Fréttablaðið - 16.11.2006, Síða 94
Knattspyrnusamband
Íslands, KSÍ, sagði í upphafi árs-
ins upp samningi sínum við
Íslandspóst sem var eina fyrir-
tækið sem styrkti A-landslið
kvenna sérstaklega. KSÍ nýtti sér
uppsagnarákvæði í samningnum
við fyrirtækið.
Árni Árnason hjá Íslandspósti
staðfesti þetta við Fréttablaðið í
gær. Að sögn Árna var samningur-
inn upp á 2,5 milljónir á ári ásamt
því sem Íslandspóstur stóð straum
af kostnaði við birtingar stór-
skemmtilegra auglýsinga
stúlknanna fyrir landsleiki.
Árni segir að ákvörðun KSÍ að
rifta samningnum hafi komið fyr-
irtækinu á óvart en KSÍ gaf þær
skýringar að þeir væru að breyta
styrkjakerfinu og allir styrktarað-
ilar væru þannig að styrkja alla
hjá KSÍ.
Þessar fréttir koma nokkuð á
óvart í ljósi þess að í yfirlýsingu
sem KSÍ sendi frá sér fyrir
skömmu sé raunveruleikinn sem
blasi við sambandinu sá að litlar
tekjur séu af starfsemi kvenna-
landsliðsins og þeir litlu peningar
sem komi inn í starfið séu í formi
styrkja. Rekstur kvennalandsliða
Íslands sé þar af leiðandi að mestu
greiddur af tekjum A-landsliðs
karla.
KSÍ hefur verið óviljugt til að gefa
upp hversu mikið af styrkjum
sambandsins renni til kvenna-
landsliðanna en það skýtur óneit-
anlega skökku við að KSÍ skuli
afþakka milljónatekjur til A-
landsliðs kvenna á meðan „litlar
sem engar tekjur“ eru af starf-
seminni eins og segir í yfirlýsingu
sambandsins frá 30. október síð-
astliðnum.
Upphæðin sem Íslandspóstur
greiddi til A-landsliðs kvenna er
fjórðungur af því sem kostaði að
reka kvennalandsliðið árið 2005.
Kostnaður við landsliðið var
rúmar 10 milljónir króna og heild-
arkostnaður vegna allra kvenna-
landsliða var um 21 milljón króna.
Fréttablaðið hefur ítrekað farið
fram á rökstuðning frá KSÍ um
hversu mikið af styrktarfé sam-
bandsins, sem meðal annars
kemur frá UEFA, FIFA, ÍSÍ og sjö
sterkum samstarfsaðilum KSÍ,
renni til kvennalandsliðanna en
erindum blaðsins hefur ekki verið
svarað.
KSÍ sagði upp samningi við Íslandspóst í byrjun ársins og gaf þar með frá sér
2,5 milljónir sem hefðu runnið beint í vasa A-landsliðs kvenna. Það er fjórðung-
ur af því fé sem kostaði að reka kvennalandsliðið árið 2005.
Enska götublaðið The
Sun sagði frá því í gær að Heiðar
Helguson væri tilbúinn að yfir-
gefa Fulham og fara aftur til Wat-
ford. Heiðar var á sínum tíma
keyptur til Fulham frá Watford
fyrir um 1,3 milljónir punda fyrir
rúmu ári.
Heiðar hefur lítið fengið að
spreyta sig á þessari leiktíð og
aðeins spilað tvo heila leiki með
Fulham það sem af er en Chris
Coleman, stjóri Fulham, hefur
breytt leikaðferð liðsins á þess-
ari leiktíð frá þeirri síðustu og
spilar nú bara með einn fram-
herja í stað tveggja áður.
Fréttablaðið hafði samband
við Heiðar í gær og spurði hann
hvort eitthvað væri til í þessari
frétt. „Ég er alveg rólegur yfir
þessu. Ég veit að ég kem til með
að fá mitt tækifæri. Það er bara
að bíða eftir því tækifæri og
grípa það.“ Heiðar bætti því við
að engin illindi væru á milli hans
og framkvæmdastjórans, Chris
Coleman.
