Fréttablaðið - 16.11.2006, Page 16
„Enginn getur sagt að
við höfum ekki efni á að gera ekki
neitt,“ sagði Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, í ræðu sinni á loftslagsráð-
stefnunni í Kenía í gær.
Hann sagði greinilegt að það
muni kosta miklu minna að draga
úr útblæstri gróðurhúsaloftteg-
unda núna „heldur að fást við
afleiðingarnar síðar.“ Hann kvart-
aði einnig yfir „skelfilegum skorti
á forystu“ þegar kemur að því að
ákveða næstu skref í því að draga
úr útblæstri gróðurhúsaloftteg-
unda.
„Nú ættum við að fara að sýna
meira pólitískt hugrekki“ sagði
hann við ráðstefnugestina í Naír-
óbí, en þar í salnum sátu fulltrúar
frá þeim 180 ríkjum sem eru aðil-
ar að loftslagssamningi Samein-
uðu þjóðanna frá 1992. Fulltrúi
Íslands á ráðstefnunni er Jónína
Bjartmarz umhverfisráðherra.
Tveggja vikna ársfundi full-
trúanna lýkur á föstudag, en á
fundinum liggur fyrir það verk-
efni að samþykkja nánari útfærsl-
ur Kyoto-bókunarinnar, en sam-
kvæmt henni ber 35 iðnríkjum
skylda til þess að draga úr, fyrir
árið 2012, útblæstri gróðurhúsa-
lofttegunda um 5 prósent frá því
sem var árið 1990.
Ekki er þó reiknað með að
afgerandi ákvarðanir verði tekn-
ar á þessum fundi. Í Naíróbí virð-
ast margir vera þeirrar skoðunar
að bíða þurfi þess að kjörtímabil
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta renni út áður en raunveru-
legar samningaviðræður geti haf-
ist, en þangað til eru rúmlega tvö
ár.
Dýrkeypt að
bíða lengur
Kofi Annan segir miklu ódýrara að draga nú þegar
úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda heldur en að
bíða þar til takast þarf á við afleiðingarnar.
Tvítug kona var á
þriðjudag dæmd í Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrir gripdeild
vegna síendurtekins bensínstuld-
ar í júlí á þessu
ári. Konan gerði
sér sex sinnum
ferð á tvær
mismunandi
bensínstöðvar
Olís á áðurnefndu
tímabili og dældi
eldsneyti á bifreið
sína án þess að
greiða fyrir það.
Konan mætti
ekki fyrir dóm til að svara fyrir
sakir sínar. Henni var gert að
greiða 60.000 króna sekt til
ríkissjóðs auk þess sem hún þarf
að greiða Olís 24.054 krónur fyrir
eldsneytið sem hún stal að
viðbættum vöxtum.
Fyllti á án
þess að greiða
„Við erum búin að ná því fram
sem við vildum,“ segir Bjarni Torfi Álfþórs-
son, formaður íþróttafélagsins Gróttu.
Lausn er fundin á deilu Gróttu og bæjar-
yfirvalda um stækkun aðstöðu fimleikadeildar
Gróttu á Hrólfsskálamel. Að sögn Bjarna
verður fimleikahúsið stækkað um allt að 800
fermetra með því að byggja húsið til austurs
og suðurs.
„Við erum búnir að fara yfir þetta með
yfirþjálfurum fimleikadeildarinnar og þessi
stækkun virðist geta mætt þeim þörfum sem
deildin hefur,“ segir Bjarni.
Grótta hafði kært nýtt deiliskipulag sem
bæjaryfirvöld staðfestu. Töldu Gróttumenn
sig svikna um eitt þúsund fermetra viðbygg-
ingu á Hrólfsskálamel sem samþykkt hafi
verið í íbúakosningu. Grótta dró síðar kæruna
til baka og fékk á mánudag tilboð frá bæjaryf-
irvöldum um áðurgreinda lausn málsins.
„Við ætlum ekki að vera með neinn
þvergirðingshátt og gerum ekki meira í
málinu en bíða eftir því að viðbyggingin rísi í
lok kjörtímabilsins. Ef það gengur upp erum
við mjög sáttir,“ segir Bjarni.
Eins og tíðkast hefur á Seltjarnarnesi með
slík íþróttamannvirki mun bæjarsjóður kosta
viðbygginguna og íþróttafélagið síðan fá þar
inni fyrir æfingar sínar eftir þörfum.
Ólafur F. Magnús-
son, borgarfulltrúi Frjálslynda
flokksins, er andvígur því að tvö
108 og 98 ára gömul hús við Lauga-
veg verði rifin til að rýma fyrir
nýjum byggingum.
Húsin tvö er á svokölluðum
Frakkastígsreit og eru á meðal
þeirra húsa á reitnum sem títt hafa
gengið kaupum og sölum á þessum
reit. Núverandi eigandi er athafna-
maðurinn Þorsteinn Steingrímsson
sem á fleiri hús á Frakkastígsreitn-
um. Frjálsyndi flokkurinn segir
hugsanlegt niðurrif húsanna vera
umhverfisslys og hvetur borgarbúa
til að gera athugasemdir til skipu-
lagsfulltrúa.
Á fundi skipulagsráðs á mið-
vikudag var samþykkt að auglýsa
tillögu sem gerir ráð fyrir niðurrifi
húsanna númer 33 og 35 við Lauga-
veg sem eru í eigu ÁF-húsa ehf.
Þessi hús eru byggð 1935 og 1921.
Leggst Ólafur einnig gegn niðurrifi
þeirra enda séu öll húsin hluti gam-
allar götumyndar Laugavegarins.
Ekki náðist í Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur, formann skipu-
lagsráðs.
Vilja vernda aldargöm-
ul hús gegn niðurrifi