Fréttablaðið - 16.11.2006, Page 43
Fyrirburum sem fæðast í 22.
viku meðgöngu ætti ekki að
halda lifandi samkvæmt nefnd
sem fer með siðfræði í líftækni-
iðnaði í Bretlandi.
Nefndin byggir skoðun sína á
rannsóknum á fyrirburum tveggja
síðustu ára í Bretlandi. Börn sem
fæðast á 22. viku meðgöngu lifa
fæst en þau sem það gera eru flest
mikið fötluð andlega og líkam-
lega.
Einungis eitt prósent barna
sem fæddust í 22. viku lifði áfram.
Ekkert barn sem fæddist í 21. viku
lifði en þau sem fæðast á 23. viku
lifðu í 17 prósentum tilvika. Börn
sem fæddust í 25. viku meðgöngu
lifðu hins vegar í 50 prósent til-
vika. Það er því ljóst að hver vika
skiptir miklu máli.
Læknar og foreldrar meta í
hverju tilviki fyrir sig hvort halda
eigi lífi í börnum með tækjabún-
aði. Ráðið hvetur til að svo verði
áfram en áréttar að ekki sé sið-
ferðilega rétt að leggja á börn erf-
iðar og sársaukafullar aðgerðir ef
lífslíkur og líkur á eðlilegu lífi eru
hverfandi.
Hvaða börn
eiga að lifa?
Sjónvarpskokkurinn Jamie
Oliver vill að Bandaríkjamenn
taki sér til fyrirmyndar her-
ferð hans gegn óhollum mat í
breskum grunnskólum.
Jamie Oliver hefur á undanförn-
um árum barist hart fyrir því að
boðið verði upp á hollari skóla-
máltíðir í breskum skólum til að
sporna við offitu barna sem er
vaxandi vandamál þar í landi. Er
skemmst frá því að segja að kokk-
urinn vann skóla- og heilbrigðis-
völd að lokum á sitt band eftir þó
nokkurt mótlæti.
Nú vill Oliver að Bandaríkja-
menn feti í fótspor Breta með því
að endurskoða skólamáltíðir
barna, ekki síst í ljósi þess að
offitutilfelli á meðal barna og
unglinga hafa þrefaldast frá árinu
1980. 17 prósent bandarískra
barna glímdu þannig við offitu
árið 2004 og er spáð að sú tala
hækki upp í 20 prósent verði ekki
gripið til aðgerða.
Í nýlegu viðtali sagði Oliver
hægan leik fyrir feitustu þjóð
heims að taka upp heilsusamlegri
matarvenjur fyrst Bretar, feitasta
þjóð Evrópu, gátu það. Sökum
anna segist Oliver þó ekki ætla af
stað í nýja krossferð, auk þess
sem hann óttast að Bandaríkja-
menn taki því óstinnt upp fari
Breti að segja þeim til verka.
„Þeir munu ekki meta hreinskilni
mína,“ sagði nakti kokkurinn við
það tilefni.
Jamie í krossferð gegn fitu
arka ehf • s. 899 2363