Fréttablaðið - 23.11.2006, Side 10
Ísraelsher réðst á ný inn í
tvo palestínska bæi á Gazasvæð-
inu í gær, í því skyni að uppræta
palestínska skæruliðahópa sem
stunda það að skjóta sprengiflaug-
um á ísraelska bæi handan landa-
mæranna. Herinn settist um hús
eins þingmanns Hamas-samtak-
anna og lenti í hörðum skotbardög-
um við herskáa Palestínumenn, að
því er fulltrúar palestínskra yfir-
valda greindu frá.
Það sem gerði ástandið á Gaza
enn alvarlegra fyrir íbúana var að
Rauði krossinn ákvað að hætta allri
starfsemi sinni þar í bili, í kjölfar
þess að tveimur starfsmönnum
þeirra var rænt þar. Þeir voru að
vísu fljótlega látnir lausir aftur, en
forsvarsmenn samtakanna töldu
öryggi starfsmanna þeirra verða
að vera betur tryggt.
Átökin voru hörðust í bæjunum
Beit Hanoun og Jebaliya nyrst á
Gazasvæðinu. Það var í Beit Han-
oun sem um fimmtíu herskáir Pal-
estínumenn og að minnsta kosti
sjö óbreyttir borgarar, þar á meðal
konur og börn, létu lífið í hernað-
araðgerð Ísraela fyrr í mánuðin-
um. Bærinn var nær rústir einar
er herinn fór aftur þaðan. Honum
tókst þó ekki að binda enda á
sprengiflaugaárásir Palestínu-
manna. Fyrstu þrjár vikur nóvem-
bermánaðar vörpuðu skæruliðar
155 flaugum inn í Ísrael. Í október
voru þær 70 og 65 í september.
Á fundi þjóðaröryggisráðs Ísra-
els voru leiðandi ráðherrar ísra-
elsku ríkisstjórnarinnar sammála
um að tilgangslaust væri að efna
til stórtækra hernaðaraðgerða
gegn herskáum Palestínumönnum
á Gaza nema þær aðgerðir væru
liður í að framfylgja skýrum pólit-
ískum markmiðum.
Engin formleg samskipti hafa
átt sér stað milli palestínsku
heimastjórnarinnar og Ísraels-
stjórnar síðan Hamas-samtökin
tóku við forystunni í mars, í kjöl-
far þess að samtökin komust í
meirihluta á palestínska löggjaf-
arþinginu. Mahmoud Abbas, for-
seti Palestínumanna og leiðtogi
Fatah-hreyfingarinnar, sagðist í
gær myndu halda áfram viðræð-
um við Ismail Haniyeh, Hamas-
leiðtoga og forsætisráðherra
heimastjórnarinnar, um myndun
samstjórnar Fatah og Hamas. Þar
með virtist Abbas draga til baka
yfirlýsingu sína frá því fyrr í vik-
unni um að þær viðræður væru
farnar út um þúfur.
Mannréttindasamtökin Amn-
esty International ítrekuðu í
fréttatilkynningu í gær kröfu sína
um að Sameinuðu þjóðirnar leiði
umfangsmikla og óháða rannsókn
á brotum gegn alþjóðlegri mann-
úðarlöggjöf sem framin voru í
átökum Ísrael og Líbanon í sumar.
Ísraelsher efnir til
nýs áhlaups á Gaza
Til harðra bardaga kom í gær milli Ísraelshers og Palestínumanna í Beit Hanoun
og Jebaliya á Gaza. Rauði krossinn er í bili hættur störfum á Gaza af öryggis-
ástæðum. Þreifingar halda áfram um myndun samstjórnar Fatah og Hamas.
Framkvæmdum við stækkun Hellisheiðar-
virkjunar hefur verið frestað. Ástæðan er sú að
Skipulagsstofnun telur að framkvæmdirnar við
virkjunina séu ekki í samræmi við skipulagsáætlan-
ir. „Það var ekki búið að gera þær nauðsynlegu
breytingar á aðalskipulagi og deiliskipulagi sem
þurfti að gera til að sveitarfélagið Ölfus gæti veitt
leyfi fyrir slíkum framkvæmdum. Á grundvelli
þessara upplýsinga beindi Skipulagsstofnun þeim
tilmælum til sveitarstjórnarinnar að framkvæmdir
við virkjunina yrðu stöðvaðar,“ segir Stefán Thors
skipulagsstjóri sem skrifaði bæjarstjóra Ölfuss bréf
þess efnis hinn 9. nóvember síðastliðinn.
