Fréttablaðið - 10.10.2006, Qupperneq 26
10. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR4
Hjá Mangó í Ármúla má læra
svokallað súlu líkamsrækt eða
Pole Fitness. Um er að ræða
erfiða líkamsrækt sem styrkir
kroppinn og leysir þokkann úr
læðingi.
Súludans hefur nú verið kenndur
sem líkamsrækt hér á landi síðast-
liðna fjóra mánuði. Konur eru nú
farnar að taka eftir þessari nýj-
ung og flykkjast að súlunni.
Ingunn Sævarsdóttir, kennari
hjá Mangó, segir Pole Fitness góða
og skemmtilega líkamsrækt. „Við
bjóðum upp á nokkur ólík nám-
skeið,“ segir Ingunn. „Pole Fitn-
ess, Pole Dancing, Sensual Danc-
ing og Carmen Electra sem er
blanda af svokölluðu erótísku eró-
bikki og súludansi. Einnig erum
við með Pole Fitness fyrir konur
yfir fertugu þar sem farið er
aðeins hægar í æfingarnar. Pole
Fitness jafnast nefnilega á við erf-
iðustu eróbikktímana. Við höngum
til dæmis öfugar á súlunni og það
reynir vissulega á. Pole Dancing
og Sensual Dancing ganga næst-
um eingöngu út á kynþokka.“
Ingunn segir tímana vera afar
fjölbreytta. „Konur fá út úr þessu
bæði góða líkamsrækt, mikla
brennslu, aukið þol, aukinn styrk
og liðleika. Og auðvitað er toppur-
inn á þessu öllu að maður verður
rosa sexí,“ segir Ingunn og hlær. „
Oftast mæta konurnar feimnar í
fyrstu tímana en svo opna þær sig
og kynþokkinn tekur völdin. Við
erum líka aðeins með sex konur á
hverju námskeiði og því myndast
fljótt tengsl og hömlurnar
hverfa.“
Námskeiðin hjá Mangó henta
konum á öllum aldri en stelpum
undir átján ára aldri er ekki leyft
að taka þátt. „Þessi námskeið
henta einnig vel fyrir konur sem
langar til að dansa. Það er svo lítið
í boði fyrir okkur eldri stelpurnar
sem langar til að dansa.“
Blaðamanni lék nú forvitni á að
vita hvort hægt væri að kaupa
súlu til einkanota hérlendis og hló
Ingunn dátt að spurningunni. „Það
er nú hægt að fá súlur í gegnum
okkur,“ segir hún. „Við getum
reddað súlum ef áhugi er fyrir
því. Margar konur sem æfa hjá
okkur verða sér úti um súlu. Þá
geta þær æft sig heima. Ég heyrði
líka í þætti hjá Opruh að súludans
heima í stofu væri hreinlega að
bjarga mörgum hjónböndum.“
Ingunn segir Pole Fitness eða
önnur námskeið hjá Mangó ekkert
eiga skylt við þann dans sem fer
fram á súludansstöðunum. „Við
erum ekki að kenna neinum að
fara úr fötunum,“ bætir Ingunn
við og segist ekki hafa áhyggjur af
neikvæðu viðhorfi gagnvart þess-
ari nýju líkamsrækt. „Við höfum
öll val og ef okkur langar til að
stunda þennan dans þá gerum við
það. Það langar allar konur innst
inni að læra þetta,“ segir Ingunn.
„Þetta blundar í okkur öllum það
er bara spurning hvort maður
þorir eða ekki.“
johannas@frettabladid.is
Kraftmikil og þokkafull
líkamsrækt
Ingunn Sævarsdóttir, danskennari, kennir Pole Fitness hjá Mangó í Ármúla. Hún segir námskeiðin henta konum sem hafa gaman
af að dansa og vilja komast í snertingu við kvenleika sinn og þokka. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Vísindamenn telja sig geta
fært sönnur á að svart te dragi
úr streitueinkennum.
Rannsókn var framkvæmd í Uni-
versity College í London á 75
tedrykkjumönnum, sem skipt
var í tvo hópa og hafðir
undir eftirliti í sex vikur
og þeir látnir upplifa
streitutengdar
uppákomur.
