Fréttablaðið - 10.10.2006, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 10.10.2006, Blaðsíða 23
Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. Sigurður Hjaltason leikari æfir líkams- rækt af fullum krafti fyrir hlutverk í leikritinu Patrekur 1,5. Í leikritinu leikur Sigurður drenginn Patrek sem hommar ættleiða fyrir algjöran mis- skilning. „Vegna mistaka í skýrslugerð heldur parið að það sé að ættleiða eins og hálfs árs strák, en komma eða kaffiblettur hefur lent á milli tölustafanna eins og fimm, og þeir sitja uppi með fimmtán ára síbrota- ungling,“ segir hann hlæjandi. „Þótt strák- urinn sé kannski hraustlegur að sjá hefur hann valið sér allt annað en heilsusamleg- um lífsstíl.“ Sigurður er algjör andstæða við persón- una sem hann leikur í Patrekur 1,5. Hann spilar fótbolta að staðaldri og passar upp á mataræðið án þess að fara út í einhverjar öfgar. Hann er nýútskrifaður úr námi við Rose Bruford College í Englandi þar sem nemendum var bannað að æfa líkamsrækt af því hún þótti vinna gegn lipurð. „Svo ótt- uðust kennararnir að nemendurnir fengju bara tiltekin hlutverk væru þeir of vöðva- stæltir,“ útskýrir Sigurður. „Ég var frekar grannur eftir útskrift en hef heldur betur snúið blaðinu við eftir að ég tók hlutverk Patreks að mér.“ Sigurður hefur varið töluverðum tíma í líkamsrækt til að undirbúa sig fyrir hlut- verkið, en hann æfir að meðaltali sex sinn- um í viku í tvo tíma í senn. „Ég lyfti í um það bil fjörtíu mínútur eftir upphitun og brenni með,“ útskýrir hann. „Ég skipti dögum eftir líkamshlutum. Markmiðið er þó ekki að verða einhver hlunkur, heldur að komast í gott form. Það er reyndar með ólíkindum hversu fljótt það gerist eftir að maður hefur komið sér upp stundaskrá. Ég hvet sem flesta til að stunda heilbrigðan lífsmáta og ræktin er ágætis upphafspunkt- ur.“ roald@frettabladid.is Sneri blaðinu við Sigurður Hjaltason leikur síbrotaungling sem hefur margt á samviskunni í Patrekur 1,5, leikriti sem sýnt verður í framhaldsskólum víðs vegar um landið og í Þjóðleikhúsinu í nóvember- byrjun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Heimild: Almanak Háskólans GÓÐAN DAG! Í dag er þriðjudagurinn 10. október, 283. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 8.02 13.15 18.26 Akureyri 7.50 12.59 18.07 PRO FITT ER NÝTT PRÓTÍNDUFT SEM HEFUR VERIÐ LAGAÐ AÐ ÍSLENSKUM SMEKK. Pro Fitt er fyrsta fæðubótarefni sinnar tegundar sem er sérstak- lega lagað að bragðskyni og þörfum Íslendinga. Íþróttafræðingurinn Goran Micic og iðnfyrirtækið Katla þróuðu Pro Fitt, sem fæst í þrenns konar útfærslu eða allt eftir því hvaða markmið fólk hefur sett sér. Þannig er hægt fá sérstakt duft fyrir vöðvauppbyggingu, annað fyrir þá sem vilja grennast og það þriðja fyrir þá sem einblína á líkamsmótun. Pro Fitt má blanda í mjólk, skyr, vatn og ávexti og má borða í stað stöku máltíðar eða eftir áreynslu. Duftið fæst með tveimur bragðtegundum, súkkulaði og jarðarberja, auk þess sem hægt er að fá það bragðlaust. Allt hefur verið gert til að losna við gervibragð, sem veldur því að margir sneyða hjá prótíndrykkjum, til að mæta þörfum neytenda. Íslenskt fæðubótarefni Goran Micic nýtur virðingar fyrir störf sín á sviði íþrótta- fræði. Hann hefur í samstarfi við iðnfyrirtækið Kötlu hannað nýtt fæðubótarefni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Nú gildir vetraropnunartími í sundlaugum Kópavogs. Gamla laugin er nú opin á laugardögum og sunnudögum til kl. 18.00. Sundlaugin í Versölum er opin til kl. 20.00 sömu daga. Nánari upplýsingar má finna á www. nautilius.is Byrjendanámskeið í ashtanga vinyasa-jóga hefst 16. október næstkomandi og lýkur 3. nóv- ember. Tímar eru á mánu-, mið- viku- og föstudagskvöldum frá kl. 18.00-19.30, á Engjateigi 5. Þátttakendum er boðið að kynna sér aðra tíma að námskeiði loknu, sér að kostnaðarlausu. Kynningar standa yfir í viku. Sjá www.yogashala.is Fyrsta Powerade-vetrarhlaup- ið af sex hefst næstkomandi fimmtudag. Hlaupin verða hald- inn annan fimmtudag í mánuði, frá október til mars og hefjast kl. 20.00 við Árbæjarlaugina. Vegalengd er 10 km. Skráning er hálftíma fyrir hlaup í anddyri laugarinnar en þátttökugjald er 200 kr. Sjá www.hlaup.is ALLT HITT [HEILSA] EKKERT NART MILLI MÁLA Mikilvægast að bursta tennurnar á kvöldin HEILSA 2 KRAFTMIKILL OG ÞOKKAFULLUR Súludans sem líkamsrækt HEILSA 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.