Fréttablaðið - 16.11.2006, Side 98
Alex Black, umboðsmað-
ur Alan Smith, hefur látið hafa
eftir sér að leikmaðurinn muni
ekki yfirgefa Manchester United,
en Smith hefur fengið leyfi til að
yfirgefa Manchester United að
láni og hafa nokkur lið sýnt
honum áhuga.
„Smith er ekkert að fara neitt.
Manchester United hefur látið
hann fá sérstakt æfingapró-
gramm. Hann mun vera áfram
hjá Manchester United og hann
er búinn að ræða málin við sir
Alex Ferguson,“ sagði Black.
Sagt var frá því að Leeds,
félagið sem Smith lék með áður,
hafi haft áhuga á Smith en Black
sagði að Manchester United hafi
aldrei gefið Leeds leyfi til að
ræða við leikmanninn.
Verður áfram
hjá Man. Utd
Njarðvík mætir úkra-
ínska liðinu Cherkaski í Evrópu-
keppninni í körfubolta í kvöld.
Leikurinn í kvöld er heimaleikur
Njarðvíkur en hann verður þó
leikinn í íþróttahúsi Keflavíkur.
Þetta er annar leikur liðsins í
Evrópukeppninni á þessari leik-
tíð og sá fyrsti á heimavelli.
Njarðvík tapaði fyrsta Evrópu-
leiknum á tímabilinu á útivelli
gegn rússneska liðinu Samara,
101-80.
„Við vitum ekkert um þetta
úkraínska lið. Nema bara það að
þeir hafa tvo Bandaríkjamenn
sem eru mjög sterkir og líka tvo
spræka leikmenn frá Litháen.
Það er það eina sem við vitum.
Þetta er svipað og í Rússlandi um
daginn, rennum blint í sjóinn,“
sagði Halldór Karlsson, fyrirliði
Njarðvíkur, þegar Fréttablaðið
hafði samband við hann í gær.
Heimavöllur Njarðvíkinga
uppfyllir ekki þau skilyrði sem
Fibaeurope setur fyrir þessa
keppni og því verður Njarðvík að
leika heimaleiki sína í íþróttahúsi
erkifjendanna í Keflavík. „Ég
skil reyndar ekki af hverju.
Njarðvík fékk ekki leyfi fyrir
sínum velli af því að hann er of
stuttur en í Rússlandi gátum við
ekki farið í sturtu og ekki farið á
klósettið heldur. Þessar aðstæður
í Rússlandi voru ótrúlegar. Þetta
var hörmung. Gólfið var fínt en
allur aðbúnaður var alveg fárán-
legur,“ sagði Halldór en hann
bjóst ekki við því að það hefði
mikil áhrif á liðið að spila í
íþróttahúsi Keflavíkur.
„Við erum búnir að æfa þar
upp á síðkastið en auðvitað vild-
um við spila í okkar húsi. Þetta er
líka minn gamli heimavöllur. Mér
sýnist líka Brenton og Ivey hitta
alveg jafnvel í Keflavík og í
Njarðvík,“ sagði Halldór og bætti
því við að það væri stutt fyrir
stuðningsmenn Njarðvíkur að
fara yfir til Keflavíkur. Leikur-
inn hefst klukkan 19.15.
Heimaleikurinn verður í Keflavík
Jón Arnór Stefánsson
hefur ekki byrjað eins vel hjá sínu
nýja liði á Spáni, Pamesa Valencia,
eins og hann hefði helst kosið. Tví-
vegis hefur hann orðið fyrir
meiðslum sem hafa haldið honum
að mestu á hliðarlínunni.
„Ég hef verið skelfilega óhepp-
inn á stærstum hluta tímabilsins,“
sagði hann í samtali við spænska
dagblaðið Marca í gær. „Meiðslin
hafa gert það að verkum að ég hef
ekki getað spilað reglulega með
liðinu sem er afar slæmt fyrir
leikmann sem er nýr hjá félag-
inu,“ sagði Jón Arnór.
Hann er þó orðinn klár í slaginn
á nýjan leik og ætlar sér að rétta
úr kútnum. „Líkamlega er ég orð-
inn 100 prósent klár. Það er ljóst
að ég þarf að flýta mér hægt þegar
kemur að því að koma mér aftur í
leikform en líkamlega líður mér
mun betur.“
Jón Arnór lék í tæpar 19 mín-
útur með Pamesa Valencia um
helgina er liðið tapaði illa fyrir
Gran Canaria á útivelli, 79-55.
Hann skoraði fimm stig í leiknum
og hitti úr tveimur skotum af sex.
Hann tók tvö fráköst og gaf eina
stoðsendingu.
