Fréttablaðið - 23.11.2006, Side 12

Fréttablaðið - 23.11.2006, Side 12
 Erlendir verka- menn á íslenskum vinnumarkaði hafa brotist úr hálfgerðu vistar- bandi og gerst frjálsir menn með innleiðslu ákvæðis um frjálsa för vinnuafls, að sögn aðila á vinnu- markaði. Í auknum mæli munu útlendingar vera byrjaðir að krefj- ast betri kjara og líta í kringum sig á íslenskum vinnumarkaði. Kjaramunur milli aðfluttra og inn- fæddra hefur því minnkað eftir að ákvæði EES-samningsins um frjálsa för vinnuafls var innleitt með öllu, þann 1. maí þessa árs. Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, kannast við þessa þróun og segir hana fagn- aðarefni fyrir verkafólk. „Hvað sem um opnunina þann 1. maí má segja, töldu menn að með henni myndi draga úr umfangi starfs- mannaleiganna. Það virðist vera raunin, því það er ljóst að síðustu mánuðina hefur ráðningum starfs- mannaleiga snarfækkað, og beinar ráðningar aukist á móti. Við höfum heyrt að þetta sé ein helsta skýr- ingin á því að laun eru að nálgast markaðskjör. Verkalýðshreyfingin hefur reynt að tryggja þessu fólki markaðslaun, en oftast hefur okkur aðeins tekist að tryggja lágmarks- kjör. Því er þessi þróun fagnaðar- efni,“ segir Grétar. Ragnar Árnason, forstöðumað- ur vinnumarkaðssviðs Samtaka atvinnulífsins, telur einnig að að hin frjálsa för hafi verið launa- fólki til hagsbóta. „Ef stjórnvöld hefðu frestað þessari þróun, væru starfsmannaleigur orðnar afar umsvifamiklar hér á landi, því þær hefðu getað flutt inn fólk, rétt eins og áður,“ segir Ragnar, en engar takmarkanir var hægt að setja um frjálst flæði þjónustu þann 1. maí, til dæmis þjónustu austur-evrópskra starfsmanna- leiga. Miðað við þá miklu eftir- spurn sem er á Íslandi eftir vinnu- afli, er því viðbúið að atvinnurekendur hefðu sótt í þá þjónustu. Ragnar harmar því mál- flutning Magnúsar Þórs Haf- steinssonar, þingmanns frjáls- lyndra, um að fresta hefði átt gildistöku laganna. „Þingmaður sem tók þátt í setningu þessara laga ætti að vita betur, það er verið að slá ryki í augun á fólki með þessu,“ segir Ragnar. Innflytjendur farnir að sækja rétt sinn Vegna ákvæðis um frjálsa för vinnuafls, sem innleitt var 1. maí, getur erlent launafólk krafist betri kjara en áður og nálgast því Íslendinga í launum. Hér væru annars umfangsmiklar starfsmannaleigur. Fagnaðarefni fyrir verkalýð. „Honum hefur hrakað mikið í dag,“ segir Alex Goldfarb, vinur rússneska njósnarans Alex- anders Litvinenko, sem liggur fár- sjúkur á sjúkrahúsi í London eftir að eitrað var fyrir honum í byrjun mánaðarins. „Hann er miklu horaðri, virðist þreyttari og hann á æ erfiðara með að tala,“ sagði Goldfarb, eftir að hafa heimsótt hann á gjör- gæsludeildina í gær. Í yfirlýsingu frá sjúkrahúsinu segir þó að ástand Litvinenkos sé stöðugt og honum hafi ekki hrakað. Enn hefur ekki verið hægt að greina með vissu hvaða eiturefni hafa valdið sjúkleika Litvinenkos, sem er 43 ára og hefur á síðustu árum verið óhræddur við að saka rússnesk stjórnvöld um hvers konar óhæfuverk. Upphaflega var talið að eitrið hafi verið þallín, stórhættulegur þungmálmur sem er bæði bragð- laus og lyktarlaus og leysist upp í vatni. Svo virðist þó sem eitthvert annað eitur hafi líka verið notað, en eiturefnafræðingurinn John Henry sagði á þriðjudag líklegast að eitrið hafi verið geislavirkt þallín. Rússneska leyniþjónustan SVR sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem hún harðneitaði því að hafa átt nokkurn hlut að því að eitra fyrir Litvinenko. Heilsa hans sögð hrakandi Erlent verkafólk í útleigu „Þingmaður sem tók þátt í setningu þessara laga ætti að vita betur, það er verið að slá ryki í augun á fólki með þessu. Liðlega fimm þúsund bílar fóru um Hvalfjarð- argöng á sólarhring á nýliðnu rekstrarári. Alls fóru yfir 1,8 milljónir bíla um göngin frá byrjun október í fyrra til loka september í ár. Þetta er fjölgun upp á tólf prósent frá fyrra ári. Í Skessuhorni kemur fram að Spölur skuldi nú tæpa 4,7 milljarða króna. Tekjur félagsins hafa lækkað um tæp þrettán prósent miðað við fast verðlag. Stöðug umferð- araukning hefur hins vegar skilað því að allir geta unað glaðir við sitt. Stöðugt meiri umferð Miele þvottavélar Íslenskt stjórnborð Ný og betri tromla Verð frá kr. 114.800 -hreinn sparnaður 1. verðlaun í Þýskalandi W2241WPS AA SENDU S MS JA BOF Á 1900 OG ÞÚ G ÆTIR UN NIÐ! VINNING AR ERU: GSM SÍM AR 007 DVD SAFNIÐ BÍÓMIÐA R DVD MY NDIR OG MARGT FLEIRA! 9 hver vinnur! 1. vinningur! V in n in g ar v er ð a af h en d ir h já B T Sm ár al in d. K ó p av o g i. M eð þ ví a ð t ak a þ át t er tu k o m in n í SM S kl ú b b. 9 9 kr /s ke yt ið . FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.