Fréttablaðið - 10.10.2006, Page 12
Alþjóða
geðheilbrigðis-
dagurinn 2006
Göngum gegn sjálfsvígum!
Fjölmennum í Hallgrímskirkju í kvöld
kl. 20:00 þar sem Páll Óskar og Monika,
Módettukórinn og séra Birgir Ásgeirsson
taka á móti okkur.
Gengið verður niður að tjörn þar sem við
tekur kertafl eyting til minningar um alla þá
sem við höfum misst vegna sjálfsvíga.
Kertin verða afhent þátttakendum
á staðnum án endurgjalds.
Sýnum samstöðu og
göngum gegn sjálfsvígum
– þetta kemur okkur öllum við!
12 10. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR
MENNTUN Tilraun hefur staðið yfir
í þrjú ár með rekstur tveggja
heimaskóla í Ölfusinu. Nemendur
skólanna voru fimm í upphafi en
einn nemendanna flutti sig yfir í
grunnskóla. Kennslan fór alfarið
fram á heimilum nemendanna hlið
við hlið í Ölfusinu. Ekkert sam-
starf hefur verið á milli skólanna.
Menntamálaráðuneytið hefur
látið gera úttekt á heimakennslu í
Ölfusi. Heimakennslan hefur stað-
ið yfir í þrjú ár á tveimur heimil-
um. Í úttektinni kemur fram að
heimaskólar séu lífsstíll þar sem
skólarými og heimili renna vel
saman. Á heimilunum hafi börnin
sérstaka aðstöðu fyrir námsbæk-
ur og stað til að vinna á. Á báðum
heimilum hafi foreldri með
kennsluréttindi borið ábyrgð á
kennslunni. Á báðum heimilum
stundi börnin fjölbreytt félagslíf,
séu í skátunum og æfi íþróttir
þannig að þau einangrist ekki.
„Tvö barnanna æfa sund og
annað þeirra æfir einnig körfu-
bolta. Öll börnin eru í tónlistar-
námi, hluti þeirra í tónlistarskóla í
Reykjavík en önnur á Selfossi.
Einnig spila þau í hljómsveitum
og tvö barnanna leika tónlist opin-
berlega við ýmis tækifæri víða,“
segir í úttektinni.
Skriflegt samkomulag var milli
skólanefndar og foreldra um
kennsluna. Dagbók skyldi haldin.
Annað heimilið hætti fljótlega að
halda slíka dagbók og olli það erf-
iðleikum við að fá heildarmynd af
framkvæmd og skipulagi kennsl-
unnar.
Ólíkar leiðir voru farnar við
framkvæmd og skipulag kennsl-
unnar. Á öðru heimilinu var því
fylgt nákvæmlega eftir að börnin
kláruðu þær námsbækur sem
jafnaldrar þeirra í Grunnskólan-
um í Þorlákshöfn nota en á hinu
heimilinu rann námið meira saman
við fjölskyldulífið og athafnir dag-
legs lífs. Foreldrarnir sögðust
reiða sig minna á hefðbundnar
kennslubækur og leitast frekar
við að búa til eigin verkefni.
Á báðum heimilum sögðust for-
eldrar beita símati og færi það
fram jafnóðum en útskýringu á
þessu símati vantaði. Foreldrar
töldu óþarfa að leggja próf fyrir
börnin. Samræmd próf væru nóg.
Þó kemur fram að tvö börn hafi átt
að taka samræmd próf í Suður-
hlíðarskóla en ekki mætt í prófið
og ekki fengið undanþágu.
Lagt er til að heimaskólunum
verði haldið áfram en eftirlit grunn-
skólans aukið og lokamat fari fram
eftir tvö ár. ghs@frettabladid.is
Börnin mættu ekki
í samræmdu prófin
Tveir heimaskólar hafa verið reknir hér í þrjú ár. Engin próf voru lögð fyrir
nemendur og því lítið vitað um námsframvinduna. Nemendur vantaði í sam-
ræmd próf í fjórða og sjöunda bekk. Lagt er til að heimaskólarnir starfi áfram.
HEIMASKÓLUM VERÐI HALDIÐ ÁFRAM Tveir heimaskólar með samtals fjögur börn hafa verið starfræktir í Ölfusinu síðustu þrjú
árin. Lagt er til að heimaskólunum verði haldið áfram næstu tvö árin en eftirlit grunnskólans aukið og upplýsingaskylda foreldra
aukin. Myndin er úr safni. Hún tengist ekki heimaskólunum í Ölfusinu.
FRAMKVÆMDIR Ný íbúðabygging
sem á að rísa við Mýrargötu 26
samanstendur aðallega af loft-
íbúðum.
Magnús Ingi Erlingsson, fram-
kvæmdastjóri Nýju-Jórvíkur sem
stendur að nýbyggingunni, segir
arkitekta hafa sótt innblástur til
útlanda.
„Þetta er íbúðagerð sem á
rætur að rekja til vinnustofuíbúða
í gömlum iðnaðarhúsum,“ segir
Magnús. „Nú er þetta orðið vin-
sælt íbúðaform í nýjum bygging-
um í erlendum stórborgum.“ 42 af
61 íbúð í byggingunni verða loftí-
búðir með allt að fimm metra loft-
hæð. Í húsinu verða einnig tíu
hefðbundnari íbúðir, en á efstu
hæðunum verða níu lúxusíbúðir
með eigin þakgarði og aðstöðu
fyrir heitan pott. Þakið verður
nýtt sem sameiginlegt útivistar-
svæði fyrir íbúa hússins.
