Fréttablaðið - 10.10.2006, Qupperneq 16
10. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
En hver á að skipta
um perur?
„Friðarsúlunni er ætlað að
tákna vonargeisla fyrir þá
sem dreymir um heimsfrið.“
YOKO ONO HEFUR ÁFORM UM AÐ
REISA FRIÐARSÚLU Í VIÐEY, SEM
ER LJÓSGEISLI SEM NÆR UPP Í 20
M HÆÐ OG Á AÐ LÝSA UM ALLA
EILÍFÐ. STEFNT ER Á AÐ KVEIKJA Á
SÚLUNNI AÐ ÁRI LIÐNU. FRÉTTA-
BLAÐIÐ 9. OKTÓBER.
Bara jákvæð viðbrögð
„Ég bjóst við að fá einhverj-
ar skammir fyrir að vera
íhaldssöm, afturhaldssöm
og að vinna gegn jafnrétti
kynjanna.“
EVA MARÍA JÓNSDÓTTIR HEFUR
FENGIÐ MIKIL OG JÁKVÆÐ VIÐ-
BRÖGÐ VIÐ ÞEIRRI SKOÐUN SINNI
AÐ FULLORÐNIR ÆTTU AÐ TAKA
MEIRA TILLIT TIL BARNANNA Í STAÐ
ÞESS AÐ STJÓRNAST AF LÍFSGÆÐA-
KAPPHLAUPINU. MORGUNBLAÐIÐ
9. OKTÓBER.
„Framboð Íslands gæti verið mjög
metnaðarfullt og við gætum haft
heilmikil áhrif í
hinu alþjóðlega
samfélagi ef vel
er að því staðið,”
segir Bryndís Ísfold
Hlöðversdóttir. „Ég
efast hins vegar
um sjálfstæði
ríkisstjórnarinnar
til þess að fara
á móti stefnu
Bandaríkjanna og óttast að við
yrðum eitt ríkið enn sem eltir þá. Á
meðan sá hátturinn er á finnst mér
peningunum sem til framboðsins er
varið betur varið í önnur verkefni.”
SJÓNARHÓLL
ÍSLAND Í ÖRYGGISRÁÐIÐ
Efast um
sjálfstæði
BRYNDÍS ÍSFOLD
HLÖÐVERSDÓTTIR
VERSLUNARKONA
„Það er allt gott að frétta, maður
vinnur náttúrlega allt of mikið
eins og allir Íslendingar og
það er alltaf nóg af kisum,“
segir Sigríður Heiðberg,
forstöðukona Kattholts.
„Ég var að fá nýjan bíl og
er mjög ánægð með hann.
Þetta er Subaru Forester
með góðu skotti fyrir
fjórfætlingana. Ég er að vona
að nýja borgarstjórnin hugsi til
okkar og gott væri sem dæmi að
fá felld niður þessi sjö hundruð
þúsund króna fasteignagjöld
sem við þurfum að greiða.
Mér finnst óréttlátt að
þurfa að taka það fé
frá líknarstarfinu.“
Sigríður er mikill dýravinur og ekki bara hrifin
af köttum. „Ég komst ekki á hundasýninguna
um helgina og finnst miður að hafa ekki
komist að sjá það þegar hundar voru
heiðraðir fyrir margvísleg afrek, bæði
blindra- og leitarhundar.“
Þótt mikið sé að gera í Kattholti komst
Sigríður til Færeyja í sumar. „Ég er mjög
hrifin af Færeyjum og við getum tekið
þessa frændur okkar til fyrirmyndar. Það
er allt svo hreinlegt þarna og vegakerfið
er einstakt, allt tvíbreitt, malbikað
og göng í gegnum öll
fjöll. Ég varð þó vitni
að grindadrápi sem
var skelfileg sjón.
Rauður sjór og algjör
hryllingur að horfa
upp á þetta.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SIGRÍÐUR HEIÐBERG FORSTÖÐUKONA KATTHOLTS
Sá hryllilegt grindadráp
Talið er víst að sjósund-
menn á vegum Sundfélags
Hafnarfjarðar hafi sett
heimsmet þegar þeir syntu
í Jökulsárlóni í síðustu
viku meðan auglýsing fyrir
bandarískt lyfjafyrirtæki
var tekin upp. Hitinn í vatn-
inu var ein til tvær gráður.
Sundmennirnir fóru að meðaltali
tíu sinnum yfir daginn út í Jökul-
sárlón og syntu þar og busluðu í
eina og hálfa mínútu upp í fjórar
mínútur í senn. Vatnið var ísjökul-
kalt, aðeins 1,2 gráðu heitt fram að
hádegi en síðdegis hitnaði það upp
í 2,2 gráður.
„Það var fallegt veður eftir
hádegi og sjórinn flæddi að um
fjögurleytið og fór undir jökulinn
og kom svo til baka. Við vonuð-
umst til að vatnið næði því að
verða fjögurra til fimm gráðu
heitt en það varð aldrei,“ segir
Hrafnkell Marinósson, sjósund-
maður hjá SH.
Hrafnkell segir að sársaukinn
við að fara út í jökulkalt vatn sé
ekkert meiri en þó farið sé út í sjö
til átta gráðu heitan sjó. „En það
er samt gjörólíkt að fara í sjó eða
jökulvatn. Við erum tuttugu mín-
útur í sjónum en þarna vorum við
í fjórar mínútur í mesta lagi,“
segir hann.
