Fréttablaðið - 27.10.2006, Side 33
FÖSTUDAGUR 27. október 2006 3
uppskrift Sigrúnar }
Paella
Borðið með blöndu af rauð-
víni og 7-up.
FYRIR 4-6
Eftirfarandi þarf að hafa við hönd-
ina:
Kjúklingur í bitum, með eða án
beina (t.d. 4-5 bringur)
Grísalundir (helmingi minna en af
kjúklingnum, en má líka sleppa)
Risotto-hrísgrjón, ca 500 g eða
tveir bollar
Kræklingur (bláskel), seldur frosinn
„au naturel“
Rækjur, huggulegt ef þær eru í
skelinni
4-5 saffron-þræðir eða saffron-
duft (Spánarfarar gætu átt sérstakt
paella-krydd)
Ein rauð paprika, skorin í þunna
strimla
Frosnar grænar baunir
Einn rauðlaukur, saxaður smátt
Hvítlauksgeirar eftir smekk en þó
ekki of margir (ca 2), saxaðir
Sítrónur, skornar í báta (3 bátar á
mann)
Kjúklingakraftur
Ólífuolía til steikingar
Álpappír
Mikilvægt er að hafa í huga að
magn hráefnisins fer eftir stærð
pönnunnar sem notuð er. Nú eða
hversu hagkvæmur maður vill vera;
ef lítið kjöt er til notar maður bara
meiri grjón.
Byrjað er á því að steikja papr-
ikuna og laukinn. Sett til hliðar.
Þá er kjötið steikt og sett til hliðar.
Því næst eru grjónin látin hitna
vel í olíunni, þar til þau verða vel
glær. Saffrani bætt við. Ef notaðir
eru þræðir er best að láta þá liggja
í 2 msk af vatni áður en þeim er
bætt við. Sjóðandi kjúklingasoði
er svo hellt yfir grjónin (rúmlega
4 bollum). Allt sem hafði verið
steikt áður er sett saman við, salti
stráð yfir og pönnunni lokað með
álpappír. Rétturinn er svo látinn
malla á vægum hita þar til grjónin
eru tilbúin. Rétt áður en þau
verða það er frosnum rækjum og
baunum, í hóflegu magni, bætt við
og látið þiðna undir álpappírnum.
Á meðan er bláskelin sett í pott
og vatn látið rétt fljóta yfir hana.
Suðan er látin koma upp eða þar til
skeljarnar opnast. Skeljunum er svo
raðað ofan á réttinn þegar hann er
tilbúinn.
Paellan er þá borin fram með
hvítu snittubrauði að ógleymdum
sítrónubátum. Vilji menn hafa vín
með þessum rétti má mæla með
því að blanda til helminga ódýru
rauðvíni og Sprite eða 7Up. Sérlega
frískandi á sumrin en í öllu falli afar
spænskt og hagkvæmt.
Paella er girnileg máltíð sem auðvelt
er að framreiða.
Til hnífs og skeiðar
GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR
Lambakjöt með myntumauki
Hjónaband lambakjöts og myntu
er sannkallað hamingjuband.
Myntan er frískandi og létt og
myndar góða andstæðu við
staðgott og jarðbundið lamba-
kjötið. Þar að auki er þetta einn
allra auðveldasti veisluréttur sem
hugsast getur. Hann má útbúa á
10 mínútum eftir að gestirnir eru
mættir.
600 gr lamba fillet
smjör til steikingar
1 1/2 stórt grænt epli (kjarnhreinsuð og
rifin)
2 dl fersk mynta (söxuð smátt)
2 msk hvítvínsedik
1 msk hunang
1. Útbúið myntumaukið með
því að blanda rifnu eplunum og
söxuðu myntunni saman við hvít-
vínsedik og hunang.
2. Skerið hvert filet í tvennt, og
steikið svo bitana á heitri pönnu.
Snúið puruhliðinni niður fyrst og
steikið í 2 mínútur – eða þar til
puran hefur brúnast fallega. Lækk-
ið hitann, setjið klípu af smjöri á
pönnuna og steikið bitana á hinni
hliðinni við meðalhita í 5-7 mín-
útur, eða þar til kjötið er mátulega
steikt eftir smekk hvers og eins.
Saltið og piprið á báðum megin.
3. Berið kjötið fram á beði af
myntumauki.
Nýtt frá
Te & Kaffi
Þú finnur kaffi við þitt hæfi
frá Te & Kaffi í verslunum
um land allt.
stundin
bragðið
stemningin
R
O
Y
A
L
Nýjar og ljúffengar sósur eru
komnar á markað með hinu
þekkta vörumerki Oscar.
Oscar sérhæfir sig í framleiðslu á
sósum, súpum og krafti bæði fyrir
heimili og stóreldhús og nýju sós-
urnar fimm eru einmitt hentugar
fyrir heimilin. Þær eru tilbúnar til
notkunar kaldar en líka er hægt að
hita þær í örbylgjuofni, annað-
hvort með því að hella þeim í litla
skál eða setja þær í umbúðunum
inn í ofninn en þá þarf að taka
lokið af áður. Oscar er danskt fyr-
irtæki sem leggur allan metnað
sinn í að framleiða aðeins vörur í
hæsta gæðaflokki og þessar sósur
eru engin undantekning frá því.
Hráefnið er allt fyrsta flokks og
má þar nefna smjör og rjóma sem
hvort tveggja er ekta. Fimm
bragðtegundir er um að velja í
nýju sósunum. Þær eru blue
cheese, creamy steak, bearnaise,
creamy pepper og hollandaise.
Íslensk-ameríska flytur Oscar-
vörurnar inn.
Ekta smjör og rjómi
Nýju sósurnar eru í handhægum umbúðum.