Fréttablaðið - 22.09.2006, Page 8
8 22. september 2006 FÖSTUDAGUR
HAFRÉTTARMÁL Valgerður Sverris-
dóttir utanríkisráðherra undirritaði
í fyrradag samkomulag milli
Íslands, Danmerkur, Færeyja og
Noregs um skiptingu landgrunns
utan tvö hundruð mílna í suðurhluta
Síldarsmugunnar. Samkomulagið
felur í sér viðurkenningu á land-
grunnsréttindum Íslands yfir 29
þúsund ferkílómetra svæði vestast í
Síldarsmugunni í beinu framhaldi
af íslensku efnahagslögsögunni
norðaustur af landinu. Niðurstaðan
markar tímamót í landgrunnsmál-
um á Norðaustur-Atlantshafi eins og
segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Tómas H. Heiðar, þjóðréttar-
fræðingur í utanríkisráðuneytinu
segir niðurstöðuna af mörgum
ástæðum hagstæða fyrir Ísland.
„Hlutur Íslands í landgrunninu í
suðurhluta Síldarsmugunnar er vel
viðunandi og niðurstaðan er til þess
fallin að auka almennan trúverðug-
leika Íslands sem ríkis sem gerir til-
kall til landgrunnsréttinda utan 200
sjómílna á þessu og öðrum hafsvæð-
um.“ Tómas segir að ekki síst geti
samkomulag Íslands, Danmerkur/
Færeyja og Noregs um skiptingu
landgrunnsins á áðurnefndu svæði,
áður en það kemur til umfjöllunar
landgrunnsnefndarinnar, haft mik-
ilvægt fordæmisgildi fyrir Hatton
Rockall-málið, en tveir fyrstnefndu
aðilarnir eru aðilar að því máli. - shá
Samkomulag undirritað um skiptingu landgrunns í suðurhluta Síldarsmugunnar:
Hlutur Íslands vel viðunandi
UMRÆTT SVÆÐI Skipting landgrunns í
suðurhluta Síldarsmugunnar. Svæðið
sem Íslendingar fá viðurkenningu á er á
milli punktanna A B, C, og F á kortinu.
Bæjarstjórn Árborgar í samvinnu
við Arkitektafélag Íslands efnir til
samkeppni um miðbæ Selfoss. Stefnt
er að því að á Selfossi verði miðbær
með íbúðarbyggð, öfl ugri verslun og
þjónustu á sem fl estum sviðum sem
geti þjónað öllu Suðurlandi.
Form samkeppninnar er framkvæmda-
samkeppni. Útbjóðandi er fyrst og
fremst að lýsa eftir höfundi og tillögu
að deiliskipulagi miðbæjar á Selfossi til
nánari útfærslu.
Tilhögun samkeppninnar er almenn
keppni samkvæmt skilgreiningu
samkeppnisreglna AÍ.
Rétt til þátttöku hafa:
• Félagar í Arkitektafélagi Íslands
• Nemendur í arkitektúr
• Þeir sem rétt hafa til að gera
aðaluppdrætti fyrir byggingarnefnd
• aðrir þeir sem rétt hafa til skipulags-
gerðar samkv. gr. 2.7 í skipulags-
reglugerð nr. 400/1998.
Keppnislýsing verður látin í té endur-
gjaldslaust frá og með 25. september
2006 á bæjarskrifstofu Árborgar,
Austurvegi 2, 800 Selfossi á milli 9.00
og 16.00 virka daga og á skrifstofu
Arkitektafélags Íslands, Engjateig 9,
2. hæð, 105 Reykjavík á milli kl 9.00
og 13.00 virka daga. Einnig er hægt
að nálgast hana á heimasíðu Árborgar
www.arborg.is frá og með sama degi.
Önnur samkeppnisgögn verða afhent
gegn skilatryggingu að upphæð kr.
10.000,- á skrifstofu Arkitektafélags
Íslands á milli kl. 9.00 og 13.00 virka
daga frá og með 25.september 2006.
Einnig verður hægt að nálgast sam-
keppnisgögn hjá trúnaðarmanni.
Tillögum skal skila til trúnaðarmanns,
á skrifstofu Arkitekta fé lags Ís lands að
Engjateigi 9, 2.hæð, 105 Reykja vík eigi
síðar en 1. desember 2006. Áætlað
er að dómnefnd ljúki störfum í janúar
2007. Höfundur fyrstu verðlauna verð-
ur ráðinn skipulagsráðgjafi verkefn-
isins, ef viðunandi samkomulag næst
milli hans og útbjóðanda.
Miðbær Selfoss
Samkeppni um deiliskipulag
Þegar taka þarf til nesti í skólann á hverjum degi
skiptir miklu að það sé hollt og gott án þess að verða
leiðigjarnt. Notaðu gæðaáleggið frá SS til að gera
nestið fjölbreytt og gott. Flatbrauð og SS hangiálegg
er sígilt og sívinsælt í nestisboxið. Þú þekkir SS álegg
á gulu umbúðunum.