Sjósundmennirnir fóru í heitan
pott og fengu heitt að drekka á
milli þess sem þeir fóru í lónið.
Jökunum var haldið með köðlum
þannig að þeir bærust ekki burt og
olli það smávegis töfum.
Hrafnkell segir að sundið hafi
reynt gríðarlega á hjartað, liðina
og síðast en ekki síst nárann því að
þeir hafi þurft að troða marvað-
ann í miklum straumi sem hafi
aukist eftir því sem leið á daginn.
„Í vatninu var fyrsta tilfinning-
in smá sviði og svo gríðarlegur
kuldi, fingurnir fóru að herpast og
svo tærnar og svo hætti maður
smám saman að geta hreyft sig,“
segir Hrafnkell.
„Sólarhring síðar leið manni
eins og valtari hefði keyrt yfir
mann, það voru allir svo ofboðs-
lega þreyttir.“
Átta sundmenn á vegum SH
tóku þátt í sundinu í Jökulsárlóni
og voru þeir á aldrinum 23 til 55
ára. Tökurnar voru fyrir banda-
rískt lyfjafyrirtæki í auglýsingu á
Clarityn-D sem ætluð er á norður-
amerískan markað. ghs@frettabladid.is
Sundsprettur í Jökulsárlóni
SUNDMENNIRNIR FÓRU OFAN Í HEIT
KÖR Fengu heitt að drekka til að ná hita
í kroppinn eftir sundið í lóninu.
SUNDMENNIRNIR Á LEIÐ ÚT Í LÓNIÐ Þeir lýsa líðaninni eftir á eins og trukkur eða valtari hafi keyrt yfir þá. FRÉTTABLAÐIÐ/BENNI
VEL VAR BÚIÐ AÐ SJÓSUNDMÖNNUM SH
Hér sjást þeir í dúnúlpum sem voru sér-
saumaðar úr dúnsængum úr Rúmfata-
lagernum.
■ Heimsins lógó skipta tugþús-
undum og því er ekki óeðlilegt að
stundum líti þau svipað út. Þegar
gengið er um göturnar má sjá vatns-
lok frá Hitaveitu Reykjavíkur, merkt
HR, sem væri kannski í frásögur
færandi ef lógóið væri ekki alveg
eins og lógóið frá
snyrtivöruframleið-
andanum Helenu
Rubinstein. Tilviljun?
TVÍFARAR:
VATNSLOK OG
SNYRTIVÖRUR
Fimm ár eru í dag liðin frá opnun
Smáralindar. Á sínum tíma voru
margir efins um framtíðarmögu-
leika svo stórrar verslunarmið-
stöðvar og töldu Kringluna alveg
anna eftirspurn. Þessar efasemda-
raddir eru löngu þagnaðar enda
hefur verslun verið gríðarleg í
Smáralind á þessum fimm árum.
Einn af þeim sem tóku slaginn á
sínum tíma og opnuðu verslun var
Haukur Valdimarsson gullsmiður,
sem enn rekur Carat á annarri
hæð í vesturenda Smáralindar.
„Þeir voru margir sem töldu
Smáralind allt of mikla viðbót við
þá verslun sem fyrir var,“ segir
Haukur. „Fyrst í stað voru margir
neikvæðir og komu í Smáralindina
með hundshaus, en það er löngu
liðin tíð. Nú kemur fólk og nýtur
góða veðursins sem alltaf ríkir
hér.“
Haukur lærði hjá Jens Guð-
jónssyni og starfaði hjá honum í
þrettán ár. „Um leið og við frétt-
um af Smáralind ákváðum við að
taka þátt og höfðum trú á þessu,“
segir Haukur. „Við vorum örugg-
lega með þeim fyrstu sem gerðu
leigusamning hér. Við komum ný
inn á markaðinn í nýju húsi og
höfum verið að vinna okkur sess.
Við höfum stækkað búðina um
helming og erum mjög ánægð með
stöðuna í dag.“
Haukur sérsmíðar fyrir við-
skiptavini en er einnig með til-
búna muni frá Ítalíu. Hann segir
nálægðina við kúnnann mikla enda
er hann með vinnustofuna á bak
við verslunina og stendur þar
vaktina ásamt lærlingi sínum.
„Við höfum mikið verið að vinna
með íslenska steina, m.a. íslenska
ópalinn og muggerit, sem er svart-
ur náttúrusteinn og algengur á
Snæfellsnesi. Ég fer stundum
sjálfur að tína og eins gaukar gott
fólk að mér fallegum steinum.“
Haukur segir andrúmsloftið
gott í Smáralind. „Allt þetta gler í
göngugötunni er til þess að maður
skynjar veðurfarið úti, það er mik-
ill munur á þessu og raflýsingu.
Það er góð stemning hérna, fólk
kemur til að skemmta sér ekki
síður en til að versla.“ - glh
Fimm ár í góðu veðri
HAUKUR GULLSMIÐUR Í CARAT Tók
slaginn og opnaði verslun í Smáralind
fyrir fimm árum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Nýjung í ræstingum
Unilav ræstitæki með 40 cm moppugrind
R
V
62
14
6.996 kr.
Þurr- og blautmoppað
með sama áhaldinu
Auðveld áfylling,
einfalt í notkun
Sérlega handhægt
Á tilboði
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
k
u
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
a
fn
a
rf
jö
rð
u
r.
S
tr
a
u
m
u
ri
n
n
!!
!
D
ra
u
m
u
ri
n
n
!!
!