Fréttablaðið - 10.10.2006, Page 66
10. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR30
Kl. 12.05
Bandaríski sagnfræðingurinn og
rithöfundurinn Antony Beevor
heldur fyrirlestur á vegum Sagn-
fræðingafélags Íslands í hátíðasal
Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn
nefnist „Stalíngrad og Berlín.
Sagnfræðirannsóknir í Rússlandi.“
Fyrirlesturinn er hluti hádegis-
fundaraðar Sagnfræðingafélags
Íslands sem jafnan fer fram í
Þjóðminjasafni Íslands.
> Ekki missa af...
Norrænum músíkdögum en fjöl-
breytt dagskrá þeirra stendur til 14.
október. Hornleikarinn Stefán Jón
Bernharðsson heldur stutta tónleika
í sal Listaháskóla Íslands á Sölv-
hólsgötu og í kvöld leikur hinn lofaði
Bozzini strengjakvartett í Listasafni
Íslands og flytur meðal annars verk eftir
Þórð Magnússon og Jean-Francois
Laporte.
Fyrstu hádegistónleikar
Íslensku óperunnar fara
fram í dag en þá stíga Finn-
ur Bjarnason tenór og Anna
Guðný Guðmundsdóttir
píanóleikari á stokk og flytja
ljóð eftir Robert Schumann.
Finnur syngur um þessar
mundir eitt aðalhlutverk-
anna í uppfærslu Íslensku
óperunnar á Brottnáminu úr
kvennabúrinu eftir Mozart.
Hádegistónleikaröðin hefur
fest sig í sessi á undanförn-
um árum og í vetur verða
fimm tónleikar haldnir þar
sem listafólk óperunnar
skemmtir tónlistarunnend-
um með stuttum en vönd-
uðum tónleikum.
Hinn 14. nóvember
næstkomandi munu Jónas
Guðmundsson tenór og Kurt
Kopecky píanóleikari flytja
rússneskar og ítalskar aríur
á hádegistónleikunum en
síðar í vetur munu söngkon-
urnar Ingveldur Ýr og Sig-
ríður Aðalsteinsdóttir koma
fram ásamt Kopecky.
Tónleikarnir hefjast jafnan
kl. 12.15 og standa í liðlega
fjörutíu mínútur en þess má
geta að léttar veitingar eru
til sölu í anddyri óperunnar
bæði fyrir og eftir tónleika
fyrir þá gesti sem vilja slá
tvær flugur í einu höggi og
næra bæði sál og líkama í
hádeginu.
Tenórtónar í hádeginu
FINNUR BJARNASON TENÓR SYNGUR
SCHUMANN Heldur tónleika ásamt Önnu
Guðnýju Guðmundsdóttur píanóleikara.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Patrekur átti að vera lítill
gleðigjafi fyrir ástríkt par
sem vildi ættleiða snáða en
reyndist síðan ólíkindatól
á unglingsaldri, vandræða-
unglingur með blóðuga
sakaskrá sem nú er óforvar-
endis fluttur inn á heimilið.
Enda kárnar gamanið.
Þjóðleikhúsið frumsýnir Patrek
1,5 eftir sænska leikskáldið
Michael Druker í Fjölbrautaskóla
Suðurlands í dag en sýningin mun
ferðast milli framhaldsskóla á
landsbyggðinni í októbermánuði.
Leikstjórinn Gunnar Helgason
segir að nýtt flokkakerfi hafi verið
fundið upp til að greina verkið og
kennir það við „vanda-gaman“ og
vísar þar til uppruna þess. „Svíar
eru jú þekktir fyrir að taka á erf-
iðum þjóðfélagsmálum og þetta er
pínulítið svoleiðis en það er bara
svo fyndið líka,“ segir hann sposk-
ur. „Viðfangsefnið er auðvitað
margþætt en í forgrunni eru tveir
hommar, giftir menn, sem ætla að
ættleiða barn en þegar síðan
kemur í ljós að það er ekki eins og
hálfs árs gamalt barn heldur
fimmtán ára vandræðaunglingur
og morðingi í þokkabót þá takast á
stálin stinn. Vandræðaunglingar
eru sjaldnast í uppáhaldi hjá fólki,
hvað þá þeir sem líka hatast út í
homma eða eru með slíka fordóma
sem margt fólk upplifir enn,“
útskýrir Gunnar.
Leikararnir Rúnar Freyr Gísla-
son og Jóhannes Haukur Jóhann-
esson fara með hlutverk parsins
ólukkulega en unglinginn leikur
Sigurður Hrannar Hjaltason, sem
er nýútskrifaður úr leiklistar-
námi í London og stígur nú sín
fyrstu skref í íslensku atvinnu-
leikhúsi.
Gunnar segir ómetanlegt tæki-
færi felast í þeirri ráðstöfun Þjóð-
leikhússins að fara með sýningu
sem þessa út á land og gefa ungu
fólki, sem mögulega flykkist ekki
á sýningar þess hér á höfuðborg-
arsvæðinu, tækifæri á að sjá leik-
hús við sitt hæfi. „Leikhúsið talar
sterkt til fólks og auðvitað vil ég
sem leikhúsáhugamaður að sem
flestir njóti þess. Það má heldur
ekki gleyma því að úti á lands-
byggðinni er mikil gróska hjá
áhugaleikfélögum og ekki síður
hjá skólunum sjálfum,“ segir hann
en bendir jafnframt á að þessi til-
tekni aldurshópur gleymist samt
oft og þar sem Þjóðleikhúsið vill
bera nafn sitt með rentu sé þessi
leið valin nú.
Hann segir líka að það sé frá-
bært að ungt fólk á landsbyggð-
inni fái að njóta sýningarinnar
fyrst því oft séu leikferðalög farin
eftir að verk hafa verið á fjölun-
um um hríð í borginni en nú er því
öfugt farið.
Sýningin Patrekur 1,5 hentar
þó fólki á öllum aldri þótt Gunnar
segi að húmorinn höfði máski
hvað best til fólks á menntaskóla-
aldri. Hún verður tekin til
almennra sýninga á Smíðaverk-
stæði Þjóðleikhússins í nóvember
auk þess sem menntskælingum á
höfuðborgarsvæðinu býðst þá
einnig að sjá hana. Þá er líka von á
höfundinum til landsins. „Sko,
hann komst ekki á frumsýning-
una, hann er nefnilega að keppa í
tennis enda segist hann vera
meðal þeirra bestu í Svíþjóð,“
segir Gunnar að lokum og hlær.
kristrun@frettabladid.is
PATREKUR REYNIST ALGER UMSKIPTINGUR Meinfyndið sænskt sósíalraunsæi fyrir
áhorfendur á öllum aldri. MYND/ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sænskættaður umskiptingur
550 5600
Hringdu ef blaðið berst ekki
- mest lesið
LEIKHÚSTILBOÐ: Tvíréttaður
kvöldverður og leikhúsmiði
frá kr. 4300 - 4800
TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM
frá kl. 10 til 16 mánudaga
- fimmtudaga í síma 437 1600
Staðfesta þarf miða með greiðslu
viku fyrir sýningardag
Sýningar í október
í Landnámssetri
Fimmtudagur 12. október kl. 20 Uppselt
Föstudagur 13. október kl. 20 Uppselt
Laugardagur 14. október kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 15. október kl. 20 Uppselt
Fimmtudagur 19. október kl. 20 Uppselt
Föstudagur 20. október kl. 20 Uppselt
Laugardagur 21. október kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 22. október kl. 20 Uppselt
Fimmtudagur 26. október kl. 20
Síðasta sýning - Uppselt
menning@frettabladid.is
!