Fréttablaðið - 23.11.2006, Side 6
Fullkomið skjól
Timberland PRO
softshell jakki
12.900 kr.
Timberland PRO
goretex úlpa
23.990 kr.
Timberland PRO
vatnsheld úlpa
7.900kr.
Timberland PRO
öryggisskór
13.990kr.
SÆ
B
R
A
U
T
D
ug
g
uv
o
g
ur
Súð
arvo
gur
K
na
rr
ar
vo
g
ur
Endurvinnslan
VIÐ ERUM HÉR!
ESSO Aðföng 14 verslanir – sjá www.esso.is Sími 560 3433
Knarrarvogi 4
Geir H. Haarde, for-
sætisráðherra og formaður Sjálf-
stæðisflokksins, segir mikil tíð-
indi felast í störfum og
niðurstöðum nefndar um lagalega
umgjörð stjórnmálastarfsemi.
Nefndin, sem skipuð var í júlí á
síðasta ári, skilaði ráðherra
skýrslu sinni og frumvarpi að
lögum í gær.
Eins og sagt var frá í Frétta-
blaðinu í gær gerir frumvarpið
ráð fyrir að árleg framlög til
stjórnmálaflokka megi að hámarki
nema 300 þúsund krónum og að
lykilupplýsingar úr uppgjörum
flokkanna verði birtar. Sama máli
gegnir um þátttöku fólks í próf-
kjörum.
Geir H. Haarde segir að með
þessu sé dregið úr mögulegum
ítökum fyrirtækja á starfsemi
flokkanna. „Það er mikilvægt að
koma í veg fyrir tortryggni og
jafnvel möguleika fyrirtækja að
kaupa sér pólitísk ítök. Þó að við í
Sjálfstæðisflokknum höfum ekk-
ert að fela í þessum efnum og
höfum aldrei haft þá teljum við
rétt að stíga þetta skref núna til að
eyða allri tortryggni.“
Aðspurður segir Geir erfitt að
fullyrða að þess séu dæmi að fyr-
irtæki hafi reynt eða beinlínis
keypt sér áhrif eða völd. „En það
er alveg ljóst að það eru fjölmarg-
ir aðilar í þjóðfélaginu sem hafa
efnast það mikið, bæði einstakl-
ingar og fyrirtæki, að það er lítið
mál ef fólk hefur áhuga á því.“
Þar sem skorður eru reistar við
frjálsum framlögum til stjórn-
málaflokka verða framlög ríkisins
hækkuð um 130 milljónir á ári.
Bætist sú fjárhæð við þær 295
milljónir króna sem ríkið leggur
nú þegar til flokkanna. Geir óttast
ekki að svigrúm til starfsemi
stjórnmálaflokka sé minnkað,
þrátt fyrir að hömlur verði á
frjálsum framlögum til þeirra.
Áfram geti þeir aflað sér fram-
laga hjá einstaklingum og fyrir-
tækjum og auðvitað sé hægt að ná
töluverðum upphæðum með þeim
hætti. Stuðningurinn verði hins
vegar dreifðari en áður.
Alls geta einstaklingar styrkt
stjórnmálaflokka um 400 þúsund
krónur á ári, verði frumvarp
nefndar forsætisráðherra að
lögum. Auk 300 þúsund króna
framlags getur fólk greitt félags-
gjöld að flokkum og mega þau
hæst nema 100 þúsund krónum á
ári.
Tortryggni um kaup
pólitískra ítaka eytt
Forsætisráðherra segir erfitt að fullyrða að fyrirtæki hafi keypt sér áhrif eða völd
með framlögum til stjórnmálaflokka. Lög um fjármögnun stjórnmálastarfsemi
eyði hins vegar tortryggni um slíkt. Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekkert að fela.
Alvarleg brot gegn
lögum um fjármögnun stjórn-
málastarfsemi geta varðað allt að
sex ára fangelsi. Fyrir vægari
brot, hvort sem er af ásetningi
eða stórfelldu gáleysi, skal refs-
að með fésektum.
