Fréttablaðið - 10.10.2006, Qupperneq 78
10. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR42
HRÓSIÐ …
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2 óviljugur 6 tveir eins 8 stefna 9
prjónavarningur 11 í röð 12 sykurefni
14 síli 16 bardagi 17 saur 18 niður 20
tveir eins 21 nabbi.
LÓÐRÉTT
1 samtals 3 hljóta 4 jaðar 5 stykki 7
losaður 10 gerast 13 bók 15 sjá eftir
16 flana 19 tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 ófús, 6 ll, 8 átt, 9 les, 11
jk, 12 sykra, 14 seiði, 16 at, 17 tað, 18
suð, 20 rr, 21 arða.
LÓÐRÉTT: 1 alls, 3 fá, 4 útjaðar, 5 stk,
7 leystur, 10 ske, 13 rit, 15 iðra, 16 asa,
19 ðð.
„Það er vísindalega sannað að
karlmenn hafa mest
gaman af klámfengnu
gríni en konum þykir orð-
leikjagrín toppurinn á til-
verunni,“ segir Jón Gnarr,
sem er nýbyrjaður með fyrir-
lestra um íslenskt grín og húmor
á vinnustöðum á vegum Þekk-
ingarmiðlunar. „Þess vegna
þarf að hugsa aðeins betur
þá brandara sem við ætlum
að segja við konur en oftast
nægir bara að segja eitt-
hvað dónalegt við karla,“
bætir Jón við. „Konur hafa
hins vegar ekkert á móti klám-
fengnu gríni, þeim þykir það bara
svolítið barnalegt,“ bætir hann
við.
Jón segir íslenskan húmor fara
batnandi með hverju árinu sem
líður en grínið hafi lengi verið
fast á því sem Jón nefnir „Ríó
Tríó-tímabilið“. „Íslenskri tónlist
tókst hins vegar að verða heims-
fræg og nú er röðin komin að
íslensku gríni,“ segir hann.
Jón er með mörg járn í eldin-
um og á næstunni kemur út
skáldævisaga eftir hann auk
þess sem hann er á fullu við að
undirbúa nýjan sjónvarpsþátt
með Pétri Jóhanni Sigfússyni. Þá
eru hann og Eyþór Eðvarðsson
að endurtaka leikinn frá því í
fyrra þegar þeir ferðuðust á
milli vinnustaða og héldu fyrir-
lesturinn „Að takast á við erfiða
einstaklinga“ en hlutverk Jóns
er að leika allar þær týpur sem
koma fyrir á vinnustaðnum.
„Þær eru ótrúlega fjölbreyttar
og ná frá týpum eins og einræðis-
herranum til leyniskyttunnar,“
útskýrir Jón og segist hafa mjög
gaman af þessu öllu saman.
- fgg
Karlar vilja klám, konur orðaleiki
JÓN GNARR Heldur
fyrirlestra á vegum
Þekkingar-
miðlunar um
íslenskt grín
og húmor á
vinnustöðum.
PÉTUR JÓHANN SIGFÚSSON Jón
vinnur að undirbúningi nýrrar
sjónvarpsþáttaraðar með grín-
istanum úr Strákunum.
„Ég hef farið leynt með þetta og
reynt að hlífa öðrum en fjöl-
skyldu og vinum við þessu,“ segir
Þráinn Bertelsson rithöfundur,
sem sýndi á sér óvænta hlið þegar
hann kom út úr skápnum sem
myndlistarmaður um helgina, en
verk eftir hann seldist á rúmar
þrjár milljónir króna á fjáröflunar-
samkomu Krabbameinsfélags-
ins.
„Ég hef alltaf haft gaman af
því að mála og teikna en byrjaði á
þessu í einhverri alvöru fyrir ári
síðan. Ég er ekki afkastamikill,
geri tíu til fimmtán málverk á ári
og er því takmörkuð auðlind svo
myndlistarfólk þarf ekki að ótt-
ast að ég sé að þrengja að því.“
Málverk Þráins var boðið upp
ásamt verkum þriggja annarra
málara á vel heppnaðri kvöld-
verðarsamkomu Krabbameins-
félagsins sem haldin er undir
nafninu Bleika boðið og er ætlað
að afla félaginu fjár til kaupa á
fullkomnum tækjum til greining-
ar á brjóstakrabbameini.
„Þetta er fyrsta myndin sem
ég sýni opinberlega,“ bætir hann
við og má því vel við una þar sem
söluverð myndarinnar er óneit-
anlega í hærri kantinum.
Listakonurnar Ólöf Björg
Björnsdóttir, Hulda Vilhjálms-
dóttir og Þórunn Inga Gísladóttir,
máluðu ásamt Þráni hver sína
myndina á meðan á borðhaldi
stóð en verkin voru síðan boðin
upp. Kaupverðið rennur vita-
skuld beint til Krabbameins-
félagsins.
Bryndís Schram stjórnaði upp-
boðinu þar sem verk listakvenn-
anna voru öll slegin á um 600 þús-
und krónur hvert en viðstaddir
urðu enn örlátari á aurinn þegar
stappið snerist um mynd Þráins.
