Fréttablaðið - 10.10.2006, Page 62
10. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR26
ELLERT B. SCHRAM ER 67 ÁRA Í
DAG.
„Ég er vel ern enn og man
allt sem ég vil muna. Ég nýt
hins vegar þeirra forrétt-
inda að geta kennt aldrin-
um um þegar ég gleymi
einhverju.“
Þetta sagði þáverandi forseti ÍSÍ í
tilefni afmælisins fyrir fjórum árum.
Merkisatburðir
1886 Smókingjakkinn
kemur fyrst fyrir
almenningssjónir í New
York.
1963 Stífla brestur á Ítalíu með
þeim afleiðingum að
3.000 manns týna lífi.
1973 Fídjieyjar fá sjálfstæði eftir
að hafa verið undir stjórn
Breta í tæpa öld.
1973 Spiro Agnew, varaforseti
Bandaríkjanna, segir af
sér embætti eftir að hann
var ákærður fyrir skattsvik.
1986 Jarðskjálfti sem mælist
7,5 á Richter skekur San
Salvador, höfuðborg
El Salvador, með þeim
afleiðingum að 1500
manns týna lífi.
1995 Gary Kasparov sigrar
Viswanathan Anand í
skákeinvígi sem hafði
staðið í tæpan mánuð.
Helgi Hóseasson greip til örþrifa-
ráða í baráttu sinni við geistleg
og veraldleg yfirvöld á Íslandi við
að fá skírnarsáttmála sinn ógiltan
á þessum degi árið 1972. Helgi
hrærði skyr í væna fötu og gerði
forseta Íslands, biskupi, ráðherrum
og alþingismönnum fyrirsát þegar
hópurinn gekk frá Dómkirkjunni til
þingsetningar Alþingis.
Helgi var orðinn langþreyttur
á áhugaleysi yfirvalda á að leysa
úr máli hans þegar hann sletti
skyrinu. „Af hverju skyr? Ég varð að
láta eitthvað koma á móti því að
þingsetarnir og ríkisstjórnin og fleiri
ráðamenn eins og biskoppur sinntu
ekki bréfi mínu,“ sagði Helgi í viðtali
við Fréttablaðið fyrir nokkrum árum.
„Ég skrifaði þeim öllum bréf og þeir
önsuðu mér bara tveir; Bjarni Ben.
og Lúðvík Jósepsson. Hinir svöruðu
mér ekki og til minningar um það þá
réðist ég í það að sæma þá skyrinu.
Ég hef ekki verið kærður fyrir það
enn þann dag í dag.“
Helgi var handtekinn eftir að
hafa nánast tæmt skyrfötuna yfir
þingheim og segir að hann hafi ekki
verið tekinn neinum vettlingatökum.
„Þeir lágu þarna fjórir ofan á mér
niður í skyrslettunum og drösluðu
mér svo burt, járnuðum á höndum
og fótum.
Ég skvetti líka tjöru á Stjórnar-
ráðshúsið á sínum tíma og hef ekki
heldur verið kærður fyrir það. Það
er kynjalegt þetta réttarfar í þessu
helvítis landi. Menn eru nú kærðir
fyrir minni læti en þetta.“
ÞETTA GERÐIST: 10. OKTÓBER 1972
Helgi slettir skyrinu
HELGI HÓSEASSON
Þórður Ingi Guðjónsson tók við af Sig-
ríði Þorvaldsdóttir sem formaður í
Félagi íslenskra fræða á föstudag.
Félagið var stofnað 27. apríl 1947 og var
upphaflega ætlað að vera hagsmuna-
félag þeirra sem leggja stund á íslensk
fræði, að sögn Þórðar. Hlutverk félags-
ins hefur þó breyst á þeim sextíu árum
sem brátt eru liðin frá stofnun þess, en
nú er það eins konar samnefnari fyrir
íslensk fræði í sem víðustum skilningi.
„Markmið félagsins er nú að vekja
athygli og efla áhuga á íslenskum fræð-
um og þeim sem þau stunda,“ sagði
Þórður, en félagar eru í dag í kringum
þrjú hundruð.
