Fréttablaðið - 22.09.2006, Side 48
ORÐIÐ
Á GÖTUNNI
ordid.blog.is
SVIPTINGAR Í FJÖLMIÐLA-
GEIRANUM
Ólafur Már Tryggvason, sem
gegndi áður stöðu innkaupastjóra
hjá Dagsbrún, er einn þeirra sem
leitað hafa á önnur mið í kjölfar upp-
stokkunarinnar á fyrirtækinu. „Óli
Tryggva, eins og hann er jafnan kall-
aður, hefur tekið við sölustjórastöðu
hjá Íslenska útvarpsfélaginu sem
rekur útvarpstöðvarnar Kiss FM og
X-FM. En þar hafa orðið meiri breyt-
ingar. Axel Axelson, sem verið
hafði framkvæmdastjóri félagsins
hefur verið settur út í kuldann, og
hnakkagoðsögnin Kiddi Bigfoot
fenginn til að taka við. Kiddi hefur
þegar tekið til óspilltra málanna og
ráðið til sín gamla hunda úr útvarps-
bransanum. Meðal annars vekur
athygli boðuð endurkoma Þrastar
Gests- sonar, fyrrverandi dag-
skrárstjóra FM957.
Þröstur hefur kallað
sig ýmsum óvenjuleg-
um nöfnum í gegn-
um tíðina. Þekkt-
ust viðurnefna
Þrastar eru líklega
„Fuglinn“, „Þröstur
3000“ og
„3000-kallinn“.
ROKKARI MÆRÐUR Á BARNA-
LAND.IS
Ein harðasta rokk-
hetja landsins er án
efa Smári „Tarfur“
Jónsson. Fyrir utan
að gera garðinn
frægan á tónleika-
ferðalögum með
Quarashi og fleiri
hljómsveitum þá
hefur Smári deilt úr
viskubrunni sínum fyrir hlustendur
rokkstöðvarinnar X-FM. Tarfurinn
taldi í einfeldni sinni að sér væri
óhætt að stunda þessa tegund
útvarpsmennsku og að „street-
credit“ hans meðal rokkhunda bæri
engan skaða af. Það var hins vegar
áður en að honum barst til eyrna að
fjörugar umræður ættu sér stað
meðal hlustenda hans um hversu
kynþokkafull rödd hans þætti vera.
Og hvar fóru áðurnefndar umræður
um rokkarann fram? Jú, á spjallsíðu
mæðra á Barnaland.is. Smári íhug-
ar nú alvarlega að leggja útvarps-
mennskuna á hilluna.
KATRÍN STERK Í KRAGANUM
Katrín Júlíusdóttir alþingismaður
sækist eftir 2. sæti á lista Samfylk-
ingarinnar í prófkjöri sem fram fer 4.
nóvember. Katrín þykir eiga góða
möguleika á að negla sætið enda
hafi hún þótt vaxa mikið á kjörtímabil-
inu. Reynslan í kjördæminu sýnir að
það skiptir öllu að koma úr fjölmennu
sveitarfélagi og Katrín er borin og
barnfædd í Kópavogi þar sem búa
hátt í þrjátíu þúsund manns. Hún
mun jafnframt hafa grasrót flokksins í
bænum algjörlega á bak við sig eftir
að hafa sýnt mikinn dugnað í
kosningavinnu flokksins í
sveitarstjórnarkosningun-
um síðastliðið vor. Við
þetta bætist að talað
er um að Hafnfirðing-
ar sem studdu hana í
4. sætið í síðasta
prófkjöri muni ætla að
veita henni stuðning
áfram.