Stefán segir að ábyrgðin í þessu máli liggi hjá
sveitarfélaginu því það hafi heimilað framkvæmd-
irnar án þess að hafa tilskilin leyfi. Til þess að
framkvæmdir við virkjunina hefjist aftur þarf að
breyta aðalskipulagi og deiliskipulagi virkjunarinn-
ar að sögn Stefáns. Hann segir að það ferli taki um
tvo til þrjá mánuði og munu framkvæmdir við
virkjunina liggja niðri á meðan.
Guðmundur Þóroddsson, framkvæmdastjóri
Orkuveitu Reykjavíkur, segir að fyrirtækið muni
ekki bíða fjárhagslegt tjón af frestun framkvæmd-
anna við virkjunina og að almennt séð hafi hún
lágmarksáhrif á fyrirtækið.
Framkvæmdunum frestað
Umferðarþing 2006
fer fram í dag og á morgun. „Sú
slysaalda sem riðið hefur yfir
núna á seinni hluta ársins liggur
eins og mara yfir þessu þingi,“
segir Karl Ragnars, forstjóri
Umferðarstofu, sem setur þingið
á Hótel Loftleiðum í dag.
Alvarlegum slysum á Íslandi
hefur fjölgað um 43,6 prósent
fyrstu níu mánuði ársins í saman-
burði við sama tíma í fyrra sam-
kvæmt samantekt slysaskráning-
ar Umferðarstofu. „Slysatíðni á
fyrri helmingi ársins var mjög í
takt við árið á undan en svo á
seinni helmingi varð fjandinn
laus.“
Fyrstu níu mánuði ársins hafa
orðið 102 alvarleg slys og hafa 120
manns slasast í þeim. Í fyrra voru
107 alvarleg slys yfir allt árið. Alls
hafa 25 látist í umferðinni það sem
af er ári en í fyrra létust 19 í
umferðarslysum. Engar skýring-
ar liggja fyrir hvers vegna slysa-
tíðnin hefur aukist með þessum
hætti að sögn Karls.
„Markmið umferðarþingsins er
að varpa ljósi á stöðu umferðarör-
yggismála með umfjöllun um
hvernig þeim er háttað. Þetta er
alhliða málfundur um umferðar-
öryggismál þar sem verið er meðal
annars að boða nýjar aðferðir og
tækni.“
Að umferðarþingi standa sam-
gönguráðuneytið, umferðarráð og
Umferðarstofa og er þingið haldið
annað hvert ár. Flutt verða fjöl-
mörg erindi og í lok þings verða
lagðar fram ályktanir.
Lögreglumenn úr
fíkniefnadeild lögreglunnar í
Atlanta í Bandaríkjunum lentu í
skotbardaga við 91 árs gamla
konu þegar þeir réðust inn á
heimili hennar, með húsleitar-
heimild í höndunum.
Lögreglumennirnir segjast
hafa bankað á dyr um í gærmorg-
un og gert grein fyrir sér áður en
þeir brutu upp dyrnar. Konan var
vopnuð byssu og særði þrjá
lögreglumenn. Lögreglan skaut
þá á móti og féll konan í valinn.
Konan bjó ein í húsinu og frænka
hennar segir aðgerðir lögreglunn-
ar ástæðulausar.
Níræð kona féll
í skotbardaga
Átján ára piltur var á
miðvikudag dæmdur í þriggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir líkamsárás í Héraðsdómi
Austurlands.
Pilturinn réðst, í félagi við
annan, á mann á þrítugsaldri með
höggum og spörkum á Eskifirði í
júní á þessu ári. Hann stappaði
meðal annars nokkrum sinnum á
andliti fórnarlambsinns sem fékk
glóðaraugu, augntóft brotnaði auk
fleiri minni áverka. Hinn ákærði
játaði brot sín skýlaust fyrir dómi
en hann hefur ekki áður gerst
sekur um refsiverða háttsemi. Því
þótti við hæfi að skilorðsbinda
refsingu hans.
Sekur um að
stappa á andliti
Jólamarkaður
á Garðatorgi
Rekstarfélag Garðatorgs stendur fyrir
götumarkaði á torginu á Aðventunni.
Þeir sem áhuga hafa á að setja upp
sölu- pg eða sýningarbása vinsamlegast
hafi samband við Lárus i síma 861 4950.