Fréttablaðið - 10.10.2006, Blaðsíða 71

Fréttablaðið - 10.10.2006, Blaðsíða 71
KVIKMYNDIR [UMFJÖLLUN] Hryllingsmyndir eru oft tengdar við unglinga, blóði drifnar, fullar af líkamsmeiðingum og oftast mark- aðssettar sem bannaðar innan 18 ára. Hryllingur hefur því oft lítil tengsl við börn yfir sjö ára aldri. Teiknimyndin Monster House eða Hryllingshúsið brýtur hins vegar ákveðið blað í þessum efnum. Söguþráðurinn er á þá leið að ungl- ingsstrákurinn DJ glímir við alla fylgifiska gelgjunnar og á í erfið- leikum með að gera sér grein fyrir hvort hann sé fullorðinn eða barn. Honum stendur stuggur af húsinu á móti þar sem hinn skapstyggi Nikódemíus býr en hann hótar krökkum, bréfberum og öðrum öllu illu ef þeir nálgist húsið hans. Þegar Nikódemíus deyr verður DJ þess var að húsið á sitt eigið líf og vill fá sitt að borða, líkt og mann- ætuplantan í Litlu hryllings- myndabúðinni. DJ ákveður því í samvinnu við vin sinn Chowder og ástina í lífi sínu, Jenny, að ráða niðurlögum hússins með óvæntum uppljóstrunum úr fortíðinni. Monster House er vel gerð, persónurnar líflegar og skemmti- legar, þá sérstaklega hinn þybbni Chowder sem er ekki alveg á sama tímapunkti í lífi sínu og vinur sinn DJ. Íslenska talsetningin er til fyrirmyndar að venju og Sigurður Sigurjónsson er sérstaklega skemmtilegur sem hin ógurlegi Nikódemíus. Myndin er spennu- þrungin og á köflum það hryllileg að hinum fullorðnu á eftir að bregða í brún og þykja jafnvel nóg um, óttast ef til vill að krakkarnir festi ekki svefn eftir bíóferðina. Þeir þurfa hins vegar engar áhyggjur að hafa því smáfólkið veit sem er að þetta er jú bara teiknimynd. Freyr Gigja Gunnarsson Spenna fyrir börnin MONSTER HOUSE LEIKSTJÓRI: GIL KENAN Aðalraddir: Mitchel Musso og Steve Buscemi. Niðurstaða: Monster House er stórskemmti- leg hryllingsmynd fyrir alla fjölskylduna sem kemur ekki í veg fyrir svefn hjá smáfólkinu. Miðasala á Airwaves-hátíðina sem nálgast nú óðfluga hefur gengið framar öllum vonum, en aðstand- endur hátíðarinnar búast við allt að tvö þúsund erlendum gestum í ár. Í Bandaríkjunum, þar sem miðasala fór fram í gegnum sölustöðvar Ice- landair, er nánast uppselt, á meðan Icelandair í Skandinavíu hefur slegið sölumet. Til að anna eftir- spurn mun Icelandair einnig senda stærri vélar til Bretlands föstudag- inn 20. október og sunnudaginn 22. október. Áhugi erlendra fjölmiðla á hátíðinni er mikill í ár. Channel 4 og afþreyingarstöðin E4 munu senda tökulið til landsins og áforma þáttagerð um hátíðina, en einnig er von á fjölmiðlafólki frá BBC, ríkis- útvarpi Danmerkur og Noregs, Euronews í Frakklandi og Pitchfork.com. Eins munu tímarit- in Spex, Kerrang! og verðlaunarit- ið Clash Magazine fjalla um og hafa eigin kvöld eða svið á hátíð- inni. Miðasala hérlendis hófst fyrir þremur vikum, en yfir helmingur miðanna hefur þegar selst. Upp- selt hefur verið á hátíðina síðustu tvö árin og stefnir í að sama verði upp á teningnum í ár. Það fer því hver að verða síðastur að tryggja sér miða á Airwaves. Miðasala gengur vonum framar FRÁ AIRWAVES Í FYRRA Fjöldi starfs- manna frá útgáfufyrirtækjum og tón- listarhátíðum hefur boðað komu sína á hátíðina í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Kvikmyndin The Departed sló öllum við í kvikmynda- sölum Bandaríkjanna en henni er leikstýrt af fremsta kvikmyndaleik- stjóra Bandaríkjanna. The Departed er endurgerð kvik- myndarinnar Wu jian dao sem gerð var í Hong Kong og segir frá Colin Sullivan, sem nær að brjót- ast til æðstu metorða innan Boston-lögreglunnar í þeim til- gangi að njósna um aðgerðir henn- ar gegn glæpaforingjanum Frank Costello. Án nokkurrar vitneskju um þennan svikara felur lögregl- an hinum unga Billy Costigan að komast inn í innsta hring Costello og afla upplýsinga um hinn valda- mikla foringja. The Departed hefur verið beðið með mikilli eftir- væntingu enda snýr Scorsese þar aftur til þeirrar kvikmyndagerðar sem flestir telja að henti honum best með glæpaforingjum, spillt- um löggum og dágóðum skammti af ofbeldi í fyrirrúmi. Leikhópur- inn er heldur ekki árennilegur