Fréttablaðið - 10.10.2006, Síða 30

Fréttablaðið - 10.10.2006, Síða 30
■■■■ { vinnuvélar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■2 Engin venjuleg messa það, held- ur stærsta sýning atvinnubíla í Evrópu, heiminum öllum held ég, haldin á tveggja ára fresti. Ferkílómetrar, já, heilt innhaf af atvinnubílum, tækjum og búnaði, kunnuglegum og framandlegum, nýjum og nokkrum gömlum með. Endalausar raðir af konfekti fyrir okkur sem frekar vilja láta vélar vinna en slíta eigin skinni. Synd með skóna. Dagarnir hefjast við sólarupp- rás sunnan Hannover í miðju Þýskalandi, og með elju og engum kaffitímum næst að skoða nánast alla bása fyrir sólsetur á fjórða degi. Ari Arnórsson segir nú frá örlitlu af því sem fyrir bar. Dýrðardagar atvinnutækjafíkilsins Það stórsér á skónum mínum. Sólarnir steiktir og slitnir. Saumsprettur, leðrið lúið. Af- leiðing ofurmaraþongöngu, sennilega vel það, í hita oft yfir 30 stig. Hvað þarf til að draga eindreginn andstæðing skósólaslits í gegn um slíkt? IAA Nutzfahrzeugmesse. Hinn, að því að virtist, ókleyfi múr Euro 5 hefur þegar verið klifinn og óvenju margar leiðir farnar. Kanón- ur Caterpillar mættu á blaðamanna- fund sannfærðir um hina einu réttu leið, sérstakur heljarinnar kútur fullur búnaðar sendir hreinsað, síað og kælt afgas til baka í soggreinina. Þetta dauða gas þynnir inntaksloft- ið, lækkar brunahitann og minnkar þar með köfnunarefnisoxíðmyndun strax í strokkunum. Vopnaðir Euro 5 skírteinum hyggjast þeir í Illinois olnboga sig inn á Evrópumarkað- inn sem ekki hefur hingað til gleypt Cat-mótora í neinu samræmi við heimamarkaðinn. Línan er 7, 9, 13 og 15 lítra, allt línusexur, þær stærri tvíblásnar (með raðtengdum forþjöppum) og framleiða allt að 625 tandurhrein hestöfl. Fussum svei fyrir því, sögðu ljós/ gráhærðir Scania-verkfræðingarnir tveir yfir laxasnittum, ósköp kurt- eislega þó. Rétta leiðin þeirra er ekki ósvipuð, en heldur „hefðbundnari“, rennir pústi skemmstu leið til baka að inntaksventlunum og treystir á ofurnákvæma brunastýr- ingu og virka sótsíu. Euro 5, án aukabúnaðar. Það er best. Ååe. Meiri vitleysan, segja þeir hjá Cummins. Eina rétta leiðin er amm- oníak. Eh, afsakið, AdBlue. Það er vörumerkið fyrir vatnsþynnt amm- oníak sem hafa þarf í sér tanki í bílnum og sprauta inn í pústið fyrir hvarfa- og sótkútana. Fylla þarf á AdBlue tankinn í annað til þriðja hvert skipti sem eldneyti er tekið – vesen - og það er heldur ekki ókeypis. En, sagði herra Cummins þar sem við stóðum við glans- andi Ferr- ari-rauðan nýjan ISB 6,7 mótor (arftaka hins geysiútbreidda 5,9 lítra): Eyðslan minnkar um 7% miðað við Euro 4, því brunanum má haga á hag- kvæmari, „skítugri“ hátt í strokkun- um og láta ammoníakið hvarfa upp pjaið á eftir. „Og veistu hvað“ sagði herra Cummins, nú kominn á trúnó, „kúnnarnir okkar sem fengu nýju ammoníakmótorana til prufu segj- ast spara 20% í olíu. Við megum sko bara ekki segja svoleiðis. Það tryði okkur enginn“. Ekki veit ég hvort ég trúi því heldur, fagtímaritin hafa verið að taka fyrir Benz og fleiri AdBlue- brúkara og eru niðurstöðurnar ekki afgerandi. Vissulega eyða ammon- íakdrekkarnir yfirleitt að meðaltali ívið minna en afgasæturnar, en á móti kemur kostnaður og umstang við aukavökvann. Klárist hann, sér stýrikerfi mótorsins um að rýra aflið svo að ökumaðurinn þráir ekkert heitara en næsta AdBlue bar. Hvar sem hann nú er. -aa Hreint loft, fagurt púst Meðal stórfyrirtækjanna og vélaframleiðandanna var mikill reykur í kring um mengun- arvarnir. Fátt er hærra á forgangslistanum, bæði hjá seljendum og kaupendum. Fyrir ammoníakneytendurna er búið að bæta aukatanki í bílinn. Hann getur verið sér, eða sambyggður olíutanknum eins og hér. Bara passa að setja réttan vökva á réttan stað. Ekkert smáflykki, afmengunarbúnaðurinn í vörubílum framtíðar. Hér er Caterpillar-kúturinn. Ein stærsta vörubílaverksmiðja heims. Er rússnesk, og stærst heima fyrir. Þeir vilja gjarnan pota sér í vestur, þótt lítill ys hafi verið á svæðinu þeirra í Hann- over. Yfirskegglingarnir tveir á standinum voru í þurrara lagi á sölumannamælikvarðanum, en ef þessi 8x8 kaggi er á Löduverði, þá – hmmmm. Þessi var ekki á túndrutúttunum sem Rússarn- ir framleiða í massavís, heldur stífbónuðum 16.00-20 Michel- in. Annars var þessi Kamaz með eigin gírkassa, hásingar, eigin 400 ha V8 (Euro 3), en Caterpillarrell- ur fyrir aðeins meiri aur og hærra Eurostig. Kamaz, kanúþa? Mikið úrval af hífi - og festingabúnaði Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is Starfstöðvar Ísfells og Ísnets: • Ísnet Sauðárkrókur - Háeyri 1 • Ísnet Akureyri - Fiskitangi • Ísnet Húsavík - Uggahúsi • Ísnet Hornafjörður - Ófeigstanga • Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19 • Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28 www.isfell.is Hífi bitar • Lyftikeðjur og krókar • Stroffur • Strekkiborðar Kranavír • Vinnsluvír • Plastborðar • Stálborðar • Vantspennur Víraklemmur • Talíur • Púllarar • Dyneema ofurtóg Handbindivélar og margt margt fl eira! HÍFIBITAR NÝTT Bitana er hægt að lengja og stytta! IAA Nutzfahrzeug

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.