Nýja Jórvík bíður þess nú að
borgaryfirvöld ljúki deiluskipu-
lagsvinnu við Ellingsenreit, en
byggingaleyfi þeirra var aftur-
kallað þegar ástæða þurfti til að
endurskoða deiliskipulagið. Á Ell-
ingsenreit stendur Alliance-húsið
svokallaða, en Húsafriðunarnefnd
var meðal þeirra sem lögðust har-
kalega gegn því að það yrði rifið
eins og upphaflegt deiliskipulag
gerði ráð fyrir. - sun
Loftíbúðir að erlendri fyrirmynd meginuppistaðan í nýbyggingu við Mýrargötu:
Íbúðir með fimm metra lofthæð
LOFTÍBÚÐIR VIÐ MÝRARGÖTU Íbúðagerðina má rekja til vinnustofuíbúða í gömlum
iðnaðarhúsum. Þetta íbúðaform er vinsælt í nýjum byggingum í erlendum stórborg-
um.
LOFTHELGIN Ratsjárstofnun mun
sinna eftirliti með frumratsjám og
vinna úr upplýsingum frá þeim
þangað til annað verður ákveðið.
Þetta var samþykkt í varnarvið-
ræðum Íslendinga og Bandaríkja-
manna.
Jörundur Valtýsson, ráðgjafi
utanríkisráðherra, segir þó að í
varnarsamkomulaginu hafi verið
ákveðið að framtíð ratsjárstofn-
unnar verði áfram á borðinu.
„Við munum hefja viðræður
við Bandaríkjamenn og eftir atvik-
um NATO um framhaldið. Banda-
ríkin hafa einungis skuldbundið
sig til að reka ratsjárstöðvarnar í
tólf mánuði þannig að það er of
snemmt að segja til um hvernig
hlutunum verði komið fyrir í
framtíðinni. En þetta er staðan í
dag. Ratsjárstofnun sinnir þessu
eftirliti.“
Framtíð eftirlitsins hafði verið
í nokkurri óvissu eftir að Banda-
ríkjamenn hættu að sinna því. Þeir
lokuðu stjórnstöð sem vann úr
upplýsingum frumratsjánna síð-
astliðið vor og frá þeim tíma gátu
flugvélar flogið um íslenska loft-
helgi án þess að sjást ef þær voru
ekki með innbyggðan merkjasend-
ingarbúnað eða með slökkt á þeim
búnaði. Í kjölfarið skapaðist
umræða um að ný smyglleið hefði
opnast til landsins. - þsj
Vinnsla á upplýsingum úr frumratsjám hafin að nýju:
Ratsjárstofnun sér um eftirlitið
RATSJÁRSTOFNUN Eftirlit og vinnsla
gagna úr frumratsjám verður hjá stofn-
uninni næstu tólf mánuði hið minnsta.
STOKKHÓLMUR, AP Bandaríkjamað-
urinn Edmund S. Phelps hlýtur
Nóbelsverðlaunin í hagfræði í ár
fyrir framlag
sitt til skilnings
á samspili
verðbólgu og
atvinnuleysis.
Phelps, sem
nú er 73 ára,
fær verðlaunin
fyrir rannsókn-
ir sínar á
sjöunda áratug
síðustu aldar,
þegar hann
áttaði sig á því að „verðbólga er
ekki eingöngu háð atvinnuleysi,
heldur einnig væntingum
fyrirtækja og starfsfólks til
verðlags og launahækkana,“ eins
og segir í tilkynningu frá sænsku
Nóbelsnefndinni. - gb
Nóbelsverðlaun í hagfræði:
Verðbólga og
atvinnuleysi
EDMUND S.
PHELPS
NOREGUR Yfirlæknir smitsjúk-
dómavarna Oslóarborgar hefur
krafist þess að ljósin verði kveikt
í gufuböðum borgarinnar til að
minnka líkurnar á HIV-smiti
meðal samkynhneigðra karl-
manna, kemur fram á fréttavef
norska blaðsins Aftenposten.
Að sögn Frantz Leonard Nilsen
yfirlæknis er tiltölulega algengt
að karlmenn smitist af kynsjúk-
dómum eða HIV-veirunni í
þessum dimmu einkareknu
almenningsgufuböðum, því
karlmenn stundi þar óvarið
kynlíf.
HIV-smitum meðal samkyn-
hneigðra norskra karlmanna
hefur fjölgað mjög og telja
yfirvöld að gera megi ráð fyrir að
nær 100 norskir hommar greinist
með veiruna í ár.
- smk
Heilbrigðisyfirvöld í Osló:
Ljósin tendruð í
gufuböðum
HUNDUR BLESSAÐUR Þessi lúterski
prestur blessaði hunda og ketti í
gæludýrablessun sem haldin var í
Iowa-ríki í Bandaríkjunum um helg-
ina. FRÉTTABLAÐIÐ/AP