Fréttablaðið - 10.10.2006, Side 68
10. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR32
Eins og kunnugt er fór fyrsti þáttur Auðuns
Blöndal, Tekinn, í loftið á Sirkus í gær-
kvöldi og í tilefni af því héldu aðstandendur
þáttanna partí á Q bar á föstudagskvöldið.
Margmenni mætti til að fagna því að upp-
tökum þáttanna væri lokið og loksins komin
tími til að sjá afraksturinn. Auðunn sjálfur
var að sjálfsögðu á staðnum og vonandi að
fólkið sem hann tekur fyrir í þáttunum sé
búið að fyrirgefa honum fyrir prakkara-
strikin en í þáttunum stríðir Auðunn þjóð-
þekktum einstaklingum. Plötusnúðurinn
Margeir sá um að gestir gætu dillað sér við
skemmtilega tónlist.
Nýjum þætti Audda fagnað
Í GÓÐU STUÐI Drífa og Henrik létu fara vel um sig á Q bar.
PRAKKARINN SJÁLFUR Auðunn Blöndal var að sjálfsögðu
mættur hress og kátur í fylgd kærustu sinnar, Lilju.
JEFF WHO? Strákarnir í einni vinsælustu hljómsveit landsins,
Jeff Who?, skemmtu sér vel við barborðið á Q bar.
HRESSIR Þessir félagar voru í miklu stuði
í partíinu og brugðu á leik.
FRÉTTABLAÐIÐ/SKARI
Stór stund var í Höfða í gær
þegar Yoko Ono staðfesti
áform sín um að reisa friðar-
súlu í Viðey að ári. Borgar-
stjóri er ekki í nokkrum
vafa um að súlan eigi eftir
að hafa mikla þýðingu fyrir
land og þjóð.
„Þetta mun vekja athygli á Íslandi
og Reykjavík og sýna friðarvilja
íslensku þjóðarinnar. Við erum
herlaus þjóð sem vill efla friðinn
í heiminum. Þannig má segja að
þetta sé framhald af leiðtoga-
fundinum í Höfða fyrir tuttugu
árum.“
Yoko segir að sér hafi lengi
fundist hugmyndin um friðarsúlu
frábær en ekki vitað hvar ætti að
koma henni fyrir. „Ég hef komið
margoft til Íslands og það var í
einni slíkri ferð sem ég áttaði mig
á að þetta væri heppilegur staður
fyrir ljóssúluna. Þetta er einstök
eyja að mörgu leyti, sérstaklega
vegna þess að aðalorkulindin er
vatn en ekki olía. Það gerir landið
frábrugðið flestum öðrum. Það er
mikil orka hér, bæði í landinu og
fólkinu. Íslendingar eru friðsöm
þjóð og bera virðingu fyrir land-
inu, sem er orðið fágætt á Vestur-
löndum núorðið.“
Hún kveðst ekki hafa fengið
bakþanka vegna virkjanastefnu
íslenskra stjórnvalda og stuðn-
ings þeirra við Íraksstríðið. „Ég
kynni mér ekki stefnu stjórn-
valda, ég reyni að kynnast fólkinu
í hverju landi og finn hér að fólk-
ið – þegnarnir – ber raunverulega
virðingu fyrir náttúrunni.“
Yoko valdi súlunni sjálf stað í
Viðey og er hæstánægð með það.
Vilhjálmur veit hins vegar sem er
að Viðey skiptir Reykvíkinga
miklu máli og margir vilja þar
sem minnst rask. „Ég hef svo sem
orðið var við að ekki eru allir sátt-
ir við þetta en ég held að það sé
ástæðulaust að hafa áhyggjur.
Þetta verður ljóssúla en ekki
steypt mannvirki og ég held að
fólk eigi eftir að kunna að meta
þetta á endanum.“ Gert er ráð
fyrir að kostnaður við ljóssúluna
hlaupi á um 30 milljónum; Orku-
veita Reykjavíkur greiðir helm-
ing og restin kemur úr borgar-
sjóði.
