Fréttablaðið - 10.10.2006, Side 72
36 10. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR
Árbæingurinn Ragnar Sigurðsson gæti hafa leikið sinn síðasta leik
með Fylki í bili, að minnsta kosti. Honum hefur verið sýndur mikill
áhugi frá félögum á Norðurlöndunum og nú hefur sænska úrvals-
deildarliðið IFK Gautaborg komist að samkomulagi við Fylki um
kaupverð á Ragnari. Fréttablaðið hefur reyndar heimildir fyrir því að
Malmö FF hafi einnig sýnt Ragnari mikinn áhuga og hafi verið komið
langt í samningaviðræðum þegar IFK greip inn í.
„Mér skilst að menn frá IFK hafi komið hingað þrisvar í sumar til að
sjá mig spila,“ sagði Ragnar við Fréttablaðið. „Ég þarf því ekki að æfa
með liðinu en stefni engu að síður að fara bráðlega út til að kíkja á
aðstæður og semja við liðið um kaup og kjör.“
Ragnar segir að hann muni skoða vel hvað félagið hafi upp á að bjóða
og bera það undir aðila sem hann treystir og þekkir vel. Hann kann-
aðist þó ekki við áhuga Malmö en sagði að Fylkismenn hefðu ef til vill
ekki verið að segja honum alla söguna. „Ég held að það sé betra að
vita ekki öll smáatriði því það getur bara truflað einbeitinguna.“
Ragnar er tvítugur varnar- og miðjumaður sem hefur verið fastamað-
ur í liði Fylkis undanfarin tvö ár. Litlu munaði að hann semdi við félag
síðasta haust en nú virðist fátt geta komið í veg fyrir útrás hans. „Ég
hef stefnt að því að gerast atvinnumaður í
knattspyrnu allt mitt líf og langar auðvitað
að fara eins langt og ég get. En mér líst
vel á Svíþjóð og tel það hollt að taka lítil
skref í einu.“
Hann telur að sú reynsla sem hann
hafi fengið með Fylki sé dýrmæt. „Ég
hef klárlega bætt mig mikið á undanförn- um
tveimur árum og ekki má vanmeta þá reynslu
sem maður fær í íslensku deildinni. Það er til
að mynda gott að spila undir þessari pressu
og takast á við einkunnagjafir fjölmiðla og
fleira í þeim dúr. Það finnst mér skipta máli.“
Ragnar hefur á síðastliðnum þremur tímabil-
um með Fylki í Landsbankadeildinni leikið
45 leiki og skorað í þeim tvö mörk. Þá hefur
hann verið fastamaður í yngri landsliðunum
og leikið samtals 20 leiki með þremur
landsliðum og skorað í þeim þrjú mörk.
RAGNAR SIGURÐSSON: GÆTI VERIÐ Á LEIÐ TIL SÆNSKA ÚRVALSDEILDARFÉLAGSINS IFK GAUTABORG
Gott fyrsta skref að fara til Svíþjóðar
FÓTBOLTI Stefán Gíslason var í
byrjunarliði Íslands gegn Lett-
landi um helgina og verður senni-
lega áfram á sínum stað gegn
Svíum, sér í lagi í fjarveru Brynj-
ars Björns Gunnarssonar sem
verður í leikbanni á morgun. Stef-
án sagði á æfingu íslenska lands-
liðsins í Kaplakrika í gær að menn
væru ekki mikið að velta sér upp
úr tapi liðsins fyrir Lettum um
helgina.
„Við munum að sjálfsögðu
skoða leikinn gegn Lettum vel og
reyna að bæta úr því sem miður
fór. En það þýðir ekkert að hengja
haus enda stutt í næsta leik,“ sagði
Stefán. „Nú þurfum við einfald-
lega að einbeita okkur að næsta
verkefni og við ætlum okkur að
gera betur gegn Svíum og sýna
okkar rétta andlit þar.“
Í síðustu landsleikjahrinu byrj-
aði Ísland á því að leggja Norður-
Íra á útivelli og tapa svo gegn
Dönum heima. Nú hófst vikan á
tapi í Lettlandi og fram undan er
heimaleikur gegn Svíum. En Stef-
án segir að lítill munur sé á
íslenska hópnum á milli leikjanna.
„Hvort sem við vinnum eða töpum
kunna menn einfaldlega að takast
á við þetta. Síðasti leikur á ekki að
hafa neitt að segja í þeim næsta og
í hópnum eru menn með reynslu
sem kunna að takast á við bæði töp
og sigra.“
Landsliðsþjálfarinn tók í svip-
aðan streng og sagði að andinn
væri góður í hópnum, þrátt fyrir
allt. „Auðvitað var þessi leikur
með algjörum ólíkindum. Við gerð-
um nokkur mistök og þeir voru
fljótir að refsa okkur fyrir þau.“
Kollegi Eyjólfs í Svíþjóð, Lars
Lagerbäck, sagði að varnarleikur
Íslands virtist óstöðugur og komu
þau ummæli Eyjólfi ekki á óvart.
