Fréttablaðið - 16.11.2006, Síða 90
Þær Alma, Klara, Emilía
og Steinunn eru ekki beint
venjulegar stúlkur á þrí-
tugsaldri. Á rúmum sex
mánuðum hafa stöllurnar
komið fram sjö sinnum á
stærsta leikvangi Bret-
lands, Wembley, og fjörið er
bara rétt að byrja. Nylon,
litla hljómsveitin sem
margir höfðu ekki trú á,
virðist vera búin að sýna sig
og sanna.
Þriðja plata Nylon á jafnmörgum
árum kemur út á laugardaginn.
Þessi plata er öðruvísi en hinar að
því leyti að hún er öll á ensku.
„Okkur finnst þessi plata vera
svona rjóminn ofan á kökunni. Á
plötunni eru bæði ný lög og svo þau
lög sem við héldum mest upp á af
hinum tveimur plötunum. Við erum
búin að endurútsetja og laga öll
lögin til,“ segir Steinunn Camilla
þegar blaðamaður hitti stelpurnar
í Laugum þar sem þær voru við
æfingar fyrir útgáfutónleikana
sem haldnir verða á laugardaginn í
Smáralindinni. Platan nefnist
Nylon og er einnig gerð til útgáfu á
Bretlandsmarkaði þar sem hún
mun koma út fyrri part næsta árs.
„Við erum mjög ánægðar með
þessa plötu enda fengum við að
vinna með frábæru fólki. Þegar við
hlustum á fyrstu plötuna liggur við
að maður roðni. Við erum búnar að
þroskast svo mikið á stuttum tíma,
bæði söngurinn og framkoman,“
segir Alma glöð í bragði.
Stúlkurnar hafa sungið með mörg-
um af vinsælustu hljómsveitum
Bretlands á borð við Westlife, Girls
Aloud, McFly og nú síðast X-factor
hljómsveitinni Journey South sem
er að gera það gott í Bretlandi.
Stelpurnar eru sammála um að
seinni túrinn í ferðalaginu hafi
verið mun auðveldari. „Við vorum
ekki lengur nýju stelpurnar heldur
vissum nákvæmlega hvað við
vorum að fara út í. Þegar við vorum
með Westlife var allt svo nýtt og við
vorum pínu feimnar en það er runn-
ið af okkur núna,“ segir Klara.
„Það sem kom okkur mest á
óvart þegar við komum út var
þessi aðdáendamenning í Bret-
landi. Þar þorir fólk á öllum aldri
að vera einlægir aðdáendur, hug-
tak sem varla er til á Íslandi,“
segir Emilía og bætir því við að á
Íslandi þykir það ekkert sérstak-
lega töff að vera aðdáandi. Klara
tekur í sama streng og segir að
þetta hafi komið þeim spánskt
fyrir sjónir fyrst um sinn að sjá
konur á besta aldri öskra á eftir
Westlife-strákunum. „Við Íslend-
ingar erum bara svo lokuð þjóð og
það er sjaldgæft að einhver þori
að dansa og öskra á tónleikum ef
enginn annar gerir það. Það eru
Bretarnir svo sannarlega ekki.“
Stúlkurnar eiga meira að segja
einn afar einlægan aðdáanda sem
þær minnast á. „Það er strákur á
okkar aldri sem veit allt um okkur.
Hann mætti baksviðs á eina tón-
leikana og fékk eiginhandarárit-
anir. Hann heilsaði okkur öllum
með nöfnum og var mjög almenni-
legur,“ segir Steinunn og vill
meina að ekki hafi þær ennþá lent
í einverjum óþægilegum aðstæð-
um með aðdáendum. „Það eru allir
mjög almennilegir og margir sem
nefna það hvað þeim finnst gaman
hvað við erum náttúrulegar og
niðri á jörðinni. Það er æðislegt að
heyra því það er nákvæmlega það
sem við erum og gott að það hafi
komist til skila,“ segir Klara.
Tónlistarbransinn einkennist oft
af miklu partílíferni og sukki en
stúlkurnar segjast ekki hafa
kynnst því. „Auðvitað kíkjum við
stundum í eftirpartí eftir tónleika
en við erum allar mjög rólegar og
förum í bíó frekar en að fara út að
dansa þegar við erum í fríi,“ segir
Steinunn og stúlkurnar eru sam-
mála. „Við erum líka alltaf á ferð-
inni, við erum búnar að keyra
10.000 mílur á síðustu fimm vikum
og erum því bara fegnar að vera
uppi á hóteli að horfa á sjónvarpið
þegar við getum,“ segir Emilía.
„Ég var að reikna það út að
síðan við fórum út í byrjun þessa
árs erum við búnar að vera sam-
fleytt úti í sex mánuði,“ segir
Steinunn, sem í Bretlandi er þó
kölluð Camilla sem er hennar
millinafn. Það er greinilegt að
fjarveran frá fjölskyldu og vinum
tekur á stelpurnar en þær segja þó
að þetta venjist.
Stúlkurnar eru allar á föstu og
er Emilía meira að segja á leiðinni
upp að altarinu næsta sumar. „Já,
ég er búin að vera trúlofuð í eitt ár
en það kom frétt um það nýlega í
DV sem fór inn á aðdáendasíðu
okkar úti og allir búnir að vera að
óska mér til hamingju, ári of seint,“
segir Emilía hlæjandi.
