Fréttablaðið - 22.09.2006, Page 25
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
GÓÐAN DAG!
Í dag er föstudagurinn
22. september, 265. dagur
ársins 2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 7.10 13.20 19.29
Akureyri 6.54 13.05 19.15
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir á upp-
skrift að girnilegri og matarmikilli
pitsu.
„Ég „stal“ þessari pitsu með leyfi frá Þresti
Frey Gylfasyni stjórnmálafræðingi en
útfærði hana á minn hátt,“ segir Bryndís
Ísfold um ákaflega girnilega pitsu sem hún
hefur nýlokið við að baka.
„Aðalatriðið með þessa pitsu er að setja
sem mestan mat á hana en þó þarf að gæta
þess að maturinn leggist rétt yfir botninn,“
segir Bryndís kankvís.
Bryndís segist hafa verið afleitur kokkur
þar til kom að fæðingaorlofi, en þá fékk hún
fyrst tíma til að hugsa um eldamennsku og
lesa matreiðslubækur. „Bróðir minn var
búinn að koma þrisvar sinnum í röð í mat og
alltaf fékk hann sama réttinn. Ég tók reynd-
ar ekkert eftir því fyrr en hann minntist á
það við mig og þá sá ég að það var kannski
orðið tímabært að ég færi að lesa mat-
reiðslubækur. Afraksturinn af þessum lestri
verður alltaf betri og betri og pitsan góða er
í raun hluti af þessu átaki mínu. Síðan átakið
hófst hefur verið grillað í annað hvert mál,
það eru miklar pælingar í gangi í sambandi
við krydd og mikið lagt upp úr allri elda-
mennsku. Áður vorum við maðurinn minn
mikið til bara í skyndibitafæði og öðru fljót-
legu svo þetta er mikill munur frá því sem
áður var enda vorum við komin með ógeð á
skyndibita. Ég hafði einhvern veginn líka
talið sjálfri mér trú um að það væru bara
listamenn sem kynnu að elda, eða einhver
sérstaklega útvalinn hópur fólks, en svo
komst ég að því að þetta er ekki meira mál
en svo að maður þarf bara að lesa nokkrar
matreiðslubækur og gefa sér tíma. Ótrúleg-
asta fólk getur búið til almennilegan mat ef
það gefur sér tíma til eldamennskunnar,“
segir Bryndís Ífold, pitsugerðarkona, krati
og mannréttindasinni.
Uppskrift Bryndísar má finna á síðu 2.
margret.hugrun@frettabladid.is
Fékk leið á skyndibita
„Bróðir minn var búinn að koma þrisvar sinnum í röð í mat og alltaf fékk hann sama réttinn. Ég tók reyndar ekkert eftir því fyrr en hann minntist á það við mig og þá sá ég að það
var kannski orðið tímabært að ég færi að lesa matreiðslubækur.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Veitingastaðurinn Galileo er
kominn með nýjan matseðil þar
sem nýir eigendur hafa tekið við
rekstrinum. Á Galileo má velja
um fjölda ítalskra rétta sem
yfirmatreiðslumaðurinn Antonio
Neri frá Sikiley töfrar fram.
Ítalía er nýtt vörumerki í
Hagkaupi og alls konar pestó,
ólífumauk og tómatmauk má nú
finna með þessu nafni í verslun-
unum. Amerískir dagar standa
nú yfir í verslunum Hagkaups.
Krónan er með ýmis
tilboð á matvöru
og má þar nefna
fjörutíu prósenta
afslátt af Móa
kjúklingum.
Nóatún býður
Goða álegg á þrjátíu
prósenta afslætti.
Sprengidagar eru hjá Bílaþingi
Heklu um þessar mundir. Lækk-
að verð á völdum bílum, opið frá
9-19 á Kletthálsi 11.
Barnaskemmtistaðurinn Veröld-
in okkar veitir 50 prósenta afslátt
á tilboðsdögum sem standa yfir í
Smáralind fyrir e-korthafa og e2
vildarkorthafa.
ALLT HITT
[ MATUR TILBOÐ ]
ILMANDI
SKELFISKUR
Veitingastaðurinn Vín og
skel er notalegur staður í
bakhúsi við Laugaveg.
MATUR 5
MEXÍKÓSK
MATARVEISLA
Suðrænir réttir sem
krydda tilveruna.
MATUR 4
Nýtt og hollt álegg
NAUTAVÖÐVINN ER NÝTT ÁLEGG FRÁ SS.
Nýtt álegg er komið á
markað frá Sláturfélagi
Suðurlands. Það nefnist
nautavöðvi og tilheyrir flokki
léttra áleggstegunda enda
inniheldur hann minna en
2 prósenta fitu en er samt
safaríkur. Nautavöðvinn
er hollur og hentar við
ýmis tækifæri, sem álegg á
brauð, í pítuna, á pitsuna,
sem forréttur eða bara einn
og sér. Hann inniheldur
ekki MSG frekar en aðrar
áleggstegundir Sláturfélags
Suðurlands og er sérvalinn
og meðhöndlaður af fag-
mönnum fyrirtækisins.
Nautavöðvinn inniheldur
minna en 2 prósenta fitu en
er samt safaríkur.