Fréttablaðið - 10.10.2006, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 10.10.2006, Blaðsíða 24
[ ]Fætur í fyrirrúmi Hugaðu að tánum, leyfðu þeim að leika frjálsum öðru hverju. Góð tannhirða er mikilvæg og það er margt sem hægt er að gera til að viðhalda heilbrigði tannanna. Kristín Stefánsdóttir tannlæknir veit hvað best er að gera til að brosið haldist fallegt. Kristín segir að allir ættu að bursta tennurnar tvisvar sinnum á hverjum degi. „Aðaláherslan ætti að vera á burstun að kvöldi,“ segir hún og bætir því við að óþarfi sé að bursta tennurnar oftar á dag. „Of mikil burstun getur bara vald- ið sliti á glerungnum og verið vond fyrir tannholdið.“ Bakteríur geta einnig safnast fyrir á tungunni og Kristín segir að nauðsynlegt sé að bursta hana um leið og tennurnar eru burstað- ar. „Ef tungan er ekki burstuð verða bakteríur eftir þar. Tungan liggur oft mjög þétt upp við tenn- urnar og því gott að venja sig á að bursta hana líka. Í flestum tilfell- um á að vera nóg að nota tann- burstann en það eru líka til sér- stakar tungusköfur sem eru kannski frekar fyrir þá sem þurfa að hugsa sérstaklega vel um þetta. Oft þegar fólk hefur verið að glíma við einhverja andremmu er það vegna þess að það er bakteríu- gróður á tungunni og þá er mikil- vægt að ná honum í burtu.“ Nauðsynlegt er að nota tann- þráð reglulega að sögn Kristínar. „Ég mæli með daglegri notkun á tannþræði eða að hann sé notaður að minnsta kosti þrisvar í viku. Ef fólk er með brýr eða tannréttinga- tæki er mjög mikilvægt að halda því hreinu með tannþræði. Sér- stakir tannþæðir fást til þess að fara undir brýrnar og spangirnar sem eru með svampi í miðjunni og einnig er hægt að fá nálar fyrir venjulegan tannþráð.“ Flúorskol getur verið góður kostur fyrir þá sem þurfa að gæta tanna sinna sérstaklega vel. „Þeir sem eru í tannréttingum eða fá oft tannskemmdir ættu að fara í flú- orskol reglulega, að minnsta kosti taka svona syrpur á meðan verið er að ná einhverju niður.“ Nart milli mála er ekki gott fyrir tennurnar. „Ef stöðugt er verið að narta í eitthvað er munn- vatnið alltaf að reyna að ná þessu sýrustigi sem er hagstætt. Gott er að vera alltaf með tyggjó við hönd- ina og nota það eftir að borðað er eða drekka vatn. Með því að nota tyggjó er hægt að stytta tímann sem óhagstætt sýrustig er í munn- inum.“ Kristín segir að allir ættu að fara reglulega til tannlæknis í eft- irlit. „Ég myndi segja að væri gott að fara á svona níu mánaða til árs fresti. Við fáum börnin stundum tvisvar á ári ef verið er að fylgjast með einhverju sérstöku, en mér finnst yfirleitt gott að miða við svona níu mánuði til ár fyrir flesta. Það er mjög góð regla og ef að maður heldur hana, borðar hollan mat, burstar tvisvar á dag, notar tannþráð og flúorskol og minnkar sykurneyslu og nart á milli mála ætti maður að vera í góðum málum.“ emilia@frettabladid.is Ekkert nart milli mála Ef vel er hugsað um tennurnar verður brosið fallegra lengur. Kristín mælir með því að allir fari í skoðun til tannlæknis að minnsta kosti einu sinni á ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Á námskeiði í Lótus jógasetri 20.-22. október mun Shiv Charan Singh kynna fræði sem nefnast Andleg vakning í verki. „Shiv Charan hefur einstakan hæfileika til að veita innblástur og bjóða okkur að skoða hlutina út frá nýju sjónarhorni,“ segir Guðrún Arnalds kundalini-jóga- kennari sem veit manna mest um hinn andlega mann sem væntan- legur er. „Kundalini-jóga er aðgengi- legt kerfi æfinga, öndunar, hug- leiðslu og heilbrigðrar ræktunar hugans sem í verki gefur af sér endurnýjun og heilun. Kundalini- jóga er undirstaðan undir aðferð Shivs Charan en hann hefur líka tekið tölfræðina í þjónustu sína sem gagnvirkt tæki til greining- ar á ástandi fólks. Til dæmis opnar fæðingartala hvers og eins glugga inn í lífsmunstur hans og karma og í gegnum þann skiln- ing kennir hann fólki að bæta bæði líkamsstöðu og sálar- ástand.“ Kynningarkvöld verður 20. október og námskeiðið í fram- haldinu á Lótus jógasetri sem er í Borgartúni 20. - gg Andleg vakning í verki Shiv Charan Singh býður fólki að bæta bæði innri og ytri mann. Samkeppnin um reyklausan bekk heitir Stöndum þétt saman. Skráning í keppnina Reyklaus bekkur er hafin. Allir 7. og 8. bekkir á landinu geta tekið þátt, svo fremi að enginn nemend- anna reyki. Yfirskrift keppninnar í ár er Stöndum þétt saman en á heimsvísu heitir samkeppnin „Smokefree Class Competition.“ Í ár taka meira en 20 Evrópuþjóðir þátt í keppninni. Glæsileg verð- laun eru í boði en meðal annars getur einn bekkur unnið utan- landsferð fyrir bekkinn næsta vor. Bekkur þarf að skrá sig til leiks fyrir 10. nóvember 2006. Hægt er að skrá bekki á www.lydheilsu- stod.is Reyklaus bekkurSÓMABAKKAR Nánari uppl‡singar á somi.is *Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr. PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING* �� �������� �� ����������� �� ��������������������� � � ��������������������������� ��������������������������������� � ��������� �� ��������������������������� �� �������������������������� � �� ������������������� � ����������� �������������������� ���� �������� ���������������������������������������� �� ���������������������������� ����
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.