Fréttablaðið - 16.11.2006, Side 6
Ekki er gert ráð fyrir
lengingu flugbrautarinnar á Akur-
eyrarflugvelli í núgildandi sam-
gönguáætlun og því tómt mál að
tala um að ráðast nú þegar í verk-
efnið. Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra svaraði þessu
aðspurður á Alþingi í gær.
Kristján L. Möller, Samfylking-
unni, spurði ráðherra út í áætlanir
um úrbætur á Akureyrarflugvelli
í tilefni frétta af ákvörðun Iceland
Express um að hætta vetrarflugi
frá vellinum. Ástæður þess eru
ónógur aðflugsbúnaður og of stutt
flugbraut.
Sturla sagði að sér væri ekki
kunnugt um að þetta væru ástæð-
ur ákvörðunar flugfélagsins en
unnið væri að ýmsum endurbótum
á vellinum. Lenging flugbrautar-
innar væri þó ekki á dagskrá enda
ekki gert ráð fyrir framkvæmd-
inni í samgönguáætlun. Sagði ráð-
herra það engu að síður vilja sinn
að verkefnið verði tekið til athug-
unar við endurskoðun samgöngu-
áætlunar.
Áætlað er að verkið kosti um
hálfan milljarð króna.
Halldór Blöndal, Sjálfstæðis-
flokki, og fyrrverandi samgöngu-
ráðherra, sagði lengingu flug-
brautarinnar brýna og spurði
hvers vegna verkið væri ekki for-
gangsverkefni. Undraðist hann
metnaðarleysi samgönguráðherra
í málinu.
Undrast metnaðarleysi ráðherra
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Sykurskert
Hrísmjólk
Nýjung!
Fullkomið skjól
Timberland PRO
softshell jakki
12.900 kr.
Timberland PRO
goretex úlpa
23.990 kr.
Timberland PRO
vatnsheld úlpa
7.900kr.
Timberland PRO
öryggisskór
13.990kr.
SÆ
B
R
A
U
T
D
ug
g
uv
o
g
ur
Súð
arvo
gur
K
na
rr
ar
vo
g
ur
Endurvinnslan
VIÐ ERUM HÉR!
ESSO Aðföng 14 verslanir – sjá www.esso.is Sími 560 3433
Knarrarvogi 4
Lögreglan í Kópa-
vogi stöðvaði á þriðjudagskvöld
ökumann eftir að bifreið sem
hann ók mældist á 161 kílómetra
hraða á Reykjanesbraut til móts
við Smáralind. Hámarkshraði á
þessum slóðum er 70.
Ökumaðurinn reyndist vera
17 ára gamall piltur sem hafði
fengið ökusleyfi sitt rúmum
mánuði áður. Að sögn varðstjóra
er mjög sjaldgæft að bifreiðar
mælist á svo miklum hraða
innanbæjar.
Pilturinn verður sviptur
ökuréttindum og má að auki búast
við hárri fjársekt.
17 ára tekinn
á ofsahraða
Nefnd sem fjallaði um
lagaumhverfi stjórnmálaflokkanna
hefur lokið við drög að frumvarpi
um fjármál flokkanna. Ná þau ekki
einvörðungu til fjármála stjórnmála-
flokka heldur til flestra þátta er
snerta stjórnmál, til dæmis til
prófkjara.
Málið hefur verið unnið í kappi
við tímann því gert er ráð fyrir
stórauknum framlögum ríkisins til
stjórnmálaflokkanna og nauðsynlegt
að tekið sé tillit til þess við meðferð
fjárlagafrumvarps næsta árs.
