Fréttablaðið - 10.10.2006, Blaðsíða 73
ÞRIÐJUDAGUR 10. október 2006 37
HANDBOLTI Þær fregnir bárust í
gær að Róbert Sighvatsson hefði
verið ráðinn aðalþjálfari þýska
úrvalsdeildarliðsins HSG Wetzlar
sem hann hefur leikið með síðan
2002. Dragan Markovic hefur
stýrt liðinu undanfarna ellefu
mánuði en liðinu hefur gengið
skelfilega í upphafi tímabilsins og
tapað öllum sínum sjö leikjum.
Róbert hefur ekkert getað leik-
ið með Wetzlar síðan í apríl síðast-
liðnum vegna meiðsla í hné og ótt-
ast hann að leikmannaferli sínum
sé nú lokið. „Það er búið að skera í
hnéð nokkrum sinnum og lítur
ekki vel út. Það fór liðþófi í hnénu
og svo sprakk upp úr brjóskinu.
Skömmu síðar lenti ég í samstuði
þar sem brotnaði enn meira brjósk
og þurfti þá að bræða brjósk í
hnéð í kjölfarið. Það gekk ekki
betur en svo að hnéð er alltaf bólg-
ið og ég get ekki hlaupið í þannig
ástandi.“
Hann segir að þess vegna hafi
það legið fyrir í nokkurn tíma að
hann tæki við þjálfun liðsins þar
sem hann gæti ekki leikið með lið-
inu. „Þetta kom fáum á óvart hér
og sjálfur hef ég stefnt að því
leynt og ljóst að fara í þjálfun. Ég
bjóst reyndar ekki við því að það
kæmi eins snemma og raunin er
en nú tekur við starf á nýjum vett-
vangi í umhverfi sem ég þekki
vel.“
Róbert verður með aðstoðar-
mann sér innan handar, Wolfgang
Klimpke, en hann segir að mikil
vinna sé framundan. „Nú strax á
föstudag mætum við Lemgo og
svo taka aðrir erfiðir leikir við.
Deildin virðist ætla að þróast
þannig að það verða 6-7 lið í botn-
baráttunni og eigum við eftir að
mæta flestum þeirra í næsta mán-
uði. Þangað til þurfum við að vinna
okkar heimavinnu vel og byrja að
safna sem flestum stigum.“
Róbert er nú á sínu ellefta tíma-
bili í þýska handboltanum en hann
hefur leikið með Schuttewald,
Dormagen, Düsseldorf og nú síð-
ast Wetzlar.
Róbert verður því þriðji
íslenski þjálfarinn sem starfar í
þýsku úrvalsdeildinni. Alfreð
Gíslason stýrir Gummersbach og
Viggó Sigurðsson tók tímabundið
við þjálfun Flensburg en bæði
þessi lið verða í toppbaráttu þýsku
úrvalsdeildarinnar í vetur.
- esá
Í KRÖPPUM DANSI Róbert Sighvatsson tekst hér á við Guillaume Gille, leikmann HSV,
í leik í þýsku úrvalsdeildinni vorið 2004. NORDIC PHOTOS/BONGARTS
Róbert Sighvatsson hefur ef til vill leikið sinn síðasta handboltaleik sem atvinnumaður:
Róbert Sighvatsson tekur við þjálfun
HSG Wetzlar í þýsku úrvalsdeildinni
FORMÚLA 1 Ferrari neitar að
leggja árar í bát í baráttunni um
heimsmeistaratitil ökumanna
þrátt fyrir að Fernando Alonso
hjá Renault hafi pálmann í
höndunum fyrir síðsta mótið.
Alonso þarf bara að enda í einu af
átta efstu sætunum til að tryggja
sér titilinn.
„Við játum okkur ekki sigraða
fyrr en tímabilið er búið. Ef svo
fer að við vinnum ekki titilinn þá
gerir þetta okkur enn ákveðnari í
að vinna titilinn í framtíðinni.
Mótið er hins vegar ekki búið
fyrr en á síðustu metrunum í
Brasilíu, Áfram Ferrari!“ sagði
Luca di Montezmolo, forseti
Ferrari. - dsd
Formúla 1:
Ferrari neitar
að gefast upp
FERRARI Ætla að berjast til lokastundar í
Formúlu 1. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI Logi Gunnarsson lék
vel í sínum fyrsta leik fyrir nýja
liðið sitt ToPo í Finnlandi. Logi
samdi við liðið félagið í síðustu
viku og hafði lítið æft með liðinu
áður en hann lék sinn fyrsta leik.
Logi byrjaði leikinn á bekknum
en kom þó inn á og lék í fimmtán
mínútur. Á þessum fimmtán
mínútum náði Logi að skora
þrjátíu stig og þriðji stigahæsti
leikmaður liðsins.
„Ég tel að ég geti unni mér
sæti í þessu liði, sér í lagi ef tekið
er mið af því að ég spilaði allra
mest í leiknum síðasta laugardag
eða um 30 mínútur,“ sagði Logi
eftir leikinn. - dsd
Logi Gunnarsson:
Lék í fyrsta
leiknum
LOGI GUNNARSSON Fór vel af stað með
ToPo í Finnlandi.
FÓTBOLTI Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins er Reynir Leósson
á leið til Fram og skrifar líklega
undir samning á miðvikudaginn.
Lengi vel var talið að Reynir væri
á leið til Skagamanna en eftir því
sem Fréttablaðið kemst næst mun
Reynir endurnýja kynni sín við
sinn gamla þjálfara Ólaf Þórðar-
son, sem nýverið tók við Fram.
- dsd
Reynir Leósson:
Líklega á leið
til Framara
REYNIR LEÓSSON Er líklega á leið í Fram.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM