Fréttablaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 11
SIMPLY CLEVER
SkodaOctavia Terno
Vegna hagstæðra samninga við Skoda verk-
smiðjurnar getum við núna boðið takmarkað
magn Octavia Terno með álfelgum, ABS hemla-
læsivörn, rafmagni í rúðum, ASR spólvörn,
aksturstölvu, hita í speglum o.fl.
á aðeins 1.730.000 kr.
SkodaFabia Terno
Eigum fyrirliggjandi nokkra Skoda Fabia
Terno með sparneytinni bensínvél og
ríkulegum staðalbúnaði, m.a. sóllúgu,
14” álfelgum, aksturstölvu, leðurstýri og
þokuljósum. Og verðið er aldeilis frábært,
aðeins 1.540.000 kr.
RUGLVERÐ
1.730.000 kr.
Takmarkað magn!
Vetrardekk fylgja öllum seldum bílum
og sumardekkin í skottinu.
Seltjarnarnesbær
hafnaði nú nýlega tillögu Þyrp-
ingar um 20 þúsund fermetra
landfyllingu austanmegin á Nes-
inu.
Ingimar Sigurðsson, formaður
skipulags- og mannvirkjanefnd-
ar Seltjarnarnesbæjar, segir nið-
urstöður viðræðna meirihlutans
þá að þetta sé ekki gerlegt. „Við
erum nýbúin að fara í gegnum
umræðu um aðalskipulag og þar
er ekki gert ráð fyrir landfylling-
um af neinu tagi en skipulagið
gildir til ársins 2024. Þá metum
við viðhorf íbúanna sem svo að
fylgi við landfyllingar sé ekki
mikið meðal þeirra.“
Ingimar segir að eina óbyggða
svæðið sem eftir er á Seltjarnar-
nesinu sé landsvæði á Nesinu
vestanverðu en þar er gert ráð
fyrir útivistarsvæði samkvæmt
deiliskipulagi.
„Landfylling eins og sú sem
tillaga Þyrpingar gerði ráð fyrir
hefur óneitanlega áhrif á
umhverfið og útsýni þó auðvitað
séu skiptar skoðanir um aðgerðir
eins og þessar.“
Ingimar segir þetta ekki í
fyrsta sinn sem bæjarfélagið
hafni landfyllingu en síðasta
sumar fékk bæjarfélagið tillögu
frá Klasa um að fylla upp í Bakka-
víkina en þar var gert ráð fyrir
4.000 manna byggð. Þeirri tillögu
var einnig hafnað.
Engar landfyllingar á Nesinu
Norskur dómstóll
úrskurðaði í gær að kúrdíski
múslimaklerkurinn Krekar verði
gerður brottrækur frá Noregi og
að svipta beri hann flóttamanna-
stöðu hans þar í landi.
Krekar hafði áfrýjað brottvís-
unardómi sínum sem féll í borgar-
dómi Óslóar í fyrra, en hann hefur
búið í Noregi frá árinu 1991 sem
flóttamaður. Krekar er stofnandi
Ansar al-Islam hópsins, sem
grunaður er um hryðjuverk í Írak.
Dómarinn sagði að rétt hefði
verið að vísa Krekar á brott, því
hann ógnaði þjóðaröryggi Noregs.
Lögmaður Krekar segir enga
ákvörðun hafa verið tekna um
hvort áfrýjað yrði til hæstaréttar.
Múslímaklerki
vísað frá Noregi
Ungur maður af erlend-
um uppruna var í gær ákærður
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur
fyrir sérstaklega hættulega
líkamsárás.
Maðurinn veittist að öðrum
manni á veitingastaðnum Kaffi
Viktor í desember, skallaði hann og
sló með glerglasi í andlitið með
þeim afleiðingum að hinn síðar-
nefndi hlaut skurð á enni, neðan
við vinstri nös og á neðri vör, auk
þess sem hann marðist í andliti.
Þess er krafist að árásarmaður-
inn verði dæmdur til refsingar Að
auki, að hann verði dæmdur til að
greiða fórnarlambinu bætur upp á
ríflega eina milljón króna, auk
vaxta.
Skallaði mann
og sló með glasi
Aðgerðir gegn skatt-
svikum hafa verið til skoðunar í
fjármálaráðuneytinu í tvö ár.
Í desember 2004 skilaði starfs-
hópur skýrslu um umfang skatt-
svika og hefur ráðuneytið haft
málið til athugunar síðan. Árni M.
Mathiesen fjármálaráðherra upp-
lýsti þetta á Alþingi í gær.
Ein tillaga úr skýrslu starfs-
hópsins hefur orðið að veruleika;
fyrning skattsvikabrota er nú
sex ár.
Ráðherra sagði tillagna um
frekari aðgerðir að vænta.
Aðgerðir gegn
skattsvikum
Læna hefur opnast til sjávar
í gegnum krapastífluna í Jökulsá
á Fjöllum og er vatnið farið að
sjatna, að sögn Sveins Þórarins-
sonar, bónda í Krossdal. Enn er þó
mikill ís í vatninu. „Það er
töluverð fylla þarna ennþá og
þetta er eins og hálfgerður jökull
að líta yfir,“ segir Sveinn, en
íshrönglið er allt að tveggja
metra þykkt og kann að verða í
ánni fram eftir vori.
„Það er nístingskuldi af þessu,
eins og hafís,“ segir Sveinn en
hann telur að töluverðar skemmd-
ir hafi orðið á varnargarðinum í
Öxarfirði, Vestursandsvegi og
girðingum í flóðinu.
Flóðið í rénum