Sigurður Eyþórsson, fram-
kvæmdastjóri Framsóknarflokksins
og formaður nefndar um lagaum-
hverfi stjórnmálaflokkanna, segir að
eftir sé að vinna og kynna aðra þætti
er snúa að stjórnmálunum því
nefndinni var gert að fjalla um
lagaumhverfi stjórnmálanna – ekki
aðeins fjármál. Er stefnt að því að
opinbera störf nefndarinnar eftir
helgi.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins verða settar hömlur á framlög
fólks og fyrirtækja til stjórnmálastarf-
semi en á móti koma aukin ríkisfram-
lög. Þá verður flokkunum gert að opna
bókhald sitt, eins og greint hefur verið
frá í Fréttablaðinu.
Finnur þú til þunglyndis í
skammdeginu?
Á að taka hrafntinnu úr Hrafn-
tinnuskeri fyrir Þjóðleikhúsið?
Runólfur Ágústs-
son, rektor háskólans á Bifröst, er
borinn þungum sökum og sakaður
um síendurtekin embættisafglöp í
kæru núverandi og fyrrverandi
starfsmanna skólans sem lögð
hefur verið fram til siðanefndar
skólans og háskólastjórnar. Rektor
boðaði til fundar nemenda og
starfsmanna Háskólans á Bifröst
í gærdag vegna kærunnar.
Í skýrslu sem fylgdi kærunni
er rektor gefið að sök að hafa átt í
ástarsambandi við nemanda sem
sat á sama tíma sem fulltrúi nem-
enda í háskólaráði, tekið þátt í
veðmáli við nemanda upp á háar
fjárhæðir og sagður hafa marg-
sinnis sveigt reglur sem hann
hafi sett öðrum nemendum og
starfsfólki sér í vil.
Fundurinn var boðaður með
fjöldapóstsendingu frá Runólfi
sjálfum. Sem viðhengi við þeirri
sendingu fylgdu málsskjöl
kærunnar auk skýrslunnar sem
þó var merkt sem „trúnaðarmál“.
Á fundinum svaraði Runólfur
ásökunum á hendur sér án and-
mæla og undir lok hans var síðan
boðað til atkvæðagreiðslu um það
hvort fundarmenn vildu hafa
rektor áfram í starfi eður ei. Nið-
urstaða þeirrar kosningar varð
sú að 70 prósent þeirra sem
greiddu atkvæði vildu hafa Run-
ólf áfram í starfi. Þó ber að geta
þess að einungis 218 af tæplega
600 nemendum og starfsmönnum
greiddu atkvæði. Margir starfs-
menn skólans höfðu þá gengið á
dyr.
Siðanefnd Háskólans á Bifröst
hefur enn ekki fjallað um kær-
urnar á hendur Runólfi. Bryndís
Ósk Jónsdóttir, formaður nem-
endafélags háskólans, segir
stjórn skólafélagsins telja að
siðanefndin hefði klárlega verið
réttur vettvangur fyrir afgreiðslu
málsins, ekki sá fundur sem hald-
inn var í gær. „Þarna var útdeilt
ómerktum seðlum af handahófi
og við vitum ekki neitt um það
hversu margir tóku við þeim. Svo
átti fólk bara að svara neitandi
eða játandi. En málið er komið til
siðanefndar sem mun koma
saman og taka málið fyrir. Enda
er þetta trúnaðarmál og átti
aldrei að fara neitt lengra en
þangað.“
Bryndís telur ekki að fundur-
inn eigi eftir að leysa nein af þeim
vandamálum sem uppi eru á
háskólasvæðinu. „Það er mjög
lítið gagn í fundi eins og þessum.
Þetta eru óviðunandi vinnubrögð
og ekki hægt að byggja neitt á
þessu.“ Runólfur Ágústsson vildi
ekki tjá sig við fjölmiðla í gær.
Rektor kærður til
siðanefndar skólans
Rektor Háskólans á Bifröst boðaði til fundar í gær vegna kæru til siðanefndar
á hendur honum. Hann er ásakaður um óeðlileg samskipti við nemendur og
alvarleg embættisafglöp. Trúnaðargögn send sem viðhengi með fundarboðinu.