Fréttablaðið - 16.11.2006, Side 8
Unnið er að greinar-
gerð um hagkvæmustu legu
jarðganga frá Sæbraut að
Gufunesi og væntir samgönguráð-
herra niðurstaðna á næstu vikum.
Þetta kom fram í máli Sturlu
Böðvarssonar á Alþingi í gær.
Sagði ráðherrann að í kjölfarið
gætu Vegagerð og Reykjavíkur-
borg tekið afstöðu til þeirra kosta
er þá liggja fyrir og upp frá því
gæti hönnun verksins hafist.
Þá væri framkvæmd við síðari
hluta Sundabrautar, milli Gufu- og
Kjalarness, til athugunar og gætu
niðurstöður umhverfismats
hugsanlega legið fyrir á síðari
hluta næsta árs.
Von er á skýrslu
um jarðgöng
Góð reynsla er af
einkarekinni öryggisleit í Leifs-
stöð, að sögn Stefáns Thordersen,
yfirmanns öryggissviðs Flugmála-
stjórnar á Keflavíkurflugvelli.
Um áramót rennur út sex mán-
aða reynslutímabil einkarekinnar
öryggisleitar í flugstöðinni. Fram-
kvæmdin er unnin undir eftirliti og
stjórn öryggissviðs Flugmála-
stjórnar, en er á ábyrgð flugvallar-
stjóra á Keflavíkurflugvelli. Flug-
málastjórn ákvað í júlí að ganga til
samstarfs við Securitas og Örygg-
ismiðstöð Íslands við útvegun
starfsmanna í skimun á komu- og
skiptifarþegum þegar ljóst var að
ekki tækist að ráða í allar stöður
eftir hefðbundnum leiðum. Um 40
manns vinna nú við öryggisleit á
vegum fyrirtækjanna í Leifsstöð.
„Þetta fyrirkomulag hefur
reynst afskaplega vel,“ segir Stef-
án. „Innlendar og erlendar eftirlits-
stofnanir hafa ítrekað tekið þetta
út og það hefur verið algjörlega án
athugasemda. Auk þess hefur þetta
reynst mjög hagkvæmt fjárhags-
lega.“
Stefán segir að þetta fyrirkomu-
lag hafi verið við lýði í nágranna-
löndunum, þannig að það sé ekki
nýtt af nálinni. Hins vegar hafi til-
koma þess 4. júlí haft talsverðar
breytingar í för með sér í Leifsstöð.
Fyrir þann tíma hafi upprunaleit
verið á hendi öryggisvarða frá sýslu-
mannsembættinu á Keflavíkurflug-
velli og þá hafi hún verið einskorðuð
við flugstöðvarbygginguna.
„Vegna kröfu frá Evrópubanda-
laginu þurfa allir farþegar utan
þess, til að mynda farþegar frá
Bandaríkjunum, Tyrklandi, Kúbu,
Búlgaríu og fleiri löndum nú að
sæta leit við komuna til landsins.
Flugvöllurinn fékk á sig áminningu
frá Eftirlitsstofnun EFTA meðan
ekki var farið að þeim kröfum, sem
hafði í för með sér að farþegar frá
Leifsstöð til Evrópubandalagslanda
urðu að sæta leit áður en þeir fóru
inn og blönduðust öðrum farþeg-
um. Þessu var aflétt eftir að núver-
andi framkvæmd öryggisleitar var
tekin út af Eftirlitsstofnun EFTA.
Í þessu tilliti er horft til þess að
gæðin verði sem mest og jafnframt
að orðið sé við kröfum um öyggis-
leitina á sem hagkvæmastan hátt,“
bætir Stefán við. „Eigi flugvöllur-
inn að vera samkeppnisfær og álög-
ur sem minnstar á farþega þarf
ávallt að leita leiða til þess að fram-
kvæmdin sé af sem mestri ráð-
deildarsemi.“
Góð reynsla af einka-
rekinni öryggisleit
Reynslutími einkarekinnar öryggisleitar í Leifsstöð er senn á enda. Innlendar
og erlendar eftirlitsstofnanir hafa gert úttekt á gæðum hennar og reynslan er
góð, segir yfirmaður öryggissviðs Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli.