„Við erum nýbúnir að fá á okkur
fjögur mörk í einum leik og Svíar
koma þar að auki til leiks með
mikið sjálfstraust og fullt hús
stiga. Við tökum sérstaklega mið
af því að mæta liði sem er með
bullandi sjálfstraust og ætlum að
reyna að verjast þeirra skyndi-
sóknum.“
Frá því að Eyjólfur valdi upp-
haflegan 20 manna hóp fyrir þessa
landsleiki hafa nú þrír dottið úr
hópnum vegna meiðsla og leik-
banns. Hann hefur nú kallað á Ólaf
Örn Bjarnason sem flaug til lands-
ins frá Noregi í gær. „Óli verður
til taks ef við þurfum að bæta við í
vörninni þar sem við höfum misst
mikið úr. Hann þekkir þetta allt
vel og fellur vel í hópinn.“
eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
MÁLIN RÆDD Eyjólfur Sverrisson lands-
liðsþjálfari og Hermann Hreiðarsson
varnarjaxl. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
FYRIRLIÐINN Eiður Smári Guðjohnsen fer fyrir sínum mönnum gegn Svíum á Laugar-
dalsvelli á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Þýðir ekki að hengja haus
Íslenska landsliðið í knattspyrnu tók í gærmorgun sína fyrstu æfingu í undir-
búningi sínum fyrir leikinn gegn Svíum á Kaplakrikavelli. Menn virtust upplits-
djarfir og jákvæðir þrátt fyrir slæmt tap fyrir Lettum um helgina.
FÓTBOLTI Veigar Páll Gunnarsson,
leikmaður Stabæk í Noregi, kom
inn á í síðari hálfleik gegn Lettum
á laugardag og færði meiri sóknar-
þunga í íslenska liðið eftir afleit-
an fyrri hálfleik þar sem Lettar
komust þremur mörkum yfir.
„Það var ekki létt að koma inn
á í þessari stöðu,“ sagði Veigar
Páll í gær. „En maður reynir að
hugsa jákvætt og ég leit á það
þannig að vinna alla vega síðari
hálfleikinn. Maður vill auðvitað
standa sig vel og vinna sér sæti í
liðinu.“
Eyjólfur Sverrisson landsliðs-
þjálfari stillti íslenska liðinu upp
samkvæmt 4-5-1 leikkerfinu eftir
að 4-4-2 skilaði íslenska liðinu
þremur stigum gegn Norður-Írum
og Dönum. Nú eru fjarverandi
þeir Heiðar Helguson og Gunnar
Heiðar Þorvaldsson og því minna
um framherja í hópnum en áður,
en íslenska liðinu gekk betur á
laugardag eftir innkomu Veigars
Páls.
„Ég vil að sjálfsögðu vera í lið-
inu en það er auðvitað þjálfaranna
að ákveða það og hvernig taktík
liðið spilar. Ég mun sinna þeirri
ákvörðun, sama hver hún verður.
En ég á minni möguleika á sæti í
liðinu ef við spilum 4-5-1.“
Veigar neitar því ekki að hann
og Eiður Smári hafi náð ágætlega
saman gegn Lettum. „Við sköpuð-
um fullt af færum í leiknum og að
mínu mati gekk betur í síðari hálf-
leik en þeim fyrri. Þá virtist mun-
urinn á liðunum ekki jafn mikill
og vorum við afar óheppnir að ná
ekki að minnsta kosti einu
marki.“ - esá
VEIGAR PÁLL GUNNARSSON Á æfingu íslenska landsliðsins á Kaplakrikavelli í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Veigar Páll Gunnarsson átti ágæta innkomu gegn Lettum á laugardag:
Ég vil auðvitað spila alla leiki
FÓTBOLTI Ólafur Örn Bjarnason
var í gær kallaður inn í íslenska
landsliðið og kemur hann í stað
Kára Árnasonar, sem meiddist í
leik Íslands og Lettlands um
helgina. Kári fór í gær í mynda-
töku vegna meiðslanna.