en í helstu hlutverkum eru þeir Jack Nicholson, Matt Damon, Leonardo DiCaprio og Ray Winstone. Gagn- rýnendur hafa keppst um að hrósa myndinni og segja hana þá bestu úr smiðju Scorsese í háa herrans tíð. Aðdáendur Scorsese hafa margir hverjir orðið fyrir von- brigðum með tvær síðustu myndir hans, Gangs of New York og The Aviator. Þeir geta væntanlega tekið gleði sína á ný því erlendir fjölmiðlar hafa sett The Departed á sama stall og Goodfellas, bestu mynd leikstjórans að margra mati. - fgg Fjölmiðlar fagna endur- komu Martins Scorsese KAMPAKÁTUR Á FRUMSÝNINGU Martin Scorsese ásamt stórum hluta þess flotta leikhóps sem prýðir nýjustu mynd hans, The Departed. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES Breski raunveruleikaþátturinn X - Factor er í uppnámi eftir að upp komst að fleiri en einn þátttakandi væri hugsanlega á samningi hjá umboðsfyrirtæki í Liverpool. Strákasveitin Eaton og söngvar- inn Ray liggja sterklega undir grun um að hafa logið í áheyrnar- prufum en breska götublaðið News of the World greinir frá þessu á heimasíðu sinni. Þar er sagt frá því að umboðsfyrirtækið Colette Fenlon hafi þessa aðila innan sinna vébanda sem er skýrt brot á leikreglum X-Factor og koma fréttirnar á ákaflega óheppi- legum tíma því stutt er síðan að strákasveitinni Avenue var spark- að. Talsmenn sjónvarpsþáttarins neita staðfestlega að svona sé í pott- inn búið og að þessum þátttakend- um verði ekki vikið úr keppni. Heimildarmaður News of the World sagði hins vegar í samtali við blaðið að stjórnendurnir væru æfir yfir þessu. „Hvað er Coll- ette Fenlon annað en umboðsfyrir- tæki? Hvað er þetta annað en brot á leikregl- unum?“ X - Factor í uppnámi EKKI SKEMMT Simon Fuller, einum frumkvöðla X -Factor, er væntanlega ekki skemmt þessa dagana enda þáttaröðin í uppnámi eftir lygar og svik þátttakenda. HARÐSKEYTTUR DÓMARI Simon Cowell er einn dómara í X-Factor. Deitmynd ársins. Þegar þú færð annað tækifæri þarftu að taka fyrsta sporið. Hörkumynd með Christian Bale úr „Batman Begins“ og Eva Longoria „Desperate Housewives“ Frá höfundi „Training Day“ KVIKMYNDIR.IS ��� ÓLAFUR H. TORFASON RÁS2 BÖRN KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON ÓBYGGÐIRNAR „THE WILD“ Sýnd með íslensku og ensku tali ! Stórmynd sem lætur engan ónsnortin. ATH! Engvir Þjóðverjar voru skaðaðir eða meiddir á meðan tökum myndarinnar stóð. Þú átt annaðhvort eftir að jóðla af hlátri og eða springa úr hlátri. Oliver Stone fráNýjasta stórvirkið ���� EMPIRE BBC ROLLING STONE ��� ��� ���� TOPP 5.IS HAGATORGI • S. 530 1919 WORLD TRADE CENTER kl. 5:50 - 8 - 10:40 B.i. 12 WORLD TRADE CENTER VIP kl. 4 - 8 - 10:40 BEERFEST kl. 5:50 - 8 - 10:15 B.i. 12 HARSH TIMES kl. 10:40 B.i. 16 NACHO LIBRE kl. 3:45 - 8 B.i. 7 ÓBYGGÐIRNAR M/- Ísl tal kl. 4 - 6 Leyfð THE WILD M/- ensku tal kl. 4 Leyfð BEERFEST kl. 5:45 - 8 -10:10 B.i. 12 HARSH TIMES kl. 8 - 10:20 B.i. 16 BÖRN kl. 8 - 10:10 B.i.12 UNITED 93 kl. 5:45 B.i.14 WORLD TRADE CENTER kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ÓBYGGÐIRNAR M/- Ísl tal kl. 6 Leyfð THE ALIBI kl. 8 - 10 B.i. 12 BÖRN kl. 5:50 - 8:30 B.i.12 STEP UP kl.3:45-5:50-8-10:15 B.i. 7 MAURAHRELLIRINN M/- Ísl tal kl. 3:45 Leyfð THE PROPOSITION kl. 10:40 B.i. 16 BEERFEST kl. 8 - 10:15 B.i. 12 AN INCONVENIENT TRUTH kl. 10 NACHO LIBRE kl. 8 B.i. 7 / ÁLFABAKKA / AKUREYRI/ KEFLAVÍK/ KRINGLUNNI Munið afsláttinn Truflaðasta grínmynd ársins er komin. Stórmynd sem lætur engan ónsnortin. WORLD TRADE CENTER kl. 6 - 8:30 - 10:10 B.i. 12 THE ROAD TO GUANTANAMO kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 16 THE QUEEN kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 12 ÓBYGGÐIRNAR M/- Ísl tal kl. 6 Leyfð BJÓLFSKVIÐA kl. 8 B.i.16 PIRATES OF CARIBBEAN 2 tilboð 400 kr kl. 10:10 B.i. 12 THE ROAD TO GUANTANAMO ���� S.V. MBL EINN ÓVÆNTASTI GLEÐIGJAFI ÁRSINS ��� MMJ KVIKMYNDIR.COM SIGURVEGARI kvikmyndahátíðin í Berlín BESTI LEIKSTJÓRINN ótextuð www.haskolabio.is Þriðjudagar eru bíódagar 2 fyrir 1 í Sambíóin fyrir viðskiptavini sparisjóðsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.