Fréttablaðið - 10.10.2006, Qupperneq 48
■■■■ { vinnuvélar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■20
Trukkurinn ehf. Hjalteyrargötu 8. Akureyri.
Sími 460 7700 Fax 460 7709
Neyðarsímar Trukksins 893-2459 & 898-2459
www.trukkurinn.is e-mail trukkurinn@trukkurinn.is
Trukkurinn ávallt traustur
Starfsfólk Trukksins tekur vel á móti þér.
Sérhæfum okkur í eftirfarandi:
Innflutningi á AB flutningakössum, kælivélum og lyftum frá
Syvsten Køle Service í Danmörku. Viðgerðir á flutningabílum,
kössum, kælivélum, vinnuvélum, krönum og bátavélum.
Trukkurinn þjónustar Scania umboðið Heklu hf á norðurlandi.
Trukkurinn þjónustar Mercedes-Benz á norðurlandi.
Trukkurinn þjónustar Kraftvélar á norðurlandi.
Trukkurinn þjónustar Sturlaug & co á norðurlandi.
Trukkurinn er til taks allan sólarhringinn.
Trukkurinn hefur það að leiðarljósi að veita fljóta og góða þjónustu.
Tr
uk
ku
rin
n
Tr
uk
ku
rin
n
Öku- og vinnuvélaskólinn ehf. var
stofnaður árið 2003 og býður upp á
öll öku- og vinnuvélaréttindi ásamt
vistakstri, bifhjólanámi og fleiru.
Kennarar skólans eru allir miklir
reynsluboltar sem skilar sér vel til
nemandans.
Hjá skólanum er boðið upp á
ýtarlegt vinnuvélanám. Nú á dögum
vaxandi þenslu í byggingariðnaði
og jarðvinnu með tilkomu virkjana
og jarðgangna út um allar trissur er
farið að bera á skorti á vélamönnum,
jafnt á höfuðborgarsvæðinu sem um
land allt.
Vinnuvélanámskeið hjá Öku- og
vinnuvélaskólanum gefur réttindi
til prófs á allar gerðir vinnuvéla,
samanber reglugerð Vinnueftirlits
ríkisins.
Inntökuskilyrði í námið eru þau
að viðkomandi verður að vera 16
ára eða eldri fyrir bóklegt nám og
hafa ökuréttindi á bifreið fyrir verk-
legt nám.
Eingöngu er kennt um helgar en
hvert námskeið stendur yfir í þrjár
helgar. Hver helgi er sjálfstæð eining
þar sem farið verður yfir 1., 2. og 3.
stig. Því er hægt að dreifa námskeið-
inu á eins langan tíma og nemand-
anum hentar. Námið fer þannig fram
að kennt er á föstudagskvöldum frá
klukkan sex síðdegis til rúmlega ell-
efu. Laugardaga og sunnudaga stend-
ur skólinn yfir frá 9.00 til 17.00.
Á heimasíðu Öku- og vinnuvéla-
skólans kemur fram að námskeiðið
kostar 44.900 krónur en bækur eru
lánaðar meðan á námskeiði stendur.
Mörg stéttarfélög styðja sína félags-
menn í námskeiðið.
Verkleg próf á vinnuvélar fara
fram hvar sem er á landinu og eft-
irlitsmenn frá Vinnueftirliti ríkis-
ins annast framkvæmd þess. Rétt-
indaflokkarnir eru nokkrir og hver
þeirra kostar kr. 2.365 og skírteinið
sjálft kostar kr. 3.220. Dæmi: Próf á
ýtu, gröfu og hjólaskóflu kostar þá
10.315 kr. og er þá skírteinið inni-
falið. Það greiðist hjá Vinnueftirliti
ríkisins þegar skírteinið er afhent.
Rétturinn til próftöku fyrnist ekki og
hægt er að draga þetta eins lengi og
þörf er á, og einnig er hægt að bæta
í skírteinið síðar meir eftir þörfum.
Best er þó að gera þetta eins fljótt að
aðstæður framast leyfa.
Nánari upplýsingar á www.ovs.is
Gefur réttindi til prófs
Öku- og vinnuvélaskólinn býður upp á vinnuvélanám.
Það opnar ýmsar dyr að hafa vinnuvélaréttindi.