Fréttablaðið - 10.10.2006, Page 80

Fréttablaðið - 10.10.2006, Page 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 ���������� ����������������������������� Hæfileiki mannsins til að komast af er mér sífellt undrunarefni. Nú er ég ekki að tala um aðlögunarhæfni og seiglu við hroðalegar aðstæður eins og náttúruhamfarir og stríð, heldur bara svona ósköp hversdagsleg kraftaverk sem gerast á venju- legum þriðjudegi. Miðað við allt það sem getur farið úrskeiðis í lífi einnar manneskju alveg frá getnaði er makalaust hversu margir ná að lifa langa ævi. Ein meðganga er til dæmis vörðuð hindrunum og í fæðingu getur allt gerst. Með splunkunýjan unga í höndunum og allt í lukk- unnar velstandi anda foreldrarn- ir út úr sér svona tíunda hjúkk- inu af óendanlega mörgum. FRÁ morgni til kvölds er minnsta barnið á heimilinu upp- tekið við að skríða ógnarhratt um heimilið í leit að lífshættum. Þrátt fyrir dálítil tilþrif heimilis- fólks í hreingerningum tekst henni sífellt að finna eitthvað skemmtilegt á gólfinu að borða og furðuleg heppni að aldrei hafi hlotist af slys. Miðað við það sem mér hefur tekist að veiða upp úr kokinu á telpukorninu á elleftu stundu gæti maður haldið að hún byggi á móttökustöð Sorpu, að minnsta kosti hefur hún einstak- lega fordómalausan smekk á smáréttum af ýmsu tagi. Flygsa af eldhúsrúllu, lítil gúmmíteygja og kusk er meðal þess sem hún telur alveg prýðilegt og finnst upplagt að spæna í sig Frétta- blaðið þegar færi gefst. Skótau er með ýmsu forvitnilegu bragði en í sérstöku uppáhaldi er samt kattamaturinn, hann er hrika- lega góður. Af því okkur grunar að hann sé einkum búinn til úr úrgangi þarf kötturinn þessa dagana að matast að næturlagi sem honum finnst reyndar frek- ar fúlt. ÞVÍ miður eru skynsemi og var- kárni áunnir eiginleikar en ættu auðvitað að vera meðfæddir. Það finnst foreldrunum sem eru með taugakerfið utanáliggjandi alla daga og hafa líka á sér dálítinn vara um nætur, sofa með annað augað opið eins og varðhundar í kindahjörð. Líta ekki innstungur og tröppur réttu auga, heldur sjá slysagildrur í hverju horni. Gá hundrað sinnum hvort þeir hafi ekki örugglega lokað hliðinu fyrir stiganum og hringja heim til að athuga hvort aðrir hafi nú munað eftir því líka. Mesta orkan fer samt bara í að vona það besta. Börnin mín ung og smá Tveir sterkir sparnaðarreikningar á netinu Þú færð nánari upplýsingar og getur stofnað reikning á spron.isARG US / 06 -0 36 4 SPRON Vaxtabót – allt að 13,50% vextir* SPRON Viðbót – allt að 4,80% vextir* * Samkvæmt gildandi vaxtatöflu SPRON 1. október 2006

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.