Fréttablaðið - 22.09.2006, Page 42
SIRKUS
10 tíska
tískumolar
Helgu Ólafsdóttur
Aftur
DEAD
Nú styttist í að
verslun Nonna,
sem kenndur er
við Dead sem
Aftur systur munu
sjá um, verði
opnuð. Það fréttist
af þeim systrum í
New York á nýaf-
staðinni tískuviku að
kaupa inn nýjar og
ferskar vörur fyrir verslun-
ina. Get ekki beðið eftir að búðin opni
almenningi dyr sínar.
Svartar
neglur
Það eru rosalega
flott svört naglalökk
í snyrtivöruverslun-
um þessa dag-
anna. Þú þarft ekki
að aðhyllast hina
svo-
köll-
uðu „goth“ tísku til að ganga
með svart naglalakk. En þeir
sem þora ekki að fara alla leið
geta valið sér dökkrautt og
dökkfjólublátt í staðinn. Ekki
vera í munstruðum fatnaði
heldur einlitum ef þú ert með
dökklakkaðar neglur.
Það er farið að kólna í veðri og meðfylgjandi köld eyru eru óumflýjanleg.
Húfur hafa aldrei verið eins mikil tískuvara og nú. Ömmulegar alpahúfur,
prjónaðar kaðlahúfur, loðhúfur eða bara munstraðar skíðahúfur. Ég lofa
því að minnsta kosti að allar húfur verða í tísku í vetur.
Húfutískan
Kringlan fær hrós fyrir að ná í ofurfyrirsætuna Eddu P sem býr og starfar í New York í nýjustu
auglýsingaherferð sína. Afar flott herferð à la Ari Magg.
Ofurfyrisæta
auglýsir Kringluna
5 ráð fyrir hann
Verum flottir strákar
1Pantaðu þér rope-yoga námskeið og þú verður komin með „sixpack“ áður en þú veist af.
2Berðu á þig Clarins Fatigue Fighter kremið það er ótrúlega ferskt og hressandi.
3Langerma afabolir frá versl-un Guðsteins á
Laugavegi 34 eru möst
fyrir veturinn.
4Klipptu þig alveg stutt og fáðu þér svo húfu eða hatt ef þér er kalt á hausnum, það er orðið þreytt að vera
með stífspreyjað og stílíserað hár.
5Jibbííí, loksins er kominn herrailmur frá
Viktor & Rolf. Kíktu
eftir honum í næstu
snyrtivöruverslun.
Hann heitir Antidote.