Fréttablaðið - 16.11.2006, Síða 54
{ x-factor } 6
Hugmyndasmiðurinn á bak við X-
Factor ætti að vera íslenskum sjón-
varpsáhorfendum að góðu kunnur
en það er Idol-dómarinn Simon
Cowell. Er talið að hann hafi vilj-
að koma á fót þætti sem hann ætti
sjálfur sjónvarpsréttinn að. Hug-
myndin hjá Cowell hefur vænt-
anlega verið sú að nýta eigin vin-
sældir, sem eru töluverðar, og átti
X-Factor að koma í staðinn fyrir
Pop Idol sem ýtt var út í kuldann
eftir tvær þáttaraðir.
Ekki gekk hins vegar þrautalaust
fyrir Cowell og félaga að koma
þættinum á legg á sínum tíma því
gamall samstarfsfélagi Cowells,
Simon Fuller, setti í fyrstu lögbann
á þáttinn og taldi hann vera of líkan
Pop Idol sem hann á heiðurinn að.
Fyrirtækið hans 19 TV höfðaði því
mál á hendur FreemantleMedia,
Simon Cowell og fyrirtæki hans
Simco and Syco. Málið rataði alla
leið fyrir dómara en áður en hann
komst að niðurstöðu sömdu nafn-
arnir um málalyktir og fær Fuller
sinn skerf af öllum þeim gróða sem
X-Factor aflar.
Þáttaröðin í Bretlandi hefur
jafnframt fengið sína útreið í
bresku pressunni því götublöðin
þar hafa verið dugleg við að herja
á þáttastjórnendur og þátttakend-
ur. Þannig hafa þau Louis Walsh
og Sharon Osbourne verið sökuð
um „óheiðarleg“ vinnubrögð og
Walsh sagður hygla keppendum
sem hann þekkti áður en þeir tóku
þátt. Hvað sem því líður hefur X-
Factor á Bretlandi hlotið fjöldann
allan af verðlaunum og hirti meðal
annars The British Comedy Awards
í fyrra. Breskir fjölmiðlar hafa hins
vegar ósjaldan haldið því fram að
þátturinn sé skipulagður í þaula,
ákveðið sé fyrirfram hvaða atriði
komist áfram og orðaskipti dóm-
aranna séu skrifuð niður fyrirfram.
Vakti það mikla undrun og athygli
þegar Louis Walsh tilkynnti að
hann hygðist ekki snúa aftur í einni
þáttaröðinni og sakaði hina dómar-
ana um einelti. Urðu fjölmiðlar enn
sannfærðari um leikstýrðan þátt
þegar Walsh settist í dómarasætið
næstu helgi á eftir.
Íslendingar tengjast bresku
útgáfunni nokkuð því Nylon-flokk-
urinn hefur sungið með tveimur
þátttakendanna sem náð hafa nokk-
uð langt; þær kveikja á jólaljósum
í breskum smábæ með sigurvegara
fyrstu keppninnar, Steve Brook-
stein, og voru á tónleikaferðalagi
með strákasveitinni Journey South
sem náðu þriðja sætinu í fyrra.
Stjórnendur ITV sjá væntan-
lega ekki eftir þeirri ráðstöfun að
leggja Cowell lið því yfir tíu millj-
ónir manna horfa á hann, Sharon
og Walsh berjast um bestu bitana.
X-Factor-þátturinn er talinn vera
eitt stærsta áheyrnarpróf Bretlands
því þarna mega allir á aldrinum
sextán ára og upp úr taka þátt.
Áður en fyrsti þátturinn var gerður
mættu fimmtíu þúsund þátttakend-
ur, þeim fjölgaði í sjötíu og fimm
þúsund fyrir næsta þátt og hafa
verið í kringum hundrað þúsund
fyrir þættina sem nú eru í gangi.
Verðlaunin í Bretlandi eru heldur
ekki af verri endanum, ein milljón
sterlingspunda og plötusamningur
og samkvæmt veðbönkum í Bret-
landi fyrir þessi jól er líklegast að
smáskífa sigurvegara X-Factor, sem
krýndur verður í jólamánuðinum,
komi til með að tróna á toppnum,
en það ætti að gefa góða mynd af
vinsældum þáttarins þar.
Nú þegar Íslendingar halda
X-Factor í fyrsta skipti komast
þeir í hóp með löndum á borð við
Kasakstan, Belgíu, Ástralíu, Hol-
landi og Kólumbíu auk Rússlands.
Samkvæmt lagaákvæðum má ekki
gera X-Factor í Bandaríkjunum þar
sem Simon Cowell er skuldbundinn
American Idol.
Hugarsmíð Simons Cowell slær í gegn
X Factor-keppnin hefst á Íslandi á morgun. Þótt keppnin eigi sér ekki langa sögu nýtur hún mikilla vinsælda um allan heim enda er bryddað upp
á þeirri nýjung að dómarar eru ekki síður í keppni innbyrðis en þátttakendurnir sjálfir.
Hverafold 1-5
Grafarvogi
Núpalind 1
Kópavogi
Reykjavíkurvegi 62
Hafnarfirði
Opnunartími:
Virka daga 16 - 22
Um helgar 12 - 22
Stór pizza
með 2 áleggjum
SKIPULAG ER FALLEGT
LJÓSMYNDARAR MEÐ NÆMT AUGA
LITLU HLUTIRNIR GERA MIKIÐ
ÁSKRIFTARSÍMI 550 5000 | WWW.VISIR.IS
SNILLDARLAUSNIR FYRIR LÍTIL RÝMI
NÝTT BLAÐ KOMIÐ ÚT!