Hangiálegg frá SS
– á flatbrauð,
sívinsælt í nestisboxið
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
7
4
7
2
LÖGREGLUMÁL Tveir ungir menn
hafa verið úrskurðaðir í síbrota-
gæslu í Héraðsdómi Reykjaness
til 20. desember, en þeir voru
handteknir á stolinni jeppabif-
reið í Reykjavík í fyrrinótt. Um
er að ræða sömu mennina og
brutust inn í félagsheimilið Árnes
í Gnúpverjahreppi og fjölmarga
sumarbústaði í Borgarfirði fyrr í
vikunni. Mennirnir fóru inn í
ólæst hús í Breiðholti á þriðju-
dagskvöld og stálu þaðan lyklum
af Lexus-jeppa sem er metinn á
um 5 milljónir króna, en þeim
hafði verið sleppt úr haldi lög-
reglunnar á Selfossi fyrr um
daginn.
Ólögráða stúlka sem hafði tekið
þátt í fyrri afbrotum þeirra var
ekki með þeim að þessu sinni. Lög-
reglan kom að mönnunum sofandi
í jeppanum í fyrrinótt en þegar
þeir urðu lögreglu varir reyndu
þeir að stinga af. Sá eltingarleikur
endaði með því að þeir óku bif-
reiðinni á húsvegg og skemmdist
hann töluvert. Nokkuð af ætluðu
þýfi fannst í bifreiðinni, en hún er
sú þriðja sem mennirnir hafa
stolið á tæpri viku.
Mennirnir eru fæddir 1985 og
1988 og eiga langan sakaferil að
baki. Þeir eru grunaðir um fjöl-
mörg innbrot og þjófnaði í Kefla-
vík á síðustu vikum og hafa verið
afhentir lögreglu þar. Þá hefur lög-
reglan í Kópavogi staðfest að
mennirnir liggi undir grun vegna
ýmissa afbrota þar. Ferð þeirra um
landið hófst í Reykjavík í síðustu
viku þegar þeir stálu bíl og keyrðu
út úr borginni í norðurátt. Þeir bru-
tust inn í að minnsta kosti fjóra
sumarbústaði í Borgarfirði og stálu
þaðan ýmsum munum auk þess
sem þeir ollu töluverðum skemmd-
um á bústöðunum. Samkvæmt lög-
reglunni í Borgarnesi er enn verið
að rannsaka hvort slóð þeirra liggi
víðar í umdæminu.
Næsti þekkti viðkomustaður
þeirra var Húsavík. Þar urðu þeir
að öllum líkindum bensínlausir og
stálu því öðrum bíl. Mennirnir
yfirgáfu þó ekki bæinn fyrr en
þeir höfðu brotist inn í tvo bíla og
stolið þaðan fjölda geisladiska og
öðru smálegu. Þá fundust munir
úr sumarbústaðainnbrotunum í
bílnum sem þeir skildu eftir.
Samkvæmt Húsavíkurlögreglunni
héldu þeir þaðan til baka í átt að
höfuðborginni. Á bílnum sem þeir
stálu á Húsavík óku þeir að Sel-
fossi þar sem þeir voru handteknir
á þriðjudagsmorguninn eins og
fyrr segir. - þsj
Ferðalagi síbrota-
manna er lokið
Tveir ungir menn sem grunaðir eru um innbrot víðs vegar um landið voru í
gærkvöld úrskurðaðir af Héraðsdómi Reykjaness í síbrotagæslu til 20. desember.
FERÐALAG MANNANNA
Keflavík: Grunaðir um fjölmörg inn-
brot og þjófnaði á síðustu vikum.
Reykjavík: Stálu bíl í síðustu viku og
keyrðu í norðurátt.
Borgarfjörður: Brutust inn í að
minnsta kosti fjóra sumarbústaði um
helgina. Stálu ýmsum munum og ollu
skemmdum á eignum.
Húsavík: Brutust inn í tvo bíla og
stálu öðrum bíl aðfaranótt sunnu-
dags.
Gnúpverjahreppur: Brutust inn í
félagsheimilið Árnes á mánudagsnótt.
Voru handteknir stuttu síðar.
Breiðholt: Var sleppt úr haldi á
þriðjudag og stálu síðar um daginn
Lexus-jeppabifreið.
Reykjavík: Reyndu að flýja undan
lögreglu á stolnu bifreiðinni í gærnótt
en enduðu á húsvegg. Bíllinn
skemmdist töluvert.
Héraðsdómur Reykjaness: Úrskurð-
aðir í síbrotagæslu til 20. desember.