Á meðan á rannsókn-
inni stóð máttu þátttak-
endur ekki drekka te.
Fyrri hópurinn fékk
þó reglulega
drykkjarblöndu
sem samanstóð
af sömu
efnum og
eru í
svörtu
tei. Seinni
hópur-
innn fékk
aftur á móti
„gervidrykk“, sem
bragðaðist eins og
blandan fyrrnefnda
en skorti efasam-
setningu tesins.
Þegar fyrri hópurinn, sá sem
drakk reglulega hliðstæðu svarta
tesins, upplifði mikla spennu var
hann mun fljótari að jafna sig en
sá síðari, sem fékk gervidrykk-
inn.
Því hefur lengi verið haldið
fram að te hafi róandi áhrif, en
ekki hefur verið hægt að
færa á það vísindalegar
sönnur. Þótt ekki liggi
ljóst fyrir hvaða efni í
svörtu tei hafi róandi
áhrif, álíta vísinda-
menn að einhver
tengsl séu á milli
tedrykkju og
slökunar. Frá
þessu er
greint á
frétta-
véf
BBC,
www.
bbc.co.uk
Svart te minnkar
streitueinkenni
NÝR VATNSDRYKKUR FRÁ AGLI
SKALLAGRÍMSSYNI
Kristall Sport er nýr hitaeininga-
snauður vatnsdrykkur sem er
sérsniðinn fyrir fólk sem hreyfir sig
reglulega. Drykkurinn er léttkol-
sýrður og sykurlaus, en
er ríkur af vítamínum og
steinefnum sem hjálpa lík-
amanum að jafna sig eftir
átök á borð við líkams-
rækt eða erfiðsvinnu.
Kristall Sport er afrakstur
þróunar hjá Ölgerðinni
Agli Skallagrímssyni,
en meginhugmyndin
var að búa til bragð-
góðan en jafnframt
hitaeiningasnauðan
íþróttadrykk sem svalar
vatnsþörf fólks sem
hreyfir sig reglulega.
Því eru einungis tvær
hitaeiningar í hverjum
100 ml, eða um tíu
sinnum minna en í helstu erlendu
íþróttadrykkjunum sem fást hér á
landi. Þá inniheldur Kristall Sport
sex tegundir B-vítamína og kalk,
magnesíum og kalíum sem hjálpa
líkamanum meðal annars að jafna
sig og byggja sig upp eftir átök.
Kristall Sport fæst annars vegar
með lime- og jarðarberjabragði
og hins vegar með appelsínu- og
melónubragði. Kristall Sport er
seldur í ljósblárri hálfs lítra flösku.
Kristall Sport
���������������������������
����������������������
����������������������������
���������������������������
���������������������������
����������� �������
����������������������������
��������������� ������������������
����������������������������
����������������������
����������������������
10. okt. Andleg líðan og austurlenskar
lækningar
17:30-19:00 Þórunn Birna Guðmundsdóttir
11. okt. Heilsukostur - Matreiðslunámskeið
18:00 - 21:00 Meistarakokkar Maður lifandi
- örfá sæti laus
12. okt. Álitamál í læknisfræði
17:30-19:00 Hallgrímur Magnússon læknir
17. okt. Hvernig geta blómadropar og jóga
styrkt okkur
17:30-19:00 Kristbjörg Kristmundsdóttir
18. okt. Ertu eiturefnaúrgangsruslaskrímsli
17:30-19:00 Edda Björgvinsdóttir
Nánari upplýsingar á madurlifandi.is og í síma 585-8700.
�������
S: 462 1889 • heilsuhorn@simnet.is • www.simnet/heilsuhorn
Útsölustaðir m.a: Yggdrasill, Fjarðarkaup, Maður lifandi í Borgartúni og Hæðarsmára,
Lífsins Lind í Hagkaupum, Lyfjaval í Mjódd og Hæðarsmára og Lyfja á Selfossi.
Póstsendum um land allt
Betra blóðrennsli
Talið er að svart te
geti dregið úr streitu-
einkennum.