Fréttablaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 22.09.2006, Blaðsíða 64
 22. september 2006 FÖSTUDAGUR32 menning@frettabladid.is ! Kl. 22.00Samíska hljómsveitin Vajas og íslenska hljómsveitin Funi halda tónleika á skemmtistaðnum Nasa. Vajas flytur þjóðlega tónlist þar sem joikið, elsta form tónlistar í Evrópu, er í aðalhlutverki en joikið skipar öndvegissess í samískri menningu. > Dustaðu rykið af ... sögu Astridar Lindgren, Bróðir minn Ljónshjarta, þar sem segir af bræðrun- um Snúði og Jónatan og baráttu íbúa ævintýralandsins Nangijala við hinn illa Þengil og drekann Kötlu. Sígild saga um togstreitu góðs og ills. Pólverjar eru stærsti inn- flytjendahópurinn á Íslandi og tvær hugsjónakonur ákváðu að tími væri kominn til þess að kynna menningu Póllands betur hér á landi. Í næstu viku verður haldin fjöl- breytt pólsk menningarhátíð í Reykjavík þar sem pólskt listafólk úr öllum menningargeirum mun stíga á stokk og kynna starf sitt og heimaland. Skipulagning hátíðar- innar er í höndum Mörtu Macuga og Önnu Wojtynska sem láta nú draum sinn rætast en hugmyndin er búin að vera í gerjun býsna lengi. „Við byrjuðum að skipuleggja hátíðina fyrir tveimur árum. Okkur fannst tími til kominn að kynna Íslendingum pólska menn- ingu, Pólverjar eru til dæmis stærsti innflytjendahópurinn á Íslandi,“ útskýrir Marta. Sam- kvæmt upplýsingum frá Hagstof- unni eru um 300 Pólverjar búsett- ir hér á landi en Marta bendir á að þeir séu mun fleiri eftir að opnað var fyrir frjálst flæði vinnuafls um Evrópska efnahagssvæðið í vor. „Pólverjar hafa sig ekki mikið í frammi, margir sem koma hing- að eru í erfiðri líkamlegri vinnu og hafa lítinn tíma fyrir nýjan kunningsskap eða félagslíf. Við vildum taka málin í okkar eigin hendur og gera eitthvað til þess að vekja athygli á framlagi þeirra og veru hér á landi.“ Dagskráin hefst næstkomandi fimmtudag en von er á fjölmörg- um góðum gestum frá Póllandi auk þess sem pólskir listamenn hérlendis munu gleðja gesti hátíð- arinnar. „Fyrsti viðburðurinn verður opnun á listasýningu eftir Ireneusz Jankous,“ segir Marta, „hann er algjör elska og málar fal- legar myndir innblásnar af Pól- landi. Hann er ekki menntaður málari heldur vinnur hann í bygg- ingarvinnu og málar í frístundum sínum.“ Verk Jankous verða til sýnis á Kaffi Kúltúr við Hverfis- götu en sýningin er sett upp í sam- starfi við Alþjóðahúsið. Síðan verður athöfn í Háskóla- bíói þar sem forseti Íslands opnar hátíðina og í kjölfarið leikur Sin- fóníuhljómsveit Íslands undir stjórn pólska tónskáldsins Krzysztofs Penderecki. „Sinfón- ían hefur stutt vel við bakið á okkur en Penderecki er eitt þekkt- asta pólska tónskáld samtímans. Hann mun stýra sveitinni í flutn- ingi á tveimur af verkum hans.