Fréttablaðið - 16.11.2006, Page 77
Borgarbókasafnið blæs í lúðra í til-
efni af degi íslenskrar tungu, boðar
bæði útrás ljóðsins og efna til sam-
keppni um fallegasta orðið, í útibúi
safnsins í Árbæ.
„Við ætlum að færa ljóðið til
fólksins með því að lesa upp nokk-
ur ljóð í kallkerfi Bónuss í Hraun-
bæ,“ segir Jónína Óskarsdóttir,
sem les upp ásamt Söru Halldórs-
dóttur og Grétu Sörensdóttur,
starfssystrum sínum. „Við lesum
allavega ljóð eftir höfunda á öllum
aldri klukkan 12-13 og 16-17 og þeir
sem vilja næra andann í innkaupa-
ferðinni ættu endilega að bregða
sér í búðina á þessum tíma.“
Þá býðst þeim sem leggja leið
sína í útibú Borgarbókasafnsins að
Hraunbæ 119 að velja það orð sem
þeim þykir fallegast. „Hér höfum
við kassa sem við söfnum tillögum
í og innan skamms, væntanlega
strax eftir helgi, verður tilkynnt á
heimasíðu Borgarbókasafnsins
hvaða orð var hlutskarpast.“
Jónína segir að í sínum huga
keppi orðin grimmt. „Mér finnst
mamma mjög fallegt, það er mjög
sérstakt þegar barn segir það við
móður sína í fyrsta sinn. Mér finnst
orðið alúð líka koma sterklega til
greina og þegar maður fer að hugsa
um þetta þá streyma fram kynstur
af snotrum orðum.“
Fallegasta orðið valið í Árbæ
mála. „Það eru um það bil 220 sjálf-
boðaliðar hjá okkur í dag,“ segir
Sigríður, sem sjálf hefur starfað
hjá deildinni í um aldarfjórðung.
„Allt konur fyrir utan einn, sem er
synd því þótt þetta heiti kvenna-
deild eru allir velkomnir til að taka
þátt í okkar starf, hvort sem er til
að vinna í búðunum, á bókasöfnun-
um eða föndurhópunum.“
Auk styrksins til Blindrafélags-
ins veitir kvennnadeildin Umhyggju
jafnháan styrk á árinu. Auk ágóð-
ans af starfi föndurhópsins ver
deildin alls um átta milljónum
króna til líknarmála á árinu. „Svo
má ekki gleyma að við ætlum að
gefa út jólakort í ár í fyrsta sinn
eftir langt hlé. Penninn styrkti
okkur veglega svo það gæti orðið,
kortin eru glæsileg og allur ágóði
rennur til fatlaðra barna á Íslandi.“
til MK
Íranum James Dunn. „Í okkar flokki
var dregið í liðin daginn fyrir
keppnina,“ sagði Ragnar. „Ég var
mjög heppinn, ég lenti með strák
sem var kominn þangað til að standa
sig vel.“ Ragnar sagði samstarfið
hafa gengið snurðulaust fyrir sig.
Hann sagði keppendur þó hafa verið
misvel undirbúna og fannst Ísland
standa mjög framarlega á þessum
vettvangi. „Þetta var alveg æðislegt
og bara rosalega gaman að fá að
taka þátt,“ sagði Ragnar.