Fréttablaðið - 16.11.2006, Page 96
DHL-deild kvenna
Þýska úrvalsdeildin
Danska úrvalsdeildin
Undankeppni EM 2008
Vináttulandsleikir
Jóhann B. Guðmundsson
hefur endurnýjað samning sinn
við sænska úrvalsdeildarfélagið
GAIS til næstu tveggja ára en það
staðfesti Ólafur Garðarsson,
umboðsmaður hans, við Frétta-
blaðið í gær. Sjálfur segist hann
vera hæstánægður með samning-
inn sem og veruna hjá GAIS sem
er í Gautaborg.
„Það er mjög vel að öllu staðið
hjá þessu félagi og mér gekk vel í
sumar þegar ég var að spila,“
sagði Jóhann. „Það eru því allir
sáttir.“
Hann missti af síðustu fimm
leikjum tímabilsins vegna meiðsla
en hafði þá þegar misst af nokkr-
um leikjum um mitt tímabilið
vegna annarra meiðsla. Í síðara
skiptið sleit hann liðband á innan-
verðu vinstra hnénu en er nú óðum
að ná sér.
„Ég var einmitt að koma af
minni fyrstu æfingu í langan tíma
þar sem ég spilaði fótbolta af full-
um krafti. Ég hef nú aldrei lent í
vandræðum með hnén áður en
finn það að ég er ekki orðinn 100
prósent góður. En þetta er allt á
réttri leið.“
GAIS voru nýliðar í sænsku
úrvalsdeildinni í sumar og áður en
tímabilið hófst bjuggust sænskir
fjölmiðlar ekki við miklu af liðinu.
Flestir spáðu þeir þeim botnsætið
og fall aftur í 1. deildina.
„Við enduðum í 10. sæti og
vorum aldrei í neinni fallbaráttu,“
sagði Jóhann. „Enda var árangur-
inn framar öllum björtustu vonum
og allir hér mjög sáttir við sumar-
ið. GAIS er litla félagið í Gauta-
borg en þó margir sem halda með
því.“
Liðið heldur áfram að æfa út
mánuðinn en svo tekur við frí
fram yfir áramót. Jóhann gekk til
liðs við félagið fyrir ári en lék þar
áður í tvö ár með Örgryte sem
lenti einmitt í neðsta sæti úrvals-
deildarinnar í haust. „Það var því
kannski bara ágætis tímasetning
að fara frá félaginu í fyrra,“ sagði
hann og hló. En áður en GAIS kom
til sögunnar skoðaði hann það
alvarlega að koma aftur heim til
Íslands. „Við ákváðum bara að
kýla á þetta hjá GAIS og sjáum
ekki eftir því. Það kom svo aftur
til greina nú í haust að koma aftur
heim en okkur fjölskyldunni líður
vel hér í Svíþjóð og viljum vera
hér aðeins lengur,“ sagði Jóhann,
sem er 29 ára gamall.
Jóhann samdi við GAIS til tveggja ára
Sebastian Deisler verður
í leikmannahóp Bayern München
í fyrsta sinn í átta mánuði um
helgina þegar Bayern München
mætir Stuttgart, sem situr í efsta
sæti þýsku úrvalsdeildarinnar.
Deisler hefur verið frá vegna
hnémeiðsla.
Deisler er 26 ára gamall og
hefur misst af tveimur síðustu
heimsmeistaramótum vegna
alvarlegra hnémeiðsla en auk
þess hefur hann glímt við
þunglyndi sem haldið hefur
honum frá keppni um tíma.
„Deisler hefur verið góður
síðustu vikur og finnur ekki fyrir
eymslum í hnénu lengur,“ sagði
Felix Magath, þjálfari Bayern
München, en liðið hefur farið illa
af stað í deildinni á þessu
tímabili.
Deisler óðum
að koma til
Svo gæti farið að Xavi,
miðjumaður Barcelona, verði klár
í slaginn gegn Mallorca á
sunnudaginn. Xavi hefur misst af
síðustu þremur leikjum Barce-
lona og auk þess missti hann af
leik Spánverja í gær, gegn
Rúmeníu.
„Það eina sem vantar upp á hjá
Xavi er leikjaform. Þegar
leikmaður missir svona mikið úr
þá er alltaf hætta á að vöðvinn
rýrni,“ sagði Ricard Pruna,
læknir Barcelona.
Ef Xavi nær ekki leiknum
gegn Mallorca þá ætti hann
pottþétt að verða klár í leikinn
gegn Levski Sofia, en þann leik
verður Barcelona að vinna ef liðið
á að komast áfram í Meistara-
deild Evrópu. Edmilson og
Andres Iniesta eru einnig meiddir
og þeir verða að öllum líkindum
klárir fyrir leikinn gegn Levski
Sofia.
Xavi að verða
klár í slaginn
Fram kom í fréttum
Stöðvar 2 í gærkvöld að þrír
leikmanna handboltaliðs Þróttar
úr Vogum hefðu ekki mætt í lyfja-
próf eftir leik liðsins gegn
Stjörnunni í SS-bikarnum.