Helgi Valur Daníelsson gat æft
í gær en hann var aumur í baki
eftir leikinn gegn Lettum. Hann
ætti að verða klár í slaginn á
morgun. Grétar Rafn Steinsson
var sömuleiðis tæpur í síðustu
viku en gat leikið um helgina og
verður klár á morgun. - esá
Íslenska landsliðið:
Ólafur Örn inn
og Helgi tæpur
FJÓRIR GÓÐIR Íslensku leikmennirnir
á æfingu í gær. Helgi Valur er annar frá
hægri. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
FÓTBOLTI Grétar Rafn Steinsson
lék að venju í vörn íslenska
liðsins gegn
Lettum þrátt
fyrir að hafa
meiðst í leik
með AZ
Alkmaar í
síðustu viku. Þá
vankaðist hann
einnig og man
hann reyndar
lítið eftir þeim
leik í dag.
„Ég er allur
að koma til enda aðeins um
smávægileg meiðsli að ræða sem
maður lætur ekki stoppa sig. Ég
er betri í dag en um helgina og nú
þurfum við bara að bæta krafti í
okkar leik og ná góðum úrslitum
gegn Svíum.“ - esá
Grétar Rafn Steinsson:
Aðeins smá-
vægileg meiðsli
GRÉTAR RAFN
STEINSSON
FÓTBOLTI Þrír miðvallarleikmenn
sænska landsliðsins verða
sennilega ekki með liðinu sem
mætir Íslandi á morgun. Þegar er
ljóst að Fredrik Ljungberg
verður frá vegna meiðsla og þá
tekur Anders Svensson út
leikbann. Sá þriðji, Tobias
Linderoth, er í Kaupmannahöfn
þar sem kona hans á von á barni
þessa dagana.
Sænska knattspyrnusamband-
ið hefur leigt einkaþotu sem bíður
í Kaupmannahöfn ef svo fer að
Linderoth geti komið á síðustu
stundu.
Þá er eins og flestir vita Zlatan
Ibrahimovic í sjálfskipuðu leyfi
og Andreas Isaksson markvörður
er meiddur. - esá
Sænska landsliðið:
Einkaþota bíð-
ur Linderoth
VAR HANN INNI? Tobias Linderoth verst
skalla Carles Puyol gegn Spánverjum
um helgina. NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Óli Halldór Sigurjónsson
var í fyrradag ráðinn aðalþjálfari
meistaraflokks Leiknis sem
leikur í 1. deildinni. Tekur hann
við af Garðari Gunnari Ásgeirs-
syni sem lét af störfum eftir
tímabilið. Leiknir hafnaði í 9. sæti
deildarinnar en féll ekki þar sem
liðum verður fjölgað á næsta ári.
Óli hefur áður starfað sem
aðstoðarþjálfari í meistaraflokki
Leiknis. - esá
1. deildarlið Leiknis:
Óli Halldór ráð-
inn sem þjálfari
> Birgir Leifur slapp fyrir horn
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur
í GKG, lauk keppni á Áskorenda-
mótaröð Evrópu um helgina er
hann hafnaði í 59.-61.
sæti á móti í Toulouse
í Frakklandi. Árangurinn
færði honum um 32 þúsund krónur
í verðlaunafé og þénaði hann alls um
1,35 milljónir króna. Það skilaði honum
í 88. sæti peningalistans á mótaröðinni
en efstu 90 kylfingarnir komast beint
inn á annað stig úrtökumótsins fyrir
Evrópumótaröð næsta árs. Í fyrra hafnaði
Birgir Leifur í 85. sæti á sama lista og var
síðan hársbreidd frá því að komast inn í
aðalmótaröðina.
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Sænska götublaðið
Aftonbladet birti í gær ítarlegt
viðtal við landsliðsfyrirliðann Eið
Smára Guðjohnsen þar sem hann
ræðir um íslenska landsliðið og
félagslið sitt, Evrópumeistara
Barcelona.
Meðal þess sem kemur fram í
greininni er að hann telur að
Spánn muni sitja eftir í undan-
keppninni fyrir EM 2008 og að
Svíþjóð og Danmörk muni komast
áfram.
„Spánn tapaði fyrir Norður-
Írlandi og það væri flott að fá
tvær Norðurlandaþjóðir á EM.
Svíþjóð og Danmörk eru með
mjög öflug lið.“ Spænskir
fjölmiðlar tóku viðtalið upp í
sínum viðtölum í gær.
Hann segir að íslenska liðið sé
skipað góðum leikmönnum og
geti staðið sig vel á góðum degi.
„Leikurinn gegn Norður-Írum er
gott dæmi um það. Við verðum að
eiga þannig leik ef við ætlum
okkur eitthvað úr leik gegn
stórþjóð eins og Svíþjóð.“ - esá
Eiður Smári Guðjohnsen:
Spánn kemst
ekki áfram
EIÐUR SMÁRI Hér í léttum æfingum á
Kaplakrikavelli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA