Fréttablaðið - 16.11.2006, Side 50

Fréttablaðið - 16.11.2006, Side 50
{ x-factor } 2 „Það er mikil spenna og ég hlakka mjög mikið til að sjá fyrsta þáttinn“, segir Einar Bárðarson sem er Íslend- ingum að góðu kunnur fyrir störf sín sem dómari í Idol-stjörnuleit Stöðvar 2 og umboðsmaður margra af þekkt- ustu tónlistarmanna landsins. Hann snýr aftur í X-Factor keppninni og hefur óneitanlega svolítið forskot á hina dómaranna enda gefið út fjölda plata og er meðal annars ábyrg- ur fyrir ævintýralegri velgengni Nylon-flokksins í Bretlandi. „Áheyrnarprufurnar voru miklu frjálslegri heldur en aðrir þættir sem ég hef tekið þátt í,“ bætir umboðsmaðurinn við sem staddur var í Lond- on þegar Fréttablaðið náði tali af honum. „Mér er náttúrlega harðbannað að ræða innihald þáttanna en get upplýst að ég skemmti mér konung- lega,“ útskýrir Einar og segir þetta hafa verið spennandi og fjölbreyttan hóp með blöndu af hæfileikalausu og hæfileikaríku fólki. „Mér fannst sérstaklega gaman af þessu eldri hóp sem mætti en þetta er í fyrsta skipti sem hann fær að spreyta sig í svona þætti,“ segir Einar. X-Factor er ekki síður keppni milli dómaranna en Einar segist vera áhyggjulaus. „Ég er miklu naskari en þau Ellý og Páll Óskar þannig að þetta er bara formsatriði að klára þetta,“ segir Einar og hlær. „Þau ætla samt að veita mér verðuga samkeppni og maður spilar jú aldrei betur en mótherjinn leyf- ir,“ bætir Einar við. „Ég verð bara að vera þef- vís á rétta fólkið.“ Formsatriði að vinna keppnina Einar Bárðarson segist vera miklu naskari en Palli og Ellý Þrátt fyrir að X-Factor sé leit að næstu stjörnu er þátturinn um margt ólíkur því sem sjónvarpsáhorfendur eiga að venjast frá Idol-stjörnuleit. Þar misstu til að mynda dómarar öll völd þegar kom að símakosningu en í X-Factor er vald þeirra mun meira. Að sama skapi eru ekki gerðar kröf- ur um aldurstakmörk, eina skilyrðið er að keppendur séu orðnir sextán ára auk þess sem sönghópar og hljómsveitir eru boðin velkomin. X-Factor er skipt upp í fjóra mis- munandi hluta sem hver tekur við af öðrum. Fyrsti hlutinn eru hefð- bundin áheyrnarpróf þar sem dóm- nefndin kemur sér saman um að velja áfram vænlega keppendur en að þeim loknum taka við svokallað- ar vinnubúðir. Þar hefur þeim níu- tíu atriðum sem komust áfram verið deilt á milli dómaranna þriggja og þeim skipt upp í þrjá hópa; A-hóp sem er á aldrinum 16 til 24, B-hóp en það er fólk sem 25 ára og eldri og loks C-hópurinn sem samanstendur af sönghópum eða hljómsveitum. Keppendum fækkar jafnt og þétt í vinnubúðunum en þegar þeim er lokið hefur hver dómari yf i r sex atriðum að ráða. Keppnin milli dómar- anna harðnar eftir því sem lengra líður á þáttinn. Þriðji hlut- inn ber heitið Heima hjá dómurum en þar fá dóm- ararnir þrír að kynnast þeim sem þeir hafa valið fyrir sína hönd ögn betur og geta í framhaldi af því vegið og metið hverjir verðskulda að komast áfram í úrslitaþáttinn sem er næsta stig þátt- arins en þar berjast tólf keppendur eða atriði um að vera X-Factor, þessi óþekkta stærð. Síðasti hópurinn samanstendur af fjórum einstakl- ingum, fjórum eldri en 25 ára og fjórum sönghópum eða hljómsveit- um. Dómurunum þremur er að sjálf- sögðu mjög annt um að kynna sína keppendur fyrir þjóðinni og vilja veg þeirra sem mestan en slíkt getur valdið togstreitu og spennu þeirra á milli. Þjóðin fær að sjálfsögðu að láta sitt álit í ljós með símakosningu og sá sem fær fæst atkvæði verður sendur heim. Hvað er sjónvarpsþátturinn X-Factor? „Þetta er búið að vera æðis- legt,“ segir Páll Óskar Hjálm- týsson, einn af dómaratríóinu í X-factor. „Þetta er í stuttu máli Idol fyrir fullorðna en þegar þú byrjar að fylgjast með þættinum tekurðu eftir að það eru nokkrar áherslu- breytingar sem eru mjög ólíkar Idolinu. Þetta er mun mann- úðlegra og meira sanngjarnt,“ bætir hann við og heldur áfram: „Það er mun meiri ábyrgð á okkur dómurunum. Við sitjum ekkert bara þarna og dæmum heldur tökum við að okkur ákveðna keppendur og þjálfum þá upp. Við erum eiginlega búin að vera í hálf- gerðum herbúðum með okkar keppendum og höldum því áfram þótt myndavélarnar séu ekki alltaf á okkur. Síðan mætum við bara æðislega stolt í janúar með fjóra bestu keppendurna okkar, að okkar áliti. Þannig að það eru fjög- ur bestu atriðin frá hverjum dómara sem keppa til úrslita. Þetta er fyrst og fremst keppni milli þátttakendanna. Góðlátleg sam- keppnin milli okkar dómaranna er þar algjört aukaatriði. Ég er ekki að fara að mæta í Smáralindina með það að markmiði að rústa Ellýju og Einari, heldur mæta með mitt fólk og treysta því að það geri sitt. Sjálfur ætla ég ekki að vera með neinar „rúst“ og „burst“ yfirlýsingar.“ Páll Óskar segir ekki ólík- legt að það verði eitthvert drama á milli dómaranna þegar kemur að því að senda einhvern heim. „Eðli málsins samkvæmt erum við alltaf að velja út eitt af okkar atriðum. Þannig að við þurfum aldeil- is að rökstyðja okkar mál,“ segir hann en hann er afskap- lega ánægður með samstarfið innan dómnefndarinnar. „Það besta við þennan þátt, eins og ég upplifi hann, er að það er svolítið verið að slá á goðsögnina um að fólk sem er orðið eldra en þrítugt geti ekki orðið poppstjörnur. Það versta er að fólk selur sér þetta sjálft og trúir því að það sé ekki gjaldgengt í eitt eða neitt eftir þrítugt. Þetta er alrangt og við erum að afsanna þessa kenn- ingu í þessum þætti. Það eru allir keppendurnir búnir að koma sjálfum sér á óvart,“ segir Páll Óskar. Ekki markmiðið að rústa hinum dómurunum Páll Óskar segir X-Factor fyrst og fremst keppni milli þátttakendanna. Leikkonan Halla Vilhjálmsdóttir er kynnir í X-Factor og bíða margir spenntir eftir því að sjá frumraun hennar sem þáttastjórnandi í sjón- varpi. Hún segir að stemningin innan hópsins sé óvenju góð. „Fólk er mjög samrýnt og það skemmta sér allir ótrúlega vel. Maður er búinn að eignast fullt af vinum,“ segir Halla, sem ber kollegum sínum sem starfa að þættinum einnig vel sög- una: „Það eru margir hérna búnir að vinna saman í allt upp í tuttugu ár og það er algjör heiður að fá að vinna með þessu fólki.“ Að sögn Höllu hefur hlutverk hennar í þættinum verið æðislega skemmtilegt en einnig miklu erfið- ara en hún bjóst við. „Þetta á hug minn allan og er virkilega viðamikil vinna. Það fer náttúrlega allt í þetta en þetta er eiginlega draumavinna, sérstaklega þar sem ég fæ að vera góði karlinn og þarf ekki að henda neinum út.“ Halla var búsett úti í Bretlandi þegar hún sá X-Factor fyrst á skján- um. Heillaðist hún mikið af því sem fyrir augu bar. „Það sem mér fannst svo sniðugt var hvað þetta hentar vel til að taka við af Idolinu. Þetta er svona eðlilegt framhald og fólk þarf á svona þáttum að halda. Þetta er reyndar allt annar þáttur en Idol en samt með sönghæfileikum og pruf- um. Þetta er miklu flóknari þáttur, bæði erfiðari og stærri,“ segir hún. Halla segist ekkert hafa óttast að taka við kefli þáttastjórnanda af þeim Simma og Jóa. „Það eru mjög erfið fótspor að feta í enda eru þeir sérlega vel liðnir hjá þjóðinni og yndislega góðir í því sem þeir gera. En maður verður bara að vera maður sjálfur og vona það besta.“ Gott að þurfa ekki að senda fólk heim Halla Vilhjálmsdóttir er fegin að vera góði karlinn. „Þetta hefur verið rosalega gaman, og eiginlega miklu, miklu skemmti- legra en ég bjóst við. Ég er bara mjög þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í þessu,“ sagði Ellý Halldórsdóttir, eða Ellý úr Q4U, um undangengna mánuði í X-factor. „Allir sem komið hafa að þessari keppni hafa líka verið svo hæfir og fagmannlegir. Ég hef heyrt það frá keppendunum, það voru allir svo ánægðir,“ sagði hún. Ellý kveðst handviss um að í röðum keppenda í X-factor leyn- ist framtíðarstjarna. „Það er ekki spurning. Þetta var allt mjög gott fólk og hár standard. Það var hrika- lega erfitt að velja úr svona flottum hópi,“ sagði Ellý. Hún mun þó ekki missa svefn yfir ákvörðunum sínum. „Ef það stoppar fólk að komast ekki í gegn í þættinum hafði það ekkert að gera þar til að byrja með. Ef fólk ætlar virkilega að ná árangri heldur það bara áfram og bætir það sem þarf að bæta,“ sagði Ellý. Fram undan eru stífar æfingar með þeim fjórum keppendum sem Ellý hefur tekið undir verndarvæng sinn. „Ég ljóstra engu upp um hvað við tökum okkur yfir hendur á þeim æfingum. Nú er ég náttúrlega komin í keppni við Palla og Einar. En þetta er allt útpælt hjá mér, eins og mín er von og vísa,“ segir Ellý og hlær. „Svo rúlla ég þessu upp í Smáralindinni,“ bætir hún ákveðin við. Ég rúlla þessu upp Ellý Halldórsdóttir er þakklát fyrir að fá að vera með í X-Factor
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.