Fréttablaðið - 10.10.2006, Blaðsíða 8
8 10. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR
FÉLAGSMÁL Stór þáttur í fötlun geð-
fatlaðra er sú staðreynd að þeim
hefur um aldir verið markvisst
útskúfað félagslega. Stefnan sem
nú hefur verið tekin í þessum
málum markar tímamót. Þetta
sagði Héðinn Unnsteinsson, ráð-
gjafi hjá Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnuninni, um framkvæmdar-
áætlun í þjónustu við geðfatlaða
til ársins 2010 sem Magnús
Stefánsson félagsmálaráðherra
kynnti í gær.
Áætlunin miðar meðal annars
að því að útbúa fjölbreyttari þjón-
ustuúrræði fyrir geðfatlaða. Litið
er til þess sem vel hefur gefist ann-
ars staðar á Norðurlöndum sem og
í Bandaríkjunum í því skyni að
finna raunhæfar leiðir til að auka
sjálfstæði notenda geðheilbrigðis-
þjónustunnar og rjúfa félagslega
einangrun þeirra. Búseta í íbúðar-
kjarna, fyrir sex einstaklinga í
mesta lagi, eða þjónustuíbúð með
fjölbreyttri og sveigjanlegri þjón-
ustu er eitt þeirra atriða sem rík
áhersla er lögð á að koma í fram-
kvæmd. Reynslan þykir hafa sýnt
að slík úrræði stuðli að jafnvægi í
heilsu einstaklinga og dragi úr
líkum á endurinnlögnum á sjúkra-
hús. Ef áætlanir ganga eftir er ætl-
unin að þörfum geðfatlaðs fólks
fyrir þjónustu vegna búsetu verði
fullnægt árið 2010.
Kostnaðaráætlun gerir ráð fyrir
að stofnkostnaður við búsetu- og
stoðþjónustu við geðfatlað fólk
nemi einum og hálfum milljarði en
tekin hefur verið ákvörðun um að
verja einum milljarði af söluand-
virði Símans til verkefnisins og að
hálfur milljarður komi úr Fram-
kvæmdasjóði fatlaðra. Rekstrar-
kostnaðurinn verður fjármagnað-
ur af félagsmálaráðuneytinu.
Félagsmálaráðherra segir
markmið nýrrar stefnumótunar að
geðfatlað fólk njóti sambærilegra
lífskjara og lífsgæða og aðrir
þegnar þjóðfélagsins. Metnaður sé
til þess að fagleg þekking og færni
starfsfólks verði á við það sem
best gerist í Evrópu.
„Samfélagið þarf að aðlagast
geðfötluðum og þeir því. Við stönd-
um nú á krossgötum. Stefnan er nú
orð á pappír, en orð eru til alls
fyrst. Það felst mikið tækifæri í
því að félagsmálaráðuneytið komi
að þessari stefnumótun með nýrri
nálgun. Stjórnvöld eru að stíga sín
fyrstu skref í tilfærslu á þessari
þjónustu frá stofnunum og út í
samfélagið,“ segir Héðinn, sem
bindur miklar vonir við að hagur
geðfatlaðra batni með nýrri
stefnu. karen@frettabladid.is
Búsetuþörfum verði
fullnægt árið 2010
Stefna og framkvæmdaáætlun félagsmálaráðuneytisins vegna átaks í þjónustu
við geðfatlaða var kynnt í gær. Á annað hundrað manns þarfnast nú sérstakrar
búsetuþjónustu. Þeirri þjónustu á að verða fullnægt árið 2010.
ÁTAK Í MÁLEFNUM GEÐFATLAÐRA Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra kynnti í
gær stefnu og framkvæmdaáætlun vegna átaks í málefnum geðfatlaða. Í áætluninni
er einkum leitast við að bæta búsetuúrræði geðfatlaðra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VATÍKANIÐ Vatíkanið er ekki að
hugleiða að afnema hreinsunar-
eldinn, „purgatorio“, úr kenni-
setningu sinni um handanheima
eins og sagt var í Fréttablaðinu í
gær. Aftur á móti er talið að Bene-
dikt páfi telji það vænlegan kost í
nútímavæðingu kaþólsku kirkj-
unnar að afnema það sem kallað
er „limbus“ á latínu, sem þýtt
hefur verið sem „forgarður hel-
vítis“ á íslensku. Orðið limbus
hefur svo ratað inn í íslensku sem
limbó.
Limbus hefur aldrei verið þátt-
ur í grundvallarkennisetningu
kirkjunnar, og hefur páfinn sjálf-
ur kallað forgarðinn „guðfræði-
lega tilgátu“. Hugmyndin er
þekkt síðan á þrettándu öld og
var hún notuð til að hlífa óskírð-
um börnum við helvítisvist. Börn
sem dóu óskírð áttu þannig að
fara í limbó, þar sem væri engin
þjáning, né heldur blessun guðs.
Þau voru því hvorki á himnum né
í helvíti.
Hugmyndin um forgarð helvít-
is hefur verið svo óvinsæl í seinni
tíð að sjaldan er á hana minnst í
kaþólskum messum. Árið 1990
var hún fjarlægð úr trúfræðslu
kaþólsku kirkjunnar. Þetta hefur
verið gagnrýnt í Afríku og á
öðrum svæðum þar sem ung-
barnadauði er algengur og mun
hafa torveldað kaþólskt trúboð á
þeim slóðum. Óskírð börn mús-
lima fara beint til himna. - kóþ
Talið að Benedikt XVI páfi telji vænlegt að nútímavæða kaþólsku kirkjuna:
Forgarður helvítis afnuminn
BENEDIKT XVI Páfi mun nú íhuga að fjarlægja forgarð helvítis úr kennisetningu kaþ-
ólsku kirkjunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Akur-
eyri fann í fyrrakvöld milli tuttugu
og þrjátíu grömm af hvítu efni
sem falið var í lofthreinsibúnaði
bifreiðar karlmanns á þrítugs-
aldri, sem var nýkominn til Akur-
eyrar frá Reykjavík. Lögreglan
hafði fylgst með ferðum mannsins
en hann hefur margsinnis komið
við sögu lögreglu vegna brota á
lögum um fíkniefni.
Lögreglan færði bifreið manns-
ins á lögreglustöðina á Akureyri
eftir að grunur vaknaði um að
fíkniefni væru falin í bifreiðinni.
Fíkniefnahundar lögreglunnar
voru notaðir við leitina og fundu
þeir efnin falin í bifreiðinni. Unnið
er að efnagreiningu á duftinu en
talið er að um örvandi efni sé að
ræða.
Í gærkvöldi fannst einnig lítil-
ræði af fíkniefnum í fórum sextán
ára gamallar stúlku, er hún var að
koma með flugi frá Reykjavík til
Akureyrar. Fannst efnið á stúlk-
unni við hefðbundna leit lögreglu
á flugvellinum á Akureyri.
Daníel Guðjónsson, yfirmaður í
rannsóknardeild lögreglunnar á
Akureyri, segir fíkniefnamál
verða sífellt fyrirferðarmeiri í
störfum lögreglunnar á Akureyri.
„Við finnum fyrir því að fíkniefna-
neysla ungmenna er orðin nokkuð
almenn hér á Akureyri. Við höfum
meira en nóg að gera við að upp-
ræta fíkniefnastarfsemi hér á
Akureyri, en svo virðist sem
skipulögð glæpastarfsemi teygi
anga síðan hingað, eins og vítt og
breitt um landið.“ - mh
Tvö aðskilin fíkniefnamál komu upp á Akureyri fyrr í vikunni:
Fundu hvítt duft í bifreið
LÖGREGLAN Á AKUREYRI AÐ STÖRFUM
Lögreglan fann í vikunni lítilræði af hassi
og hvítt duft sem á eftir að efnagreina.
Láttu draumi
nn
rætast !����
�����
�������
������
�������
����
�������
�����
���
��������������������������������������������������