Þórður sagði starf formannsins fyrst
og fremst felast í að skipuleggja fyrir-
lestradagskrá vetrarins. Fyrirlestrarnir
eru opnir öllum og fara fram í húsi Sögu-
félagsins í Fischersundi á fimmtudags-
kvöldum. „Við miðum að því að hafa
fyrirlestrana fjölbreytta og aðgengilega
fyrir almenning, þeir mega ekki vera of
sérhæfðir,“ sagði Þórður.
Þórður segir aðsóknina hafa verið
góða í gegnum árin. „Það er samt mis-
jafnt eftir því um hvað fyrirlesturinn er
og hvað er í sjónvarpinu það kvöldið,“
sagði Þórður sposkur. „Það er mikið
áreiti á fólk nú til dags og hörð sam-
keppni um athyglina. En við stefnum að
því að auka mætinguna enn frekar með
mjög áhugaverðum fyrirlestrum í
vetur,“ bætti hann við. Næsti fyrirlesari
verður menningarfræðingurinn Sigrún
Sigurðardóttir, en hún mun halda fyrir-
lestur um ljósmyndir og áhrif þeirra á
ýmis hugræn svið, eins og endurminn-
ingar, þann 26. október.
sunna@frettabladid.is
ÞÓRÐUR INGI GUÐJÓNSSON: NÝR FORMAÐUR FÉLAGS ÍSLENSKRA FRÆÐA
Samkeppni við sjónvarpið
ÞÓRÐUR INGI ÁSAMT DÓTTUR SINNI INGUNNI SIF Félagsmenn eru íslenskufræðingar, sagn-
fræðingar og þjóðfræðingar svo fátt eitt sé nefnt. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Bernharður Guðmundsson
fyrrverandi þingvörður,
lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn
5. október.
Guðjón Hafsteinn Bernharðsson Helga Jónsdóttir
Guðmundur Bernharðsson Svanhildur Jónsdóttir
Eggert Þór Bernharðsson Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
�����������������������������������������
����������������������� �������������
����
�� �����
���������
�����
����������
Faðir minn
Björn Haukur Magnússon
lést í Florida í Bandaríkjunum 21. september sl. Útförin
hefur farið fram ytra. Fyrir hönd aðstandenda,
Laufey Björnsdóttir.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Guðrún Pálsdóttir
Lækjarsmára 6, Kópavogi,
lést á hjartadeild Landspítalans sunnudaginn
8. október. Útför hennar verður auglýst síðar.
Sigurður Pálsson
Þórunn Sigurðardóttir Sigurður Knútsson
Páll Sigurðsson Aldís Aðalbjarnardóttir
Sigrún Sigurðardóttir Tómas Erling Hansson
Guðný Sigurðardóttir Halldór Morthens
Hildur Sigurðardóttir
Barnabörn og langömmubörn.
Fjarðarási 25
stjorn@fiu.is
www.fiu.is
Félag íslenskra
útfararstjóra
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Alhliða útfararþjónusta í 16 ár
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
Svanhvít Svava Sigurðardóttir
Hvassaleiti 58, Reykjavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn
1. okt. verður jarðsungin þriðjudaginn 10. okt. kl. 15
í Grensáskirkju.
Edda Kolbrún Metúsalemsdóttir Ómar Kristjánsson
Stefán M. Ómarsson Birna Gísadóttir
Georg H. Ómarsson
Ómar Þór Ómarsson Klara Elíasdóttir
Svava María Ómarsdóttir
Ómar Björn Stefánsson
Stefán Gísli Stefánsson
Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Jósafat Sigurðsson
frá Siglufirði,
Eyjabakka 6, Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni miðvikudaginn 4.
október.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Þóranna Sigríður Jósafatsdóttir Jónsteinn Jónsson
Sigurður Gunnar Jósafatsson Ingigerður Baldursdóttir
Elenóra Margrét Jósafatsdóttir Sigurður H. Ingimarsson
Þorfinna Lydia Jósafatsdóttir Þorkell V. Þorsteinsson
Örn Einarsson Steinþóra Sumarliðadóttir
Stella Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.