Fréttablaðið - 10.10.2006, Blaðsíða 40
■■■■ { vinnuvélar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■12
Í leigumarkaði Byko í Breiddinni
er lipur stúlka við afgreiðsluborð-
ið. Hún heitir Sigrún Elíasdóttir
og svaraði greiðlega spurningum
blaðamanns.
-Hvaða tæki eru mest lánuð út
og hversu lengi er fólk með þau?
„Brotvélarnar sem notaðar eru
til að mylja niður veggi og brjóta
fyrir rörum í gólfinu, rotþróm og
öðru, eru líklega þær vélar sem
algengast er að fólk leigi. Þær eru
til í nokkrum stærðum og eru ekki
mjög vandmeðfarnar. Stundum
er fólk með þær í klukkutíma og
stundum fleiri daga. Það fer eftir
því hvað mikið þarf að brjóta og
hversu öflug vélin er.“
-Eru það ekki einkum karlar
sem fá brotvélar lánaðar?
„Jú, en hitt kemur líka fyrir að
konur leigi þær. Svo er mikil eft-
irspurn eftir sláttuvélum á sumrin
og sláttuorfum líka og áhöld til
runna- og trjáklippinga eru vinsæl
á vorin og haustin. Við erum með
hekkklippur, bæði rafmagns- batt-
erís- og bensínklippur og sömu-
leiðis keðjusagir. Ryksugurnar eru
líka mikið lánaðar út, þá helst með
steinsugum. Steinryk er svo rosa-
lega þungt að það skemmir venju-
legar ryksugur. Nú svo má nefna
háþrýstidælurnar. Þær minnstu
eru 150 bör. Þær eru ágætar til að
þrífa stéttina, þakið og húsið. En
til að losa málningu þarf sterkari
dælu og við erum með þær allt
upp í 280 bör. Teppahreinsivélarn-
ar eru rosalega vinsælar hjá hús-
mæðrum landsins og margir nota
hreinsivélarnar líka til að þrífa
sætin í bílunum sínum. Svo þurfa
ýmsir að fá lánaða stiga og palla.
Reyndar er meira um að fólk taki
pallana, hálfgerða stillansa.“
-Þarf fólk ekki að vera með
kerru undir þá?
„Jú í flestum tilfellum eða
leigja sendiferðarbíl. En sumir
fá sér bara einfaldan pall sem er
svona 2,50 m á hæð og hann er
hægt að flytja aftur í venjulegum
fjölskyldubíl ef sætisbökin eru
lögð fram.“
-Er ekki erfitt að koma pöllun-
um upp heima?
„Nei, Það er ekki svo flókið
þegar maður veit hvað maður er
að gera.“
-Hvað kostar að leigja... við
skulum segja... litla brotvél?
„Akkúrat eins og er, er tilboð
á minnstu vélunum. Fyrsti dagur-
inn er venjulega á 3.000 krónur
en er nú á 2.250.
-Ef fólk gleymir nú að skila
tækjunum. Getur skuldin ekki
orðið stór?
„Það fer auðvitað eftir því
hversu lengi dregst að skila hlutn-
um. Ef sláttuvél gleymist inni í bíl-
skúr í nokkra mánuði þá er reynt
að leysa það einhvern veginn. Það
má alltaf reyna að semja.“
-Er stöðug eftirspurn eftir tækj-
um á leigu?
„Já, en mest að gera á sumrin.
Þá er fólk að vinna í alls konar
endurbótum og viðhaldi á eignum
sínum. Svo minnkar eftirspurnin
aðeins eftir sumarfríin en helst
jöfn og þétt allan veturinn.“
-Eru tækin þung í hendi?
„Já, flest þeirra eru það.“
-Þarft þú stundum að bera þau
út í bíl fyrir viðskiptavini?
„Já, það kemur fyrir og ég geri
það með mestu gleði.“
gun@frettabladid.is
Brotvélar vinsælastar
Þegar framkvæmdir standa yfir er stundum þörf á tækjum sem ekki eru til á heimil-
inu. Þá koma áhaldaleigur að góðum notum.
Sigrún kann góð skil á tækjunum á leigumarkaði Byko. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
IAA Nutzfahrzeugmesse
Daimler-Chrysler - Stór-
veldið í í atvinnubílum
Mercedes Benz er þokkalega þekkt merki í atvinnubílum, en bara til að
vera viss voru þeir félagar M&B með sýningarsvæði á stærð við Hvera-
gerði. Nýi Sprinterinn var áberandi auðvitað, og AdBlue, þarna voru
ruslabílar og rútubílar, tröppur, svið, danspíur og grilljón vatta lýsing.
Helsta nýjungin var þriðji Unimoginn, ætlaður sópandi, skafandi, mok-
andi, flytjandi sveitarfélögum og nú er nebbinn alveg dottinn af. Húsið
er ofan úr hillu í þetta sinn, minnsta Atego-húsið, en þar undir er virðist
allt nýtt, grind, hásingar og kerfi. Fjarkinn er eina vélin.
Daily 4x4 - Önnur umferð
Með nýju úgáfunni af Daily reynir Iveco aftur fyrir sér með 4x4 útgáfu á
almennum markaði. Í þetta sinn er hásing á blaðfjöðrum undir himinhá-
um framendanum, og klárt mál að slíkir munu sækja um vinnu á Íslandi.
Þessi yrði feginn að komast úr steikjandi sólinni á útisvæðinu.
Meira magn, minna vegpláss
Það er plássleysi á evrópskum vegum. Allt er meira en minna flutt á
vörubílum, endimarka á milli. Það er von að leiða sé leitað til að koma
sama magni milli staða með minni fyrirferð og tilkostnaði. Þjóðverjar
líta í norður þar sem leyfð eru allt að 60 tonn í æki (Svíþjóð) með allt að
5 öxla vögnum, tveimur vögnum aftan í kassabíl, eða með vagni aftan í
tengivagni. Þannig er hægt að bæta allt að 20 brettaplássum við í hverri
ferð. Eitthvað fyrir okkur?