„Ég er ekki alveg klár á endan-
legu verði myndarinnar enda var
mig farið að svima en mér skilst
að hún hafi farið á 3,3 eða 3,5
milljónir,“ segir Þráinn. „Það
buðu mjög margir í myndina, sem
segir mér að margir gátu hugsað
sér að taka hana með sér. Þetta
var mjög gaman og það er mér
mikil hvatning hversu margir
vildu eignast myndina. Verðið er
samt bara dæmi um rausnarskap
þeirra sem þarna voru og vilja
styrkja Krabbameinsfélagið.“
Það var Baugur Group sem
eignaðist mynd Þráins eftir þó
nokkurt at en Skarphéðinn Berg
Steinarsson bauð fyrir hönd fyr-
irtækisins og atti kappi við full-
trúa fleiri fjársterkra aðila sem
sóttust einnig eftir málverki Þrá-
ins um leið og þeir létu gott af sér
leiða. thorarinn@frettabladid.is
ÞRÁINN BERTELSSON: RITHÖFUNDUR SELUR MÁLVERK FYRIR METFÉ
Kominn út úr skápnum sem
einhvers konar listmálari
ÞRÁINN BERTELSSON Veit ekki alveg hvernig málari hann er. „Þegar maður er veikur
veit maður að maður er veikur en þarf að fara til læknis til að fá að vita hvað er að
manni og maður verður að fara til listfræðings til að fá úr því skorið hvernig málari
maður er. Ég held sjálfur að það sé naívismi sem gangi að mér en hef ekki fengið
neitt mat á það.“
„Ég var í rútubransanum áður en
ég fór að vinna með poppurum
svo það var nærtækast að
stökkva í gamla fagið,“ segir
Guðmundur Gíslason umboðs-
maður, sem nú er búsettur í Nor-
egi. Guðmundur starfar sem hóp-
stjóri hjá stærsta rútufyrirtæki
Noregs, býr í bænum Tönsberg
og kann vel við sig. Hann hefur
þó ekki alveg sleppt hendinni af
íslenskum poppurum og flytur
þá út til Noregs til skemmtana-
halds. Fyrstur þeirra var Hreim-
ur Heimisson sem kom út um
daginn og spilaði á svokallaðri
poppmessu.
„Þetta var hugmynd íslenska
safnaðarins hér. Þeir vissu að ég
var vel kynntur í bransanum
heima og vildu fá eitthvað númer
til að koma. Það lá beinast við að
tala við Hreim enda hefur hann
gert þetta áður heima. Það var
líka auðvelt að fá hann út til Nor-
egs því foreldrar hans búa í
Drammen. Hann var hérna í viku
og spilaði golf í tæplega 20 gráðu
hita,“ segir Gummi, sem er
hvergi hættur. Hann ætlar næst
að fá Skítamóral út til að spila á
þorrablóti Íslendingafélagsins í
febrúar.
Ástæða þess að Guðmundur
fluttist til Noregs er sú að hann á
norska konu. „Hún var búin að
vera hjá mér í átta ár á Íslandi
svo það var kominn tími á mig,“
segir Gummi, sem hefur nú verið
í um fjögur ár í Noregi. „Ég fíla
mig líka mjög vel hér. Norðmað-
urinn er svo afslappaður og
skipulagður. Maður var búinn að
vera í kaosinu svo lengi að það
var góð tilbreyting. En það kemur
alltaf púki í mann annað slagið,
ætli það sé ekki svona tvisvar til
þrisvar á ári, og þá skýst maður
bara heim og tekur djamm og fer
svo aftur út.“ - hdm
Flytur íslenska poppara út til Noregs
GUMMI OG HREIMUR Umboðs-
maðurinn kunni fékk Hreim til að
syngja á poppmessu í Tönsberg.
...fær Silja Hauksdóttir fyrir að
leggja góðum málstaði lið og
mynda ferðalag Sigur Rósar til
Svasílands.
Glöggir „rúntarar“ í miðborg Reykja-
víkur á sunnudagskvöldið var
staðnæmdust margir hverjir fyrir
utan kosningaskrifstofu Sigurðar
Kára Kristjánssonar við Austurvöll,
enda sat þar velbúið
herlið langt fram
eftir kvöldi og
ræddi stöðu
mála í prófkjöri
Sjálfstæðisflokks-
ins sem er
á næsta
leiti. Gísli
Marteinn Baldursson var þar
fremstur meðal jafningja og
þingmaðurinn sjálfur var ekki langt
undan. Gárungarnir voru ekki lengi
að tengja Björn við Sigurð og telja
þar komið einhvers
konar bandalag enda
heimsótti dóms- og
kirkjumálaráðherr-
ann kosningaskrif-
stofu Sigurðar og
Gísli Marteinn
flutti ræðu
við opnun
kosninga-
miðstöðvar
Björns.
Greinilegt var á blaðamannafundi
Yoko Ono í Höfða í gær að íslensk-
um fréttamönnnum þykir mikið til
Bítlaekkjunnar koma. Engum þó
meira en Maríu Sigrúnu Hilmars-
dóttur, fréttamanni Sjónvarpsins,
sem mætti með eigin myndavél
til að festa viðtal sitt við Yoko á
filmu. María státar þó ekki aðeins
af mynd af sér við hliðina á betri
helmingi John Lennon
í myndaalbúminu
sínu, því hún
mætti einnig
með gamla
hljómplötu úr
fórum karls
föður síns og
bað Yoko um
að árita. Sem
hún og gerði
auðvitað
með glöðu
geði.
-fgg/bs
FRÉTTIR AF FÓLKI
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
k
u
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
a
fn
a
rf
jö
rð
u
r.
S
tæ
ð
il
e
g
u
r!
!!
1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8
1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8