Gærdagurinn var ekki síður
merkilegur fyrir Vilhjálm sjálf-
an, því hann er mikill og einlægur
aðdáandi Bítlanna og John
Lennon. „Mig grunaði aldrei að
ég ætti eftir að hitta Yoko Ono,“
segir hann. „Þegar ég var skipti-
nemi í Bandaríkjunum veturinn
1963-64 voru Bítlarnir að koma
þangað í fyrsta sinn. Unglingarn-
ir trylltust þegar þeir heyrðu í
þeim í útvarpinu. Mig minnir að
She Loves You hafi verið mest
spilað á þeim tíma. En þetta var
auðvitað stórkostleg og merkileg
hljómsveit sem á mörg klassísk
og merkileg lög. Sjálfur held ég
mest upp á Michelle og Yester-
day.“
bergsteinn@frettabladid.is
Bítlaaðdáandinn Vilhjálmur
ánægður að hitta Yoko Ono í Höfða
YOKO ONO OG VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON Borgarstjóra grunaði ekki að hann
myndi einhvern tímann hitta Yoko. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Diskókóngur Íslands, Páll Óskar
Hjálmtýsson, tróð upp með Fræbb-
blunum á skemmtun starfsfólks
Reykjavíkurborgar síðastliðinn
föstudag. Aðstandendur skemmt-
unarinnar höfðu valið henni hið
skemmtilega þema Diskó og pönk.
„Ég var fulltrúi diskósins sem
plötusnúður, og Fræbbblarnir voru
fulltrúar pönksins,“ sagði Páll
Óskar, en hann sagði þema kvölds-
ins hafa verið nokkuð snúið.
„Þemað kallar í sjálfu sér á reip-
tog. Ef ég spilaði diskó báðu pönk-
ararnir um pönk, og ef ég spilaði
það fussuðu diskóboltarnir og drifu
sig af dansgólfinu,“ sagði hann.
Dúettinn var afrakstur skyndi-
hugdettu Valgarðs, söngvara
Fræbbblanna. „Hann spurði hvort
ég væri í stuði til að syngja Í nótt
með þeim. Ég dreif mig bara bak-
sviðs og lagði textann á minnið,“
sagði Páll Óskar, en samstarfið
vakti mikla lukku í salnum. „Diskó-
ið og pönkið eru ekki jafn ósam-
ræmanleg og fólk heldur,“ sagði
Páll Óskar, „í báðum tilvikum er
þetta lífsgleðitónlist.“
Páll Óskar sinnir nú dómara-
störfum í X-faktor, en áheyrnar-
prufur fara fram í Reykjavík á
laugardag. Hann segir hafa geng-
ið á ýmsu í höfuðstöðvum X-
faktor manna. „Fyrst hélt fólk að
keppnin snerist um að borða
köngulær eins og í Fear Factor.
Og nú er fólk að skrá sig úr
keppni út af einhverjum mis-
skilningi. Það heldur að það verði
lokað inni í herbúðum í tvo mán-
uði, sem er helber vitleysa. Þetta
er bara Idol fyrir fullorðna,“
sagði Páll Óskar. - sun
Palli og Valli syngja pönkdiskó
PALLI OG VALLI Páll Óskar segist hafa munað textann við Í nótt „svona næstum því“.
FRÉTTABLAÐIÐ/KRISTJÁN HJÁLMARSSON
Fyrrverandi kryddstúlkan Emma
Bunton er á leiðinni í hjónaband
með kærasta sínum til margra
ára, Jade Jones. Brúðkaupið mun
fara fram í mars á næsta ári og
Bunton er þögul varðandi athöfn-
ina sjálfa, sem líklegast mun ekki
fara fram á Bretlandi. Vinkona
söngkonunnar segir að Emma sé
mjög hamingjusöm og ánægð með
þennan ráðahag. Emma er þekkt
fyrir að vera barnakryddið eða
„Baby Spice“ í hinni ofurvinsælu
stúlknahljómsveit Spice Girls.
Barnakrydd-
ið giftir sig
EMMA BUNTON Þessi geðþekka söng-
kona er á leiðinni í hjónaband í mars á
næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/REUTERS
Leikstjórinn virti Robert Altman
er að þróa handrit byggt á við-
fangsefni heimildarmyndarinnar
Hands on a Hard Body: The Docu-
mentary. Fjallaði hún um hæfi-
leikakeppni í Texas þar sem glæ-
nýr trukkur var í verðlaun.
Altman hefur lengi stefnt að
því að gera myndina og hefur nú
ákveðið að þetta verði hans næsta
mynd. Svo gæti farið að Billy Bob
Thornton og Hilary Swank fari
með aðalhlutverkin. Tökur á
myndinni eiga að hefjast í janúar
á næsta ári.
Altman, sem er 81 árs, fékk
mjög góða dóma fyrir síðustu
mynd sína, A Prairie Home Comp-
anion. Hann hefur einnig leikstýrt
myndum á borð við Gosford Park,
The Player og Short Cuts.
Altman með
nýja mynd
ROBERT ALTMAN Leikstjórinn aldni vinn-
ur að nýrri mynd um hæfileikakeppni í
Texas. Hér tekur hann á móti heiðurs-
óskarnum fyrr á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP