raunhæf markmið og munum ná þeim.“ jsk@frettabladid.is Við vitum að Danirnir ætla að opna meðalstóra verslun hér á landi en við óttumst ekkert. ELÍAS ÞORVARÐARSON FRAMKVÆMDASTJÓRI LEIKBÆJAR SPURNING DAGSINS SKRIFSTOFUVÖRUR 45.000KR. VERÐ ÁÐUR 57.900KR. H Ö N N U N O D D I V O B 9 2 9 4 Borgartúni 29 • Reykjavík Sími 515 5170 • Opið virka daga kl. 8-18 • laugardaga kl. 11-16 Glerárgötu 34 • Akureyri Sími 515 5160 Opið virka daga kl. 8-18 Höfðabakka 3 • Reykjavík Sími 515 5105 Opið virka daga kl. 8-18 Stríð í uppsiglingu á leikfangamarkaði Danski leikfangarisinn BR opnar Toys‘R‘Us verslun hér á landi og hyggur á enn frekari landvinninga. Leikbær opnar þrjú þúsund fermetra stórverslun við Urriðaholt. Framkvæmdastjóri Leikbæjar óttast ekki samkeppni við Danina. VERSLUN TOYS‘R‘US VIÐ TIMES SQUARE Í NEW YORK Fætter BR opnar Toys‘R‘Us versl- un í stórhýsi Rúmfatalagersins við Smáratorg, og hyggst opna minnst fjórar verslanir hér á landi. Leikbær hefur þegar tilkynnt að stórverslun með leikföng verði opnuð. HEILBRIGÐISMÁL Á næsta ári verð- ur ráðist í stækkun barna- og unglingageðdeildar. Þá færast greiningar á vægari tilfellum geðrænna vandamála til heilsu- gæslustöðva. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra vonar að með þessum aðgerðum heyri biðlistar brátt sögunni til. Áætl- aður kostnaður stækkunarinnar er um 340 milljónir. Þess má geta að nú bíða 108 börn og unglingar eftir fyrsta viðtali á BUGL og hafa sumir beðið í á annað ár. Til að létta enn frekar á bið- listum á BUGL hefur verið ákveðið að greining vægari geð- rænna vandamála barna og ungl- inga flytjist til heilsugæslu- stöðva. Þetta mun leiða til þess að göngudeild BUGL eflist og aðstæður skapast til að sinna veikustu börnunum betur. Þá verður geðheilbrigðisþjón- usta við heilsugæslu á lands- byggðinni efld og reglubundnar heimsóknir fagaðila tryggðar á Ísafirði, við Heilbrigðisstofnun Austurlands og á Suðaustur- landi. Siv segir að samanlagður kostnaður við stækkun BUGL og færsla vægari vandamála til Heilsugæslunnar sé áætlaður um 400 milljónir króna. „Þessar framkvæmdir eru veruleg ígjöf í málaflokkinn og mikilvægt að byggingaframkvæmdir hefjist eins fljótt og unnt er, og ekki síðar en á næsta ári.“ - hs Á næsta ári verður ráðist í stækkun BUGL sem mun kosta um 340 milljónir: Biðlistar heyri sögunni til BARNA- OG UNGLINGAGEÐDEILD 108 börn bíða eftir sínu fyrsta viðtali á BUGL en með stækkun deildarinnar er vonast til að biðlistar verði úr sögunni. LANDHELGISGÆSLAN Opnuð voru tilboð í smíði á nýju fjölnota varðskipi fyrir Landhelgisgæslu Íslands og dómsmálaráðuneytið í gær. Alls bárust fimm tilboð í smíðina frá fjórum skipasmíða- stöðvum og eru fyrirtækin öll erlend. Eftirtaldar skipasmíðastöðvar sendu inn tilboð: Simek A/S, Noregi, Damen Shipyards, Hollandi, Peene-Werft, Þýska- landi og Asmar, Chile. Þessi fyrirtæki voru valin eftir forval í janúar, en fimmtán fyrirtæki lýstu áhuga á verkinu. Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa, segir að nú taki við vinna við að meta þær úrlausnir sem verið er að bjóða. „Þannig verður fundin einkunn sem segir til um hver fær verkið. Það er mikil vinna eftir og niðurstaða fæst ekki fyrr en eftir nokkrar vikur.“ Talið er að smíði nýs varðskips taki um þrjátíu mánuði. - shá Nýtt fjölnota varðskip: Tilboð í smíði opnuð í gær VARÐSKIPIÐ TÝR Varðskip Landhelgis- gæslunnar eru Íslendingum hjartfólgin. Nú styttist í að nýtt og fullkomið skip bætist í flotann. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Jón, var síðan ekkert afl í Nýju afli? Jú, en nú komum við fram af nýju afli. Stjórnmálahreyfingin Nýtt afl, sem Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður stofnaði fyrir síðustu þingkosningar, hefur verið lögð niður en félagsmenn voru um leið hvattir til þess að styðja Frjálslynda flokkinn. UMHVERFISMÁL Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra kynnti fyrir- komulag rjúpnaveiða haustið 2006 í gær. Reynt verður að takmarka rjúpnaveiði við 45 þúsund fugla á komandi veiðitímabili. Rjúpnaveiði- tímabilið verður 26 dagar í ár miðað við 42 daga á síðasta ári en þó er veitt frá 15. október til nóvemberloka líkt og í fyrra. Fækkun daga felst í þeirri breyt- ingu að rjúpnaveiðar verða óheimilar þrjá fyrstu virka daga hverrar viku sem veiðitímabilið stendur. Tillögurnar í ár eru um margt líkar og í fyrra. Áframhaldandi sölubann er á rjúpu og rjúpnaafurð- um og áfram eru veiðimenn hvattir til að stunda hófsamar og ábyrgar veiðar. Mælt er með því að hver veiðimaður takmarki veiðar sínar við níu rjúpur. Stefnt er að því að stunda virkt eftirlit með veiðunum og verður lögreglueftirlit í samvinnu umhverfis- og dóms- málaráðuneytis. Stefnt er að eftirliti úr lofti en Skotveiðifélag Íslands hefur bent á að það sé eina leiðin til að uppræta magnveiði einstakra veiðimanna. Aðal markmið tillagnanna er sem fyrr að nýting rjúpnastofnsins sé sjálfbær og eru vonir til að með þessum aðgerðum stækki rjúpnastofninn. Jónína er þeirrar skoðunar að endurskoðun veiða sé nauðsyn- leg á hverju hausti. Því séu rannsóknir og ráðgjöf Náttúrufræðistofnunar og Umhverfisstofnunar mjög mikilvægar. - shá Umhverfisráðherra hefur ákveðið fyrirkomulag veiða á rjúpu haustið 2006: Rjúpnaveiði leyfð í 26 daga Á VAPPI Rjúpnaveiði verður takmörkuð við 45 þúsund fugla. Það er 25 þúsund fuglum minna en veiddist í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL LÖGREGLUMÁL Manninum sem reyndi að ræna söluturn við Iðufell á þriðjudagskvöld hefur verið sleppt úr haldi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu virðist hann hafa staðið einn að ránstilrauninni, en stúlka sem var handtekinn með honum stuttu síðar er ekki talin hafa verið þátttakandi í verkn- aðinum. Á eftirlitsmyndbandi úr söluturninum sem sýnt var frá í Fréttablaðinu í gær sést maðurinn elta eiganda hans með hníf á lofti án þess að gera nokkra tilraun til að ná í þá fjármuni sem þar voru. - þsj Ránstilraun í Breiðholti: Hinn grunaði laus úr haldi FLÓRÍDA, AP Bandaríska geimskutl- an Atlantis lenti í gærmorgun á flugvelli Kennedy-geimferða- stofnunarinnar í Flórída, eftir tólf daga veru í geimnum. Áhöfn var við góða heilsu og skælbrosandi, enda fegnir að komast heim heilir á húfi. Þeir voru sendir út í geim til að vinna við byggingu ISS, Alþjóðlegu geimstöðvarinnar, í fyrsta sinn síðan Columbia geimskutlan sprakk í loft upp í geimnum árið 2003 og allir sjö í áhöfninni fórust. Stefnt er á að ljúka við bygg- ingu ISS-geimstöðvarinnar fyrir árið 2010. Stöðin er samstarfsverk- efni Bandaríkjamanna, Rússa, Kanadamanna og Japana. - kóþ Geimskutlan Atlantis: Lenti heilu og höldnu í gær FLUGVIRKJAR SKOÐA GEIMSKUTLUNA Óttast var að geimrusl hefði skemmt ytra byrði skutlunnar og var lendingu því frestað um einn dag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FINNLAND, AP Tafir verða á þátttöku nýrra aðildarríkja Evrópusambandsins í Schengen- vegabréfaeftirlitinu. Á fundi innanríkis- og dómsmálaráðherra ESB var tilkynnt um tafir á uppsetningu nýs gagnagrunns eftirlitsins. Þátttöku nýju aðildarríkjanna verður því skotið á frest um tvö ár, eða til ársins 2009. Löndin tíu þurfa samt sem áður að halda úti strangri öryggisgæslu við öll landamæri sín, þar á meðal þau sem liggja að eldri aðildarríkjum. - kóþ Tæknileg vandræði í Brussel: Ný aðildarríki ekki í Schengen UTANRÍKISRÁÐHERRA Fundar með NATO-ráðherrum Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráð- herra fundaði með utanríkisráðherr- um Atlantshafsbandalagsins í New York í gær. Rætt var um ástandið í Afganistan, mögulega stækkun bandalagsins og aukið samstarf við önnur ríki og alþjóðastofnanir. Valgerður er í New York til að sitja 61. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.