Þrettánda grein frumvarps-
ins kveður á um þetta og er hún
í samræmi við sambærilegar
greinar í lögum um hlutafélög.
Verði frumvarpið að lögum
verður sveitarfélögum með
fleiri en 500 íbúa skylt að veita
fé til stjórnmálasamtaka sem
fengið hafa að minnsta kosti
einn mann kjörinn eða 2,5 pró-
sent atkvæða í sveitarstjórna-
kosningum. Sveitarfélögum með
færri íbúa verður heimilt að
gera slíkt hið sama.
Þá er lögð til sú nýjung í veit-
ingu styrkja til þingflokka, sem
ráðast af þingstyrk, að stjórnar-
andstöðuþingflokkar fá sérstök
framlög. Er það gert til að jafna
aðstöðumun stjórnar og stjórn-
arandstöðu.
Loks er gert ráð fyrir ríkis-
stuðningi við fólk sem býður sig
fram til embættis forseta
Íslands. Geta þeir sem hljóta að
minnsta kosti tíu prósent
atkvæða sótt um styrki vegna
kosningabaráttunnar. Skal styrk-
urinn mæta persónulegum
kostnaði frambjóðandans að frá-
dregnum framlögum fólks og
fyrirtækja.
Það er mikilvægt að
koma í veg fyrir tor-
tryggni og jafnvel möguleika
fyrirtækja að kaupa sér pólitísk
ítök.
Karlmaður hefur verið
dæmdur í þriggja mánaða
fangelsi í Héraðsdómi Reykja-
víkur fyrir þjófnað á ýmsum
varningi úr matvöruverslunum.
Meðal þess sem hann stal í
nokkrum tilvikum voru 30 glös af
kökudropum, auk mismunandi
matvæla.
Maðurinn hefur áður hlotið
dóma vegna þjófnaðar. Með
síðustu brotum rauf hann skilorð
og með hliðsjón af sakarferli
hans þótti ekki fært að skilorðs-
binda refsinguna nú, þótt
þjófnaðarbrot hans væru í öllum
tilvikum smávægileg.
Stal 30 glösum
af kökudropum
Þarmasýkingin Giardia
Lamblia hefur greinst í fimm
börnum á leikskólanum Hagaborg
í Reykjavík. Sýkingin getur smit-
ast með skítugu vatni og matvæl-
um eða milli manna. Börnin geta
verið einkennalaus svo vikum
skiptir, en einkennin eru annars
helst niðurgangur, en einnig lyst-
arleysi, vindgangur og ógleði. Sig-
ríður Sigurðardóttir, leikskóla-
stjóri á Hagaborg, segir mesta
vandann einmitt fólginn í hversu
lúmsk sýkingin sé. „Börnin eru
ekkert lasin og ekki með hita og
því nokkuð erfitt að átta sig á
þessu,“ segir Sigríður og hvetur
foreldra til að láta skoða börnin
hjá lækni, ef minnsti grunur er
um sýkingu.
Giardi-sýking er landlæg og
smitast sérstaklega milli barna,
því þau eiga til að trassa hand-
þvott. Guðrún Sigmundsdóttir,
yfirlæknir á sóttvarnasviði Land-
læknisembættis, segir að þetta sé
velþekkt leikskólasmit og ekki við
neinn að sakast, komi það upp.
Foreldrar ættu að gæta þess að
senda ekki börn með niðurgang á
leikskólann, heldur fara með þau
til læknis og fá sýklalyf.
Helsta forvörnin gegn Giardi-
sýkingu er góður handþvottur for-
eldra og barna, einkum eftir hægð-
ir og bleiuskipti.
Þarmasýking á leikskólum
Styður þú West Ham í ensku
knattspyrnunni?
Eru íslensku jöklarnir og eld-
fjöllin meðal undra heims?