Þingmenn deildu hart í upphafi
þingfundar á þriðjudag um kosningaloforð
Framsóknarflokksins frá árinu 1999 um að
veita milljarði til baráttunnar gegn
fíkniefnum. Sæunn Stefánsdóttir, Fram-
sóknarflokki, hóf umræðuna og ásakaði
Björgvin G. Sigurðsson, Samfylkingunni,
um að slá ryki í augu kjósenda með því að
segja að ekki hefði verið staðið við
loforðið. Hún bætti við að teknar hefðu
verið saman upplýsingar um þróun
fjárframlaga til málaflokksins árið 2003
og þá hafi komið í ljós að aukningin hefði
verið 1,7 milljarðar.
Björgvin sagði Framsókn vera að rjúka
upp korteri fyrir kosningar við að reyna
að tína saman til allt sem mögulega gæti
fallið undir forvarnir og meðferðarúrræði
í kerfinu. Hann sagði milljarðinn hafa verið táknræna
tölu um átak sem aldrei hafi orðið og að Framsókn
geti ekki vikið sér undan málinu með
talnaleikjum.
Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæð-
isflokki, sagði að ef einhver héldi öðru
fram en að milljarði hefði verið varið í
þennan málaflokk þá væri sá hinn sami
að skrökva. Guðni Ágústsson landbúnað-
arráðherra tók í sama streng og sagði
lygar ekki ganga á Suðurlandi þar sem
mönnum væri kennt að segja sannleik-
ann, en þeir eru báðir þingmenn kjör-
dæmisins. „Ungir stjórnmálamenn og
drengilegir menn sem lenda í þeirri
ógæfu að bera ljúgvitni og fara með
rangt mál eiga einfaldlega að biðjast
afsökunar.“
Björgvin fór fram á að forseti
Alþingis vítti Guðna fyrir að bera á sig
ósannindi og vildi fá tækifæri til svara fyrir sig, en
þingforseti varð ekki við ósk hans.
Í ráði er að dreifa
dagskrá útvarps og sjónvarps
Ríkisútvarpsins um gervitungl.
Nemur árlegur kostnaður við
útsendingarnar um 50 milljónum
króna og hefur Alþingi samþykkt
að verja 150 milljónum af Síma-
peningunum til að standa straum af
kostnaðinum næstu þrjú árin.
Með þessu lagi eiga útsendingar
RÚV að nást um allt landið, á hafi
úti og í útlöndum.
Verkið er boðið út á Evrópska
efnahagssvæðinu og rennur
frestur gervitunglafyrirtækja til
að bjóða í það út í dag.
Kosta 50 millj-
ónir króna á ári
Siv Friðleifsdóttir
heilbrigðisráðherra vísar á bug
fullyrðingum borgarstjóra um að
seinagangur í ráðuneytinu tefji
byggingu nýrra hjúkrunarheim-
ila í borginni. „Hér er unnið af
fullum krafti. Verkið er komið á
þann góða rekspöl að við erum að
ganga frá útboðsteikningum og
kanna möguleika á útboði á jarð-
vinnu um áramótin,“ segir hún.
Heilbrigðisráðherra hefur
fundað með fulltrúum Sóltúns og
hefur komið fram að bygging
hjúkrunarheimilis í Sóltúni yrði
ekki reist á styttri tíma en hjúkr-
unarheimili í Mörkinni við Suður-
landsbraut. „Það yrði hugsanlega
svipaður byggingartími en hann
yrði ekki styttri miðað við hvað
við erum komin langt með undir-
búningsvinnuna við Suðurlands-
braut,“ segir hún.
Samkomulag hefur verið und-
irritað um níutíu rýma hjúkrunar-
heimili á Lýsislóðinni og verður
það tekið í notkun um áramótin
2009-2010. Hjúkrunarheimilið er í
hönnun og hefjast byggingafram-
kvæmdir í ársbyrjun 2008.
„Það er í skoðun með Reykja-
víkurborg og Seltjarnarnesbæ að
það hús rísi frekar á lóð Sóltúns
en það umræðuferli er ekki
hafið,“ segir ráðherrann og vill
taka fram að hún hafi ekki í
hyggju að taka upp samkomulag-
ið um Lýsislóðina.
Undirbúningur á fullu skriði