„Sko, kærastar okkar eru búnir
að vera algjörar hetjur. Ég sæi mig
í anda vera heima á meðan hann
væri úti í partíum og að syngja á
tónleikum meiripart árs. Ég væri
sko ekki neitt sérstaklega sátt,“
segir Klara brosandi og hinar
stúlkurnar taka í sama streng.
Stúlkurnar hlakka mjög mikið
til að koma fram á Íslandi á ný en á
áðurnefndum tónleikum í Vetrar-
garðinum verður ókeypis inn fyrir
alla. „Þetta verður æði og gaman að
leyfa fólki að sjá hvað við erum
búnar að vera að brasa í útlöndum.
Heima er alltaf best,“ segir Alma
að lokum.
Breskir aðdáendur stúlknanna
hafa svo sannarlega rétt fyrir, það
eru engir stjörnustælar hjá Nylon
og þær Alma, Klara, Emilía og
Steinunn eru með báða fætur fast á
jörðinni.
Undirbúningurinn fyrir
brúðkaup Toms Cruise og
Katie Holmes heldur áfram
en Ítalir ráða sér vart fyrir
kæti yfir því að stjörnupar-
ið skyldi velja landið
þeirra eftir allt fjaðra-
fokið í kringum hugs-
anlegt brúðkaup Ang-
elinu Jolie og Brad
Pitt við Como-vatnið.
Íslandsvinirnir í
Ekstrablaðinu danska
greina frá því í netút-
gáfu sinni að Katie
Holmes hafi farið í
smá verslunarleiðang-
ur í Hollywood á þriðju-
daginn og keypt sér
æsandi undirföt, náttföt
handa sér og manni sínum,
Tom Cruise, auk nokkurra
efnislítilla nærbuxna fyrir
brúðkaupið en talið er að
kostnaðurinn við þessi
„náttfatakaup“ hafi hlaup-
ið á hundruðum þúsunda.
Á vefsíðunni MSNBC er
síðan haft eftir starfs-
manni verslunarinnar La
Bra Lingerie, þar sem
Holmes er sögð hafa
verslað, að nærfötin hafi
alls ekki verið „jómfrú-
arleg“. „Enda varla
við hæfi þegar hún
er einu sinni orðin
móðir,“ sagði starfs-
maðurinn.
Nærvera Toms
Cruise hefur hleypt
öllu í bál og brand í
miðborg Rómar en
leikarinn undirbýr
nú brúðkaupið við
Braccaiano-vatnið
af kappi ásamt
móður sinni.
Fjöldi æstra
aðdáenda vakir
og sefur fyrir
framan Hass-
ler-hótelið, þar
sem Cruise er
sagður dvelj-
ast, í veikri
von um að sjá
leikarann
smávaxna
en öryggis-
verðir og
lögregla varna öllum sem ekki
eiga brýnt erindi inn á hótelið inn-
göngu. Samkvæmt erlendum
fréttaveitum er talið líklegt að
athöfnin fari fram í gömlum mið-
aldakastala við vatnið á laugardag-
inn en kostnaður við brúkaupið er
talinn hlaupa á sjö hundruð millj-
ónum íslenskra króna og má reikna
með að fjöldi fyrirmenna verði
viðstaddur þegar þau Holmes og
Cruise ganga í það heilaga.
Allt að verða klárt fyrir Cruise og Holmes
Útgáfutónleikar söngkonunnar Guð-
rúnar Árnýjar verða haldnir í Frí-
kirkjunni í Reykjavík í kvöld klukk-
an 20.00. Þar flytur Guðrún lög af
fyrstu sólóplötu sinni, Eilíft augna-
blik, sem kom út nú í vikunni.
Einvalalið hljóðfæraleikara
leikur undir á tónleikunum, m.a.
fjögurra manna strengjasveit.
Ásamt Guðrúnu koma fram þeir
Jón Jósep Sæbjörnsson og Edgar
Smári Atlason en báðir syngja þeir
dúetta með henni á nýju plötunni.
Þess má geta að um undirleik á
plötunni sér Sinfóníuhljómsveitin í
Bratislava ásamt landsliði íslenskra
hljóðfæraleikara. Miðasala á tón-
leikana fer fram á frostid.is og í
verslunum Skífunnar.
Guðrún í
Fríkirkjunni
Þúsundir aðdáenda njósnara henn-
ar hátignar, 007, söfnuðust saman
við Leicester-torg þegar nýjasta
James Bond-myndin Casino Royale
var frumsýnd í London.
Auk aðalleikara myndarinnar
mættu meðal annars til athafnar-
innar Elísabet Englandsdrottning
og hertoginn af Edinborg.
„Ég er mjög spenntur,“ sagði
Daniel Craig, sem hefur fengið góða
dóma fyrir hlutverk sitt sem Bond.
„Svona hlutir gerast bara einu sinni
á ævinni og ég ætla að reyna að
njóta þess.“
Myndin byggir á fyrstu skáld-
sögu Ians Fleming um Bond frá
árinu 1953. Hvorki tækjameistarinn
Q né hinn vinsæli einkaritari Bonds,
Miss Moneypenny, sjást í myndinni.
Casino Royale frumsýnd í London