Hann segist þó vera sáttur við
veruna á Spáni enda sé deildin
góð. „Öll liðin í deildinni eru erfið
og allir geta unnið alla. Þetta er án
efa besta deildin í Evrópu.“
Hef verið skelfilega óheppinn
Valencia er sagt hafa
áhuga á að kaupa Jose Reina,
markvörð Liverpool, til að taka
við af Santiago Canizares,
markverði liðsins. Canizares er
36 ára gamall en hann skrifaði á
dögunum undir nýjan tveggja ára
samning við Valencia.
Varamaður Canizares er
franskur markvörður að nafni
Ludovic Butelle, 23 ára, en
félagið vill kaupa reyndari mark-
vörð til að keppa við Canizares
um markmannsstöðuna. Amadeo
Carbone, íþróttafulltrúi Valencia,
hefur þegar lýst því yfir við
umboðsmann Reina að félagið
vilji kaupa leikmanninn.
Umboðsmaður Reina er einnig
umboðsmaður Rafa Benitez og
hefur átt gott samband við
Valencia í gegnum tíðina. Reina
er hins vegar samningsbundinn
Liverpool til ársins 2009.
Valencia vill
kaupa Reina
Spretthlauparinn Asafa
Powell frá Jamaíku og hlaupa-
drottningin Sanya Richards frá
Bandaríkjunum voru valin
frjálsíþróttafólk ársins við
hátíðlega athöfn í Mónakó á
dögunum.
Sanya Richards átti frábært
tímabil og bætti til að mynda 22
ára gamalt bandarískt met í 400
metra hlaupi á árinu. Hún hafði
algjöra yfirburði í 400 metra
hlaupi á árinu og vann 15 hlaup í
röð á þessu ári.
Asafa Powell jafnaði heims-
metið í 100 metra hlaupi tvívegis
á árinu en hann á sjálfur heims-
metið ásamt landa sínum, Justin
Gatlin.
Bæði Powell og Richards unnu
hlut í Gullpotti Alþjóðafrjáls-
íþróttasambandsins á þessu ári.
Powell og
Richards kjörin
Sá orðrómur að búið væri
að selja Helga Sigurðsson til Vals
var orðinn sterkur í gær og gengu
menn svo langt að halda því fram
að hann yrði tilkynntur sem leik-
maður Vals í dag. Brynjar Jóhann-
esson, framkvæmdastjóri rekstr-
arfélags meistaraflokks Fram,
vísar þessum sögusögnum á bug
og segir ekkert hæft í þeim.
„Það er ekkert frágengið og
ekkert tilboð komið í hann í dag.
Við fengum tilboð frá Val upp á
tvær milljónir fyrir löngu síðan en
því var hafnað. Staðan er því að
mestu leyti óbreytt,“ sagði Brynj-
ar við Fréttablaðið seinni partinn í
gær.
Brynjar segist gera sér vel
grein fyrir áhuga Vals en það sé
þó langur vegur frá því að menn
sitji sveittir við samningaborðið
og reyni að ná saman.
„Við gáfum skýran tón í byrjun
og ef af því verður að hann fari þá
verður það ekki ódýrt. Hann situr
frekar uppi í stúku ef hann neitar
að spila. Við látum hann ekki öðru-
vísi en við fáum gott verð fyrir
hann,“ sagði Brynjar sem hefur
verið í sambandi við Helga upp á
síðkastið enda virðist mesti
æsingurinn runninn af mönnum.
„Það eru engin leiðindi á milli mín
og Helga. Menn gera sér bara
grein fyrir stöðunni og hún er sú
að hann er ekkert að fara að spila
fyrir okkur aftur. Á móti kemur að
hann fer ekki nema fyrir rétta
upphæð og Helgi skilur það.“
Önnur saga sem hefur verið í
gangi er sú að Fram hafi hafnað
fimm milljóna króna tilboði frá
Val. Brynjar segir hana ekki sanna
enda væri erfitt að segja nei við
slíku boði.
„Við höfum ekki fengið slíkt til-
boð og ég hef ekki trú á að menn
myndu hafna slíku boði. Við
værum orðnir helvíti ríkir ef við
gætum hafnað slíku boði. Ég hef
ekki tekið eftir því að við séum
það ríkir,“ sagði Brynjar og tekur
fram að félagið muni ekki setja
þau skilyrði að hann fari ekki til
annars liðs í efstu deild. Félagið
myndi ekki heldur setja neinar
klausur um að hann mætti ekki
spila gegn Fram.
Sögusagnir þess eðlis að Valur sé búið að kaupa Helga Sigurðsson af Fram eru
orðum auknar. Ekkert formlegt tilboð hefur komið nýlega í Helga sem er þó
falur á um fimm milljónir króna. Helgi er enn harður á að yfirgefa félagið.