Heiðar lék við góðan orðstír
hjá Watford á sínum tíma en hafði
ekkert heyrt af áhuga liðsins
núna. „Ég hef ekki heyrt neitt,
ekki nokkurn skapaðan hlut.
Þessi umræða var líka í gangi
fyrir þremur mánuðum,“ sagði
hinn 29 ára gamli Heiðar og var
greinilega mjög rólegur yfir
þessu öllu saman.
Heiðar lék 197 leiki fyrir Wat-
ford á tæpum fimm árum og
skoraði 64 mörk. Heiðar átti sitt
besta tímabil með Watford 2004-
2005 þegar hann skoraði 20 mörk
í næstefstu deildinni á Englandi.
Ekkert til í þessum orðrómi
Gæti þurft að leggja niður handboltann
Sandor Vargas, ráðgjafi
Andriy Shevchenko, sóknarmanns
Chelsea, segir að leikmaðurinn sé
ánægður hjá Chelsea og vilji enda
ferilinn sinn hjá félaginu.
„Shevchenko velti þessari sölu
fyrir sér í tvö ár og honum snýst
ekki hugur núna. Hann tjáði mér
að hann langi til að enda feril sinn
á Englandi,“ sagði Vargas en
Silvio Berlusconi, forseti AC
Milan, lét hafa eftir sér á dögun-
um að Shevchenko vildi koma
aftur til AC Milan.
„Shevchenko kann vel við sig á
Englandi, honum líkar vel við
Chelsea og hann er staðráðinn í að
standa sig. Sögusagnir um
endurkomu í ítalska boltann eru
fjarri sannleikanum. Shevchenko
vill að sonur hans vaxi úr grasi og
hljóti menntun á Englandi.“
Ánægður hjá
Chelsea
Sir Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, er sannfærð-
ur um að Cristiano Ronaldo,
leikmaður liðsins, hafi þroskast
mikið og sé hættur öllum
leikaraskap.
„Það er augljóst að Ronaldo
hefur þróað og bætt sinn leik,
einfaldlega vegna þess að hann er
að þroskast,“ sagði Ferguson og
bætti við að samherjar Ronaldo
eigi sinn þátt í því.
„Samherjar hans hafa
leiðbeint honum og það hjálpar.
En það eru enn leikarar í boltan-
um sem munu aldrei breytast,
alveg sama hvað framkvæmda-
stjórar þeirra segja við þá.“
Hættur öllum
leikaraskap
Búist er við því að AC
Milan muni reyna að kaupa
króatíska sóknarmanninn Igor
Budan í janúar. Budan er 26 ára
gamall, leikmaður Palermo en er í
láni hjá Parma og hefur skorað
sex mörk í síðustu sex leikjum
liðsins.
Budan var á dögunum valinn í
króatíska landsliðið í fyrsta sinn.
„Ég hef verið að skora mörk fyrir
Parma, ég er í landsliðinu og ég
hef heyrt að AC Milan hafi áhuga
á mér. Það er alls ekki slæmt. Ég
verð samt að taka þetta skref
fyrir skref. Ég myndi frekar vilja
vera hjá Parma út þetta tímabil,“
sagði Budan.
„Ég er með samning við
Palermo til ársins 2010 og
Palermo mun líklega spila í
Meistaradeild Evrópu á næstu
leiktíð og það skiptir miklu máli.“
AC Milan á eft-
ir Igor Budan
Adriano hefur engan
áhuga á að yfirgefa Inter Milan ef
marka má umboðsmann leik-
mannsins, Gilmar Rinaldi.
Adriano fór mjög illa af stað á
þessari leiktíð og var sendur í frí
til heimalandsins fyrr á þessu
tímabili. Adriano hefur verið
orðaður við brasilíska liðið
Flamengo og nokkur lið á Spáni
að undanförnu en Rinaldi neitar
alfarið þessum sögusögnum.
„Adriano líður mjög vel, hann
er ekkert stressaður og er mjög
einbeittur á æfingum. Ég hef
verið með honum í nokkra daga
og við höfum talað mikið saman.
Ég hef líka rætt við stjórnarmenn
hjá Inter og við ræddum hvorki
um leikmannamarkaðinn né
hugsanlega sölu á Adriano,“ sagði
Rinaldi.
Vill vera áfram
hjá Inter Milan