“ Flestar listgreinar fá sitt rými á hátíðinni; auk tónlistar og mynd- listar koma bókmenntir við sögu því pólski rithöfundurinn Olga Tokarczuk verður gestur hátíðar- innar en sérstök dagskrá verður haldin henni til heiðurs næstkom- andi mánudag þar sem rithöfund- urinn Sjón mun kynna hana og verk hennar fyrir íslenskum áheyrendum. Á Smíðaverkstæði Þjóðleik- hússins mun látbragðsleikarinn Ireneusz Krosny sýna verk sitt „One Mime Theatre“. „Látbragðs- leikur er mjög tengdur Póllandi og þessi magnaði listamaður er einn af þeim snjöllustu. Hann verður með þrjár sýningar í Þjóðleikhús- inu sem er skemmtun fyrir alla aldurshópa sem allir skilja því vit- anlega er ekkert talað í sýning- unni,“ segir Marta. Kvikmynda- listinni verður einnig sinnt því í von er á listaparinu Dorotu Kedzi- erzawska og Arthur Reinhart með milligöngu kvikmyndahátíðarinn- ar RIFF en mynd Kedzierzawska „Ég er“ verður sýnd á hátíðinni. Rúmlega þrjátíu gestir koma frá Póllandi; auk listamannanna koma háskólanemar frá Varsjá sem ætla að fræða áhugasama um menningu og pólska tungu og efna til pólsks diskóteks á Nasa. Pólsk nýlist og ljósmyndun fær sinn sess og tónlistin vitanlega einnig. „Það eru fjölmargir pólskir tón- listarmenn búsettir hér á landi,“ útskýrir Marta en á sunnudaginn verða sérstakir minningartónleik- ar um einn þeirra, fiðluleikarann og tónskáldið Szymon Kuran. Pólskur djass og flautumúsík munu hljóma en söngkonan Magga Stína mun líka veita liðsinni sitt og flytja þekkt pólsk lög með enskum og íslenskum texta. Marta útskýrir að hátíðinni sé ætlað að efla samvinnu og skiln- ing en viðburðir sem þessir virki auðvitað í báðar áttir. „Það kom mér á óvart hversu mikið Íslend- ingar vita um Pólland og það hefur auðvitað verið mjög hjálplegt. Þetta er frábært tækifæri til að efla samskipti og því má ekki gleyma að íslensk menning er mjög áhugaverð í augum Pólverja og samskiptin ganga í báðar áttir.“ „Ég veit ekki hvort þetta verð- ur árlegur viðburður, þessi skipu- lagning tók tvö ár en við höfum áætlanir fyrir næsta ár. Kannski gerum við eitthvað aðeins minna næst. Ég held að við stefnum meira á ólympískt fyrirkomulag og kannski hátíð á fjögurra ára fresti,“ segir Marta hlæjandi að lokum. Nánari upplýsingar um dag- skrána er að finna á heimasíðunni www.polska.is. kristrun@frettabladid.is Eitthvað pólskt fyrir alla ANNA WOJTYNSKA OG MARTA MACUGA Segja tíma kominn til að vekja athygli á framlagi Pólverja og veru þeirra hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Hönnuðurinn Una Mist Óðinsdóttir fékk afhentan smíðagrip, sérlegt prinsessuháls- men, frá gullsmiðnum Sif Ægisdóttur á dög- unum. Una Mist tók þátt í teiknisamkeppni sem gullsmíðastofan og galleríið Hún og hún á Skólavörðustíg stóð fyrir á Menning- arnótt og varð hlutskörpust að þessu sinni. „Þetta er í þriðja sinn sem við stöndum fyrir teiknisamkeppni á Menningarnótt en það er alltaf jafn erfitt að velja,“ segir Sif. „Ætli það hafi ekki borist ríflega hundrað myndir í ár.“ Upphaflegan innblástur sinn fékk Sif frá ungum syni sínum en hún hefur gert talsvert af því að smíða eftir teikningum barna, bæði sinna eigin og annarra. „Krakkar á aldrinum 3-5 ára teikna mjög skemmtilegar myndir sem auðvelt er að smíða eftir en það verður flóknara eftir því sem börnin eldast. Gripirnir eru mjög persónulegir og tilvaldir til gjafa, til dæmis fyrir ömmu og afa,“ segir Sif. Frumlegur unghönnuður GULLSMIÐURINN SIF ÆGISDÓTTIR OG UNA MIST MEÐ GRIPINN GÓÐA Fimm ára gamall hönnuður með sitt fyrsta hálsmen. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Nemendaleikhúsið frumsýnir Hvíta kanínu í kvöld, leiksýningu sem er unnin úr þeirra eigin efni- viði með aðferð sem kennd er við „devised“. Þessi samsetta sýning fjallar að sögn meira um sameigin- lega kvöl en hvítar kanínur. Bjarni Snæbjörnsson er einn leikaraefnanna níu sem taka þátt í sýningunni en hann útskýrir að vinnuferlið hafi verið árangursríkt og spennandi. „Við höfum lítillega kynnst þessari vinnuaðferð í skól- anum en þetta er búið að vera mjög gefandi fyrir okkur. Hópurinn hefur verið á kafi í þessu ásamt Jóni Páli Eyjólfssyni leikstjóra, Ilmi Stefánsdóttur sem sér um leikmynd og búninga og ljósahönn- uðinum Hönnu Kayhkö. Í upphafi komu þau inn með fullt af búning- um, pappakössum, dagblöðum, dýnum og öðru dóti sem við lékum okkur með. Þetta er ekki spuna- verk heldur lékum við okkur áfram með þessa hluti og fundum eitt- hvað nýtt á hverjum degi sem rat- aði inn í sýninguna,“ segir hann. Hann vill þó sem minnst láta uppi um ætlun eða boðskap verksins enda vill hann láta það eftir leik- húsgestum að upplifa. Bjarni segir að forvitnilegasta uppgötvun þeirra hafi verið að finna kvölina sem virðist sameig- inleg öllum vestrænum mönnum. „Það er í raun viðfangsefni sýning- arinnar. Við lifum öll í brjáluðu neyslusamfélagi og erum skil- greind eftir því sem við erum,“ segir hann og áréttar að hulstrið eða kassinn sem fólk kemur sér fyrir í sé skilgreindur af veraldleg- um eigum, húsnæði, bílum og heimabíógræjum. „Því spyrjum við: Hvað er fólk í raun þegar þetta dót er allt tekið í burtu, hver er maðurinn eða konan?“ Leikhópinn skipa auk Bjarna þau Anna Svava Knútsdóttir, Hall- grímur Ólafsson, Kristín Þóra Har- aldsdóttir, Magnús Guðmundsson, Sara Marti Guðmundsdóttir, Sig- rún Huld Skúladóttir, Tinna Lind Gunnarsdóttir og Vignir Þór Val- þórsson. Vitanlega er spenna í hópnum en líka kraftur og einbeit- ing enda er fyrsta verkefnið þeirra hjartans mál. „Það er stórkostleg tilfinning að eiga svona mikið í einni sýningu. Maður er svo trúr og sannur efn- inu og stendur með því frá upp- hafi til enda.“ - khh Hver er maðurinn? NEMENDALEIKHÚSIÐ 2006 Leikaraefnin níu frumsýna fyrsta verkefni vetrarins í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Mírgorod Gogols Hávallaútgáfan gefur út smásagnasafn eftir rithöfundinn Nikolaj Vasilevitsj Gogol undir heitinu Mírgorod en titillinn vísar til borgar á bökkum árinnar Khorol. Í bókinni eru fjórar smásögur hans sem allar vísa til heimahaga skáldsins í Úkraínu sem ólst upp í Poltavahéraði fram á tvítugs- aldur þegar hann flutti til St. Pétursborgar. Smásagnasafnið kom út árið 1835 og fékk ágætar viðtökur en Gogol hafði áður gefið út safnið Kvöld í bæ við Dikanka. Gogol dó árið 1852 í Mosvku en talið er að hann hafi svelt sig í hel. Fyrir tveimur árum gaf Hávallaútgáfan út smásagnasafnið Pétursborgarsögur eftir sama höfund. Þýðendur sagnanna eru Árni Berg- mann, Áslaug Agnarsdóttir og Þórarinn Kristjánsson. SMÁSÖGUR FRÁ ÚKRAÍNU Rithöfundurinn Gogol skrifaði um heimaslóðir sínar. NÝJAR BÆKUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.