Fréttablaðið - 16.11.2006, Page 18

Fréttablaðið - 16.11.2006, Page 18
 Pólverji féll af uppslætti eða plötu við húsbygg- ingu í Borgartúni í júní og slasað- ist alvarlega. Hann er nú í endur- hæfingu. Verið er að rannsaka tildrög slyssins og kanna hugsan- lega bótaskyldu en enn er allt óljóst um hana. Pólverjinn var nýkominn til landsins og var við vinnu sína við húsbyggingu í Borgartúninu þegar hann féll sex metra niður af upp- slætti eða húsplötu. Hann fékk alvarlega höfuðáverka og brotn- aði illa og var strax fluttur á sjúkrahús. Maðurinn naut fullra sjúkraréttinda hjá Trygginga- stofnun ríkisins og hefur notið heilbrigðisþjónustu hér á landi. Ekki er ljóst hver var vinnu- veitandi mannsins þegar slysið varð, hvort það var aðalverktaki eða undirverktaki, og því ekki ljóst með bótaskyldu. Verið er að afla upplýsinga um tildrög slyssins en Pólverjinn man ekki sjálfur hvernig það bar til. Þegar vinnuslys verða, hvort sem það er af völdum vinnuaðstæðna eða samstarfsmanna, eru vinnu- slysin rannsökuð af hálfu Vinnu- eftirlitsins og lögreglu. Slík rann- sókn er í gangi. Þegar niðurstaða rannsóknar á tildrögum slyssins liggur fyrir verður tekin ákvörð- un um framhaldið. Bótaskyldan er enn óljós Landbúnaðarráð- herra hefur boðað nefnd þriggja ráðuneyta til að finna út hvernig allt að fjörutíu prósenta niðurfell- ingu tolla á almennum kjötvörum verður háttað. Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur Bændasamtaka Íslands, segir að enn sem komið er hafi ríkisstjórnin bara gefið upp boltann. Útfærslan þurfi að skýr- ast fyrir áramót til að breytingin geti tekið gildi 1. mars. „Nú ríður á að fá útskýringu á því hvernig útfærslan verði, hversu margir tollflokkar fá 40 prósenta niðurfellingu og hverjir minna og veltu þessara þeirra. Þetta getur líka komið fram í því að hér verði meiri innflutningur á vörum sem innihalda landbúnað- arhráefni eða til dæmis unnar kjötvörur,“ segir hún. Erna telur lítið hægt að segja um áhrifin en segir ljóst að aðgerð- irnar komi sjálfkrafa fram í verði til bænda, það liggi í hlutar- ins eðli. „Heildsölu- verð á mjólk- urvörum hækkar ekki fyrr en 1. jan- úar 2008. Bændur munu augljóslega leggja eitthvað af mörkum en við vitum ekki enn hvað þetta þýðir fyrir þeirra tekjur því að það veit enginn hvað allt að fjörutíu pró- sent þýðir,“ segir hún. „Mér finnst þetta jákvætt skref og engin spurning að þetta á eftir að skipta heimilin miklu máli en maður spyr sig að því hvernig þessi afsláttur á landbúnaðarvör- um eigi eftir að líta út. Vörugjöld- in hafa verið dulin skattheimta,“ segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, og vill sjá útfærsluna sem fyrst. „Það sést ekki alveg svart á hvítu hvern- ig þetta verður útfært.“ Sigurður Arnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kaupáss, fagn- ar því að matvælaverð lækki. Hann telur mikilvægt að samhliða þessu verði fylgst með samkeppn- isumhverfinu á matvörumarkaðn- um. Hann telur að lækkunin hafi til dæmis ekki nein áhrif á mjólk- urverð í Krónunni því þar sé mjólkin seld undir kostnaðar- verði. „Það er ekki búið að kynna þessar hugmyndir, þær eru óklárar fyrir utan virðisaukaskatt- inn. Ég hef ekki séð neina útfærslu á tollalækkuninni en við munum skila þessari skattalækkun út í matvöruverðið. Við fögnum þessu útspili og viljum leggja okkar af mörkum,“ segir Sturla Eðvarðs- son, framkvæmdastjóri Sam- kaupa. Útfærslan á kjöttoll- inum er enn óljós Óljóst er hvernig útfærslan á niðurfellingu tolla á kjötvörum verður. Hún þarf að skýrast fyrir áramót ef aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að lækka matarverð eiga að taka gildi 1. mars 2007, segir Erna Bjarnadóttir hjá Bændasamtökunum. Thaksin Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra Taí-lands, hefur alls ekki í hyggju að snúa aftur á svið stjórn- málanna í Taílandi, að því er lögfræðingur hans greindi frá í gær. Thaksin var steypt af stóli í byltingu hers-ins 19. september síðastliðinn. Thaksin hefur verið á ferðalagi um Asíulönd undanfarna daga, en ætlar ekki að láta sjá sig í Taílandi á næstunni. Herlög eru enn í gildi þar og verða enn um sinn, að sögn forsprakka byltingarinnar. Ætlar ekki í stjórnmál á ný
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.