Samkvæmt fréttinni hurfu
leikmennirnir þrír úr húsinu áður
en leiknum lauk. Leikmennirnir
eiga tveggja ára keppnisbann yfir
höfði sér verði þeir fundnir sekir
um að hafa viljandi skrópað í
prófinu.
Mættu ekki í
lyfjapróf
Haukar og Stjarnan
áttust við á Ásvöllum í gær en
bæði lið voru með tíu stig í DHL-
deild kvenna fyrir leikinn. Stjarn-
an á þó tvo leiki inni og hélt sínu
striki þar sem liðið vann tveggja
marka sigur í gær, 28-26.
Stjörnustúlkur náðu fljótt und-
irtökunum í leiknum en leikmenn
Hauka misstu þær þó aldrei langt
undan. Þær komust reyndar yfir í
stöðunni 12-11 en Stjarnan skor-
aði síðustu fjögur mörk hálfleiks-
ins og staðan því þá 15-12.
Vörn og markvarsla beggja
liða var mistæk en þó átti Flor-
entina Grecu sína spretti í Stjörn-
umarkinu. Það var ekki fyrr en að
Bryndís Jónsdóttir kom inn á í
mark Haukanna í síðari hálfleik
að markvarslan fór að skila sér í
liði heimamanna. Þegar tólf mín-
útur voru eftir var Stjarnan með
þægilega fimm marka forystu en
skoraði svo ekki mark á átta mín-
útna kafla, meðal annars vegna
góðrar markvörslu Bryndísar.
Haukar nýttu sér markvörsl-
una til að minnka muninn og varð
hann aðeins eitt mark þegar Anna
Blöndal skoraði mark úr horninu.
En þegar tvær mínútur voru til
leiksloka skoraði Elísabet Gunn-
arsdóttir af línunni og fiskaði um
leið leikmann Hauka út af, og
gerði það útslagið fyrir gestina.
Niðurstaðan varð svo tveggja
marka sigur, sem fyrr segir.
„Sigurinn er mjög sætur, sér-
staklega þar sem við hleyptum
þeim aftur inn í leikinn undir
lokin. Ég er mjög sáttur við stigin
tvö í dag,“ sagði Aðalsteinn Eyj-
ólfsson, þjálfari Stjörnunnar, í
leikslok. Leikstjórnandinn Rakel
Bragadóttir dró vagninn fyrir
Stjörnuna og skoraði átta mörk.
Jóna Margrét Ragnarsdóttir og
Anna stóðu einnig fyrir sínu sem
og fleiri leikmenn liðsins.
„Það var afar mikilvægt að
vinna Haukana á útivelli. Það
sýnir að við höfum tekið út ákveð-
inn þroska frá síðasta tímabili.
Það er komið sjálfstraust, vilji og
geta í liðið sem hefur verið að
skila okkur stigum. Við áttum
möguleika tvisvar eða þrisvar í
leiknum að stinga þær af en gerð-
um það ekki og það nýttu Haukarn-
ir sér enda margir reyndir og
góðir leikmenn þar,“ sagði Aðal-
steinn.
„En þetta snerist fyrst og
fremst að sigrast á hefðum og
grýlum og að koma okkur í þann
gír að við getum náð þeim mark-
miðum sem við settum okkur.“
Þær Sandra Stojkovic og
Ramune Pekarskyte voru lang-
mest áberandi í leik Haukanna
og liðu aðrir leikmenn fyrir það.
Tveir bestu leikmenn liðsins í
gegnum árin, Harpa Melsted og
Hanna G. Stefánsdóttir, voru í
algeru aukahlutverki í sóknar-
leik liðsins og þarf að virkja þær
í sókninni ætli Haukar sér að
vinna stóra sigra í vetur. Liðið
hefur þegar tapað fjórum leikj-
um sem gæti reynst þeim afar
dýrkeypt.
Stjarnan vann mikilvægan útisigur á Haukum í DHL-deild kvenna í gærkvöldi.
Niðurstaðan var tveggja marka tap Hauka og það fjórða það sem af er tímabili.
Holland tók á móti Eng-
landi í vináttulandsleik í gær-
kvöld. Biðu margir spenntir eftir
því að sjá hvernig Englendingum
myndi reiða af í leiknum eftir
slakt gengi upp á síðkastið en
spilamennska liðsins hefur verið
það slök að sumir hafa viljað sjá
Steve McClaren stíga nú þegar
úr þjálfarastóli.
Það var fínn bragur á leik
enska liðsins í fyrri hálfleik í gær
og þeir leiddu í leikhléi, 1-0, með
marki Waynes Rooney. Englend-
ingar náðu ekki að halda dampi í
síðari hálfleik þar sem Hollend-
ingar voru mun sterkari. Heima-
menn uppskáru sanngjarnt jöfn-
unarmark frá Rafael Van Der
Vaart og þar við sat.
„Við erum mjög svekktir með
að hafa ekki unnið þennan leik.
Við fengum fjöldamörg tækifæri
og hefðum með réttu átt að klára
leikinn,“ sagði McClaren í leiks-
lok. „Annars sýndum við fínan
karakter, litum út eins og lið og
þetta eru bestu 90 mínúturnar
hjá þessu liði undir minni stjórn.